Helgin er búin að vera með eindæmum góð......fyrsta rigningin í 3 eða 4 vikur. Það var nú kærkomið fyrir gróðurinn....svo er nú allt í lagi þegar rignir lóðrétt og hitastigið fer ekki mikið undir 19°C á meðan :)
Ég sagði frá því í síðustu færslu að mér hefði boðist að syngja einsöng með kór þann 20.maí nk, en ég hef nú hætt við það, og ástæðan er einföld: Ég fékk nóturnar í gærkvöldi! Fyrir það fyrsta, og þegar ég var búinn að eyða talsverðum tíma í að lesa þetta fram og til baka og skanna inn í tölvuna til að fá betri heildarmynd, sá ég að ég myndi aldrei ná að gera þetta eins vel og hægt er á aðeins 1 og hálfum degi, ég lét því tónleikahaldara vita að ég myndi þvímiður ekki taka þetta að mér. Þetta er svona stórt verk fyrir hljómsveit, kór og einsöngvara, og er í nútímalegri kantinum, sem er alltaf erfiðara að syngja, hvað þá að lesa af blaði sem er nánast það sem ég hefði þurft að gera. Ég er allavega sáttur við ákvörðunina, að auki hefðu þeir átt að reyna að koma nótunum á mig á föstudaginn, þegar ég sagðist mundi íhuga þetta, allavega þá hefði ég geti reynt að læra það!! Ég held bara að þetta með söngin séu svona "labour pains", það koma alltaf nokkur töpuð færi, en það er bara til að undirbúa stóru og flottu færin sem bíða eftir að maður verði tilbúinn :)
Soffía og Herdís skemmtu sér hið besta um helgina, og ekki annað að skilja en að helgin hafi bara verið góð. Ég rifjaði upp gamla tölvuleikjatakta um helgina þegar ég hélt áfram að spila leikinn Gears of War, sem er vægast sagt einn af þeim betri sem ég hef spilað lengi í þessum svokölluðu "shooter" leikjum. Nú svo var horft á nýjustu mynd Will Ferrel, "Semi-Pro", hún er vægast sagt EKKI góð, og ég vara fólk við að horfa á hana.
Annars gengur allt hér bara sinn vana gang, og ég á leið í söngtíma núna í morgunsárið. Já þetta er svo sannarlega lífið.
Það er ekki ólíklegt að þau fari að láta á sér kræla, stóru tækifærin. Hafið það gott á Rhodos, neglið þetta þegar þið snúið til baka þaðan.
SvaraEyða