15.5.08

Já og aftur já detti mér allar.......

Þá fer vikunni að ljúka og óðum styttist í Rhodosferð okkar hér á Kurfürstenstrasse 75. Ekki það að tilhlökkunin sé nálægt því eins mikil og þegar maður er allt árið í kulda og rigningu :) Hér er bara búið að vera svo svakalega gott veður að maður hugsar eiginlega ekkert út í það að fara til heitari landa.

Nú ýmislegt er að gerast í söngnum hjá kallinum, og þar ber kannski fyrst að nefna það að óperunámskeið sem ég sótti um í sumar var samþykkt og ég er því á leið til Lofer í Austurríki 28.júní nk til að syngja ansi erfitt hlutverk, en ég get það vel :) Nú svo fékk ég símtal í gær frá yfirmanni leiklistardeildar Hans Eisler, þar sem mér var boðið að syngja Alfred í Die Fledermaus, en þvímiður setur Rhodosferðin strik í reikninginn þar, þannig að ég þurfti að hafna því. Og svo fékk ég annað símtal sama dag, þar sem Hilmar var að segja mér að tónleikahaldarar í Gethsemanekirkjunni eiga von á Háskólakórnum og auk þeirr mun kammerkór kirkjunnar syngja. Þetta er eitthvað verk sem ég þekki ekki, og mér skilst að þetta sé flutt þann 20.maí, ég sagði að ég myndi að sjálfsögðu vilja skoða það og fá að skoða nóturnar allavega áður en ég samþykki eitthvað. Þetta er náttúrulega svolítið "last minute", en svona er það nú bara, bjóst ekki við neinu öðru. Svona virkar líka bara þessi bransi, maður verður að vera tilbúinn að stökkva inn með litlum fyrirvara.......þannig urðu allavega þessir stærstu og flottustu frægir :)

Annars er Soffía bara farin að taka á móti vinkonu sinni sem er að koma hérna yfir helgina, og búin að baka og gera allt fínt. Ég er að fara hendast á æfingu á morgun, hjá Eddy, pianóleikaranum sem reddaði mér Wagner gigginu um daginn. Hann er svakalega fínn og vill allt fyrir mann gera. Við ætlum að að renna yfir nóturnar af þessu kirkjudæmi, sem ég verð vonandi búinn að fá afrit af fyrir morgundaginn. Eins yfir hluta af "I Pagliacci", sem ég syng hluta af í sumar í Lofer, og svo líklega Florestan úr Fidelio. Allt er þetta nú eitthvað sem ég mun kannski ekki syngja á sviði strax, en það er þess virði að læra það, því þegar að því kemur, þá verð ég tilbúinn.

Ég set svo hérna lítið myndband frá síðustu helgi, þar sem ég var að syngja.
Þetta er Ideale eftir Tosti, eitt af mínum uppáhalds.

4 ummæli:

  1. Þetta er flott......er ekki bara að setja Rhodos á bið?

    SvaraEyða
  2. Nahh, ég fæ í fyrsta lagi ekkert borgað fyrir þetta, í öðru lagi er þetta leikstjórnarverkefni sem þýðir að lítil áhersla er lögð á söng....þannig séð, og svo er þetta ekkert svakalega stórt hlutverk. En væri gaman að gera ef ég væri á svæðinu til að æfa.

    SvaraEyða
  3. Nú - æ ég þurfti bara aðeins.... :) Að sjálfsögðu er það Rhodos - bara reyniði að njóta þess.

    SvaraEyða
  4. Svo er það líka mjög important að hitta Beggu frænku ...

    :-)

    Frænkan.

    SvaraEyða