Þá er langri og skemmtilegri helgi lokið, margt hefur verið gert.
Fyrst ber að nefna að tónleikar voru haldnir í Gristow, þrátt fyrir fjarveru Dísu, það var leiðinlegt að hafa hana ekki með í þessu eins og upphaflega var áætlað, en hvað getur maður gert. Þó var alls ekki síðra að fá með okkur í lið hana Eygló Dóru fiðlusnilling, sem gerði sér nú lítið fyrir og las þetta allt af blaði. Tónleikarnir fengu flott þjóðlegt yfirbragð og fólk var alveg svakalega ánægt með þetta alltsaman. Eins vorum við sem tókum þátt í þessu alveg í skýjunum með móttökurnar og hvernig þetta gekk alltsaman. Fengum fulla kirkju, og mikið lof, ekki slæmt föstudagsverk það. Svo héldum við heim á leið með frekar ömurlegri lest. Þá lærði ég soldið nýtt um lestarnar hérna. Ef maður er að fara í langferð hérna í þýskalandi á maður að forðast REI lestarnar en taka frekar ICE lestarnar, þar sem þær fara mun hraðar og stoppa sjaldnar. Nú ætlunin var að halda aðeins upp á þetta þegar við kæmum til baka til Berlínar, og ekki bara þetta heldur átti Hilmar afmæli, þannig að það var tvöfallt celebration. EN, þegar til Berlínar var komið vorum við Soffía alveg búin og fórum heim á leið í staðin, ég varð að halda uppi styrk til að syngja líka á sunnudeginum. Laugardagurinn kom og maður notaði hann til að hvíla sig fyrst og fremst, kannski aðeins að æfa sig líka :) Um kvöldið grilluðum við Soffía hérna fyrir utan með litlu einnota grilli, kjötið var ekkert spes, þó ég taldi mig nú hafa valið góðan bita. Ég skellti mér svo með Íslendingunum í bíó, þar sáum við "Iron Man", sem var bara alveg ágæt, þó ég hefði nú verið til í meiri hasar.
Sunnudagur rann upp með blóm í haga og umtalsverðum hita, þegar við lögðum af stað á tónleikana var um 27°C, og ég í svörtum jakkafötum! Það var nú samt bara í fínu lagi, og við lentum á U-bahnstöðinni á Gneisenaustrasse um kl 15:45, en þá lentum við aldeilis í veseni, það var einhver svakaleg götuhátíð í gangi og við lokuðumst nánast inni á einum tímapunkti. En við náðum að brjótast í gegn og komumst á tónleikastað um 10 fyrir 16. Ég frétti þá að ég væri fyrsta atriði eftir hlé, og því gat ég slakað aðeins á í rúman klukkutíma. Svo var komið að stóru stundinni og mér tókst bara nokkuð vel til, ég á þó eftir að skoða videóið af þessu, en ef það er sýnanlegt hendi ég því inn á youtube við tækifæri. Ég fékk allavega svakalega góða dóma frá viðstöddum, og ég get ekki annað en verið ánægður með það. Eftir þetta var svo haldið á Mexíkanskan stað við hliðina og þar var borðað, eftir að hafa þurft að bíða í rúman klukkutíma eftir matnum! Mér finnst alltaf svo hallærislegt þegar þjónustufólk afsakar sig með því að fara í vörn og segja að það sé bara svo mikið að gera! (þá á ég við á dónalegan hátt, það getur auðvitað verið mikið að gera, og það er hægt að útskýra það kurteysislega).
Eftir matinn fór Soffía mín heim á leið, dauðuppgefin en við sem ennþá höfðum orku skelltum okkur á "A-Train" sem er mjög frægur Jazz bar hérna í borg og horfðum á Jason Moran og "the bandwagon", það er langt síðan maður hefur séð eitthvað jafn magnað. Samstillingin og tónlistinn sem þessir menn náðu að framkvæma var með ólíkindum, þá stóð trommuleikari bandsins uppúr að mínu mati, og var kvöldið í alla staði vel heppnað.
Komnar eru inn nýjar myndir, og glænýtt videó, sem sjá má hér að neðan.
Jæja til hamingju með þetta allt saman.
SvaraEyðaHjó samt eftir því að þú sért farinn að fíla djazz!!
Stendur kannski til að downloada "the complete works of Benny Goodman"?
Videóið er virkilega flott hjá þér. Gaman að fá að fylgjat með ferðinni ykkar. Kv. Margrét
SvaraEyðaTil hamingju með þessa frumraun. Aldeilis var fínt að aðsóknin var góð og einnig undirtektirnar.
SvaraEyðaMjög flottur söngur hjá þér og skemmtilegt myndband :)
SvaraEyðakv. Dagný Ösp (frækna Soffíu)