Jæja þá er komið að þeirri stund þegar maður fer úr sólinni í sólina. Að vísu er nú búið að vera frekar kalt hérna síðan á fimmtudag í síðustu viku......líklega af því að hér er búið að vera svo mikið að af Íslendingum :) Herdís vinkona Soffíu kom í síðustu viku, líklegast bara með kuldan með sér, en svo kom Háskólakórinn líka, og hélt tónleika í Gethsemanekirkjunni ásamt kór UDK (Universität der Künste), en ég átti einmitt að syngja með þeim eitt frekar nútímlegt stykki......ég er núna feginn að ég lét ekki bara slag standa. Ég kíkti ásamt íslensku strákunum og við skemmtum okkur mjög vel, þetta var nokkuð vel sungið, þó hefði maður viljað heyra kraftmeiri söng á tíðum, sérstaklega miðað við hvað voru margir í kórnum. En í þau fáu skipti sem ég hef heyrt í HÍ kórnum hefur hann hangið í tónunum og yfirleitt ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir.....EN í þetta skipti var allt annað uppi á tengingum, og erfiðustu kórverk hljómuðu bara stórvel. Ég heillaðist fljótt af undradjúpum bassahljóm sem virtist eiga upptök sín hjá einum manni í kórnum, þvímiður fékk hann ekki njóta sín mjög mikið :) Nú eftir tónleikana sem voru haldnir í tilefni 50 ára afmælis Elísabetar, sem er kantor kirkjunnar og um leið kantor stærstu og vinsælustu sóknarinnar hérna í Berlín, að sögn Hilmars, var okkur boðið í létta veislu. Við vorum orðin sársvöng og skelltum okkur því fyrst á Mexikanskan stað rétt við kirkjuna, eftir að hafa borðað fórum við í þessa móttöku, og þar voru sungin nokkur lög. Afmælisbarnið bað sérstaklega um að "Tenórinn" myndi syngja Rósina, sem hún heyrði á Íslensku tónleikunum um daginn, og hann varð að sjálfsögðu við þeirri ósk, Hilmar lék undir. Hún var alveg yfir sig ánægð og faðmaði mig og kyssti, svo bað hún mig um nafnspjaldið mitt............!!! Sem ég á ekki, og benti bara á Hilmar, hann er með allar upplýsingar um mig. Ég hugsa þó að ég reyni að hafa samaband við hana, eða allavega koma á hana einhverjum upplýsingum, því þetta er ekki slæmt tækifæri að fá að syngja í þessari kirkju, því hún er nánast alltaf full.
Ég dreif allavega í því að útbúa nafnspjald, því maður verður víst að hafa slíkt hér í landi skrifræðis og pappírs. Nú og ekki er verra að ég er nýbúinn að endurhanna heimasíðuna mína, til að vera einfaldari og aðeins fallegri en sú gamla.
Nyja heimasíðan mín er að sjálfsögðu:
og nýja nafnspjaldið mitt má sjá hér að neðan:
Það væri að sjálfsögðu gaman að heyra hvað fólki finnst um.
Allavega þangaðtil næsta föstudag, bis später und bis bald
kallinn bara orðinn pro, nafnspjöld og læti ;)
SvaraEyðalookar vel
Hlakka til að sjá ykkur í sólinni.
SvaraEyða;)
Kv. Beck´s
Já mjög flott! Sehr pro.
SvaraEyðaHmm maður ætti jú kannski að koma sér upp svona sjálfur...