Þá er enn einni helginni lokið hér í borg nasismans. Það eru vissulega margir samverkandi þættir sem valda því að maður fær stundum nóg af því að vera hérna, en þegar maður nýtur dagana eins og maður hefur gert nú um helgina, er hvergi betra að vera.... ekki einusinni á Íslandi. Helgin hófst á því að Davíð og Gunnar kíktu í heimsókn og við horfðum á videó, Hellboy 2 varð fyrir valinu, en ég held ég hafi ekki verið í ástandi til að gefa stjörnur :) Allavega var þetta ekki besta mynd sem ég hef séð. Á Laugardag fórumvið Soffía í langan og góðan hjólatúr um miðæ Berlínar, í besta veðrinu hérna í rúman mánuð, loksins! Þetta var svaka fínn dagur, og ég sá mér til mikillar ánægju að það var verið að frumsýna Fidelio í Staatsoper og það var sýnt frá því á risaskjá fyrir utan óperuna sama kvöld. Við mættum að sjálfsögðu og horfðum á, hrikalega flottur flutningur og í raun ekki margt viðurstyggilega ómerkilegt eins og maður hefur margoft séð hérna í Berlín. Þetta var bara nokkuð smekklegt og ótrúlega vel sungið. Með aðal tenórhlutverkið fór Johan Botha hann er bara nokkuð flottur og skilaðu sínu ótrúlegum krafti og fegurð, sem ég hef persónulega ekki áður heyrt hjá dramatískum tenór live. Við strákarnir hentumst svo á Maredo að lokinni sýningu og fengum okkur einn drykk. Ekki leið á löngu þar til sjálfur Johan Botha gekk inn á staðinn og settist niður til að borða. Ég stóð upp og gekk að honum, og óskaði til hamingju, ákvað svo að taka sénsin að spyrja hvort hann tæki að sér nemendur í Berlín og svarið var nei! EN hann sagði samt að hann gæti hlustað á mig ef ég vildi og gaf mér númerið sitt, hann er nefnilega með fólk hérna í Berlín sem hann sagðist myndi benda mér á ef ég er "good", því var það úr að ég fékk númerið hans og hringi í hann á næsta miðvikudag..... hrikalega spennandi.
Nú í dag fórum við S. í sundlaugargarð hérna ekki langt frá okkur því fínt veður einkenndi daginn, við fundum þetta auðveldlega og lögðum af stað hjólandi. Það kostaði okkur 4 EUR á mann að fara inn, þetta er í raun bara tvær sundlaugar og svo smá útivistarsvæði. ekki neitt merkilegt. En þetta var voða fínt, ekki það að maður hafi farið mikið í sund þar sem hitastigið var 20°C, ss ekki spennandi þar sem úti hitastigið var svosem ekki hátt. En það var sól og maður svitnaði aðeins. Eftir það hentist ég niður í bæ, aftur að Staatsoper þar sem var verið að sýna 9.symfóníu Beethovens fyrir utan Staats og aftur var það Daniel Barenboim sem var að stjórna, nokkuð flott, og af þessu öllu má að sjálfsögðu sjá myndir á myndasíðunni minni.
Helgin er búin a vera góð og veðrið er búið að vera gott. Ég fór í tíma hjá Goldbergnum á föstudag, og svo í tíma hjá pínaóleikaranum mínum á laugardag, og það gekk allt hrikalega vel, ég held sveimér þá að skap mitt hangi í samspili við verðurfar, því mér hefur ekki gengið vel meðan það er skýjað og þungt yfir, núna er það allt annað og mér líður súper vel og allt gengur eins og það á að gera.....! Þetta er ótrúlega óþolandi að vissu leiti, kannski ekki skrítið að bestu tenórar heims komi frá hitabeltissvæðum :) Ætli maður verði ekki að fara til Ítalíu næst.
Allavega góð helgi að baki og margt gott hefur gerst sem vekur von og gleði :) Vona að það haldi áfram næstu viku.
Óléttuhornið:
Maður er farinn að vona að þetta fari bara að gerast, þar sem maður hefur bara ekki þolinmæði til að bíða í rúma 2 mánuði í viðbót.... þetta er bara rugl. Augljósar hreifingar hafa fundist síðustu 3-4 vikur og maður heldur auðvitað í fáfræði sinni að barnið sé að bregðast við einhverju sem maðu segir, og gerir :) En vitandi það að svo er ekki er líka soldið merkilegt, þessar hreifingar eru í raun bara "hikstar" eins og það er kallað. Barnið er að "anda" að sér legvökva og hreyfingarnar eiga sér einhver stað í því að mér skilst. Það er gaman að upplifa þetta, en það er greinilegt að eitthvað "yfirnáttúrulegt" er að undirbúa mann fyrir komuna, því ég hef ekki verið að sofa vel undanfarið, og það tengist svosem svefnleysi konunnar að einhverju leiti. Þetta verður auðvitað gaman og það er ekki til millimeter af mér sem hvíðir þessu, vona og veit að þetta mun setja ákv hluti í samhengi, sem verður bara gaman og áhugavert.
MYNDIR HÉR
Þetta óléttuhorn er nú alveg stórskemmtilegt hjá þér :) Annars les ég alltaf bloggið þitt svona til að fá annan vinkil á upplifanir eiginkonunnar! Svo er rétt að vara þig við því að eftir að barnið kemur í heimsókn þá fáið þið ekki flóafrið fyrir mér ;)
SvaraEyðaÞað er ekki lítið spennandi að vita hvernig fer með frekari samskipti við Botha. Frekar töff að ganga bara upp að manninum. Ekki slæmt. :)
SvaraEyðaÉg sé fyrir mér þann tíma þegar börnin fara að koma í heiminn eftir 2 vikna meðgöngu! Nútímamaðurinn vill að allt gerist strax, hví ekki þetta líka? En þú tjáir biðina svo einkar snyrtilega að líklegast ertu ekkert að meina þetta. Jamm.