4.4.08

Nýr dagur, nýtt ýmislegt

Ég vil hérna draga eilítið úr lofinu á ræktinni sem ég er í, þó hún sé bara mjög góð til síns brúks.

Ókostir:
- Ekki fær maður lítil æfingahandklæði
- Ekki er hægt að ná sér í kalt vatn í salnum
- Ekki má raka sig í sturtunum eða búningsklefunum!!!
- Ekki eru hitablöndunartæki á sturtum
- Ekki opnar fyrr en kl 9 tvo daga í viku.
Kostir:
- Ódýrt (29,90 EUR á mánuði)
- Flott útlítandi aðstaða
- Flott og nýleg tæki
- Engin bið eftir tækjum
- Videóleiga ókeypis fyrir meðlimi (takmarkað úrval)
- Vingjarnlegt og hjálplegt starfsfólk

Þannig að ég ætla ekki að kvarta, þetta er bara öðruvísi en maður er vanur.

Hér er veðrið leiðinlegt þessa dagana, í kringum 10°, og þéttskýjað eða rigning síðan á þriðjudag. Það er þó að hækka hitinn hægt og rólega og við verðum bara að vera róleg og bíða.

Töfaldur söngtími var í gær, þar sem mér gekk bara nokkuð vel, seinni tíminn var með píanóleikara, þar sem rent var í gegnum ný lög og gömul, með sæmilegum árangri. Framundan er svo að öllum líkindum léttir tónleikar með Hilmari Erni, þar sem búið er að biðja okkur að flyta músík á "Nordischer Klang" sem er mjög stór og merkileg tónlistarhátíð sem haldin er hérna í Þýskalandi. Ég vona að það gangi allt saman eftir, þarna verður meðal annarra Ragga Grönd, og einhverjir flreir pappírar úr íslensku listalífi. Þetta er þó ekki ákveðið, en gaman að vita af þessu. Við komum fram 8.maí að öllum líkindum.

Um helgina er stefnan tekin á að kíkja á íslenskan karlakór (Kjalnesingar) sem er hér í einhverri opinberri heimsókn, auk þess að kíkja aðeins í bæinn með Soffíu. Svo í kvöld er Íslendingafélagið eitthvað að fara hittast eins og venjulega einusinni mánuði að ég held, og ég er að hugsa hvort maður kíki á það.

Ekki var það fleira að sinni, verið þið sæl.

2 ummæli:

  1. Er að borga svipað á mánuði í ræktina hérna:
    -ekkert handklæði
    -Ekki blöndunartæki
    -vatn með klórbragði

    Kostir
    -25 m innilaug
    -flottur tækjasalur sem enginn er í
    -stutt að heiman
    -videoleiga (ég skil það samt ekki alveg. Er greinilega allsstaðar nema á Íslandi)

    SvaraEyða
  2. Mín rækt er talsvert dýrari hér í Salzburg, en það má segja að kostnaðurinn fari í að greiða upp ókostina.

    Ókostir:
    - Frekar dýrt 60 evrur á mánuði.
    - Engin Videoleiga. :)

    Kostir:- Maður fær 2 lítil æfingahandklæði + venjulegt.
    - Hægt er að ná sér í kalt vatn í salnum
    - Það má raka sig í sturtunum, búningsklefunum eða gufunum!!!
    - Það eru hitablöndunartæki á sturtum
    - Opnar klukkan 7 alla daga vikunnar.
    - Flott útlítandi aðstaða
    - Flott og nýleg tæki
    - Engin bið eftir tækjum
    - Vingjarnlegt og hjálplegt starfsfólk

    SvaraEyða