Elstu börnum refsað mest (tekið af MBL)
Frumburðir bera meginþunga af agaviðurlögum foreldra sinna, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birtist í Economic Journal. Komust vísindamenn að því að yngri börn í fjölskyldu þyrftu mun sjaldnar að þola refsingu en þau elstu.
Leiðir þetta til þess að öðru, þriðja og fjórða barni í fjölskyldu hættir til að leiðast af réttri braut þegar aldurinn færist yfir. Segja skýrsluhöfundar þau líklegri til að hætta í skóla, neyta áfengis eða eiturlyfja eða eignast börn á táningsaldri.
Ekki frá því að þetta sé nokkuð rétt :)
Búið er að henda okkur inn á dagskrá Nordischer Klang
Áætlað er að hittast á morgun til að fara æfa eitthvað fyrir þetta, og maður er að lesa og læra texta fyrir tilefnið, það er stórgaman auðvitað :)
Sem fyrr er veðrið hérna eins og í leiðinilegustu lygasögu sem samin hefur verið, rigning, rigning og aftur rigning. Það er eitthvað að hlýna, og við megum eiga von á þrumuveðri á morgun eða um helgina. Þetta er náttúrulega bara stórkostlega frábært, svo ekki sé meira sagt.
Ekki gengur mikið né rekur í þyngdartapi, þrátt fyrir stífar æfingar og markvisst matarprógram, það er ekki nógu hvetjandi, en það að mér líður betur segir meira en mörg orð, því verður þessu haldið áfram þar til ég fer að æla blóði af ofreynslu. Söngur er allur að koma til, og í gær rendi ég yfir mjög erfiða aríu úr óperunni Le Cid eftir Massenet. Mjög falleg og frekar erfið. Ég er loksins að sjá fyrir endan á ákveðinum raddlegum erfiðleikum, og það er vissulega bjartara framundan með blóm í haga. Svo er David auðvitað að koma í næstu viku, og þá fæ ég vonandi sérstaka innspýtingu. Ég ætla að reyna að taka það upp á Videó, og ef það er sýnanlegt, þá birti ég kannski smá brot frá þessu öllu saman.
Í lokin birti ég hérna í anda karls föður míns, litla vísu,
Hvað er ég?
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
Ekki er ég valin úr hópum kvinna,
tilheyri samt, án þess að vinna.
Lítið ég gef nema kærleik í hjarta
Tek mér það leyfi aðeins að kvarta
þegar ég þarf þess því þannig ég lifi.
Hræðslu ég vek þó sumum í huga
þó er ég saklaus en næ fólk að buga
gefðu mér ást þína, líf og hjarta
ég hef mér þá eitthvað í lífin'að skarta.
því að ég þarf þess og þannig ég lifi.
-------
"......Leiðir þetta til þess að öðru, þriðja og fjórða barni í fjölskyldu hættir til að leiðast af réttri braut þegar aldurinn færist yfir. Segja skýrsluhöfundar þau líklegri til að hætta í skóla, neyta áfengis eða eiturlyfja eða eignast börn á táningsaldri."
SvaraEyðaSýnist þér það já?? hnuss!
Rigningin er góð fyrir gróðurinn Egill minn... og svo er þrumuveður bara kósí!
Ekki veit ég til annars en að þið neytið öll áfengis, þannig að þetta er þegar orðið rétt :)
SvaraEyðaRigning ér góð fyrir gróðurinn er eins og að segja að brúnkukren í óhófi sé góð fyrir´húðina :)
..og bíddu ekki þú?
SvaraEyðaannars held ég að það sé verið að tala um óhóf að einhverju leyti..
Skal nú viðurkenna að ég er hálf lost í vísnagátunni - enda ekki mín sterkasta hlið.
SvaraEyðaFyrsta gisk er þó ástarengillinn - Amor eða var hann kallaður Cupid?
Hvað varðar frumburðaryfirburðinga styð ég þetta pottþétt. Vítin eru til að varast þau ;)
Er kvenkyns
SvaraEyðavinnur ekki
gefur kærleik
lifir á því að kvarta
sumir hræddir við hana
nær að buga suma en er saklaus – lifir á ást, lífi og hjarta annarra
Fáir virðast vera að reyna við þetta - því spyr ég:
- er þetta lífvera eða hugmynd?
Nokkuð ítarleg lýsing á Nordischer Klang - verður örugglega ekki leiðinlegt.
Deilur sem hér má sjá um mun á börnum eftir fæðingarröð læt ég mér í léttu rúmi liggja - sérstaklega þegar menn eru farnið að blanda áfengisneyslu inn í þá umræðu.
- er þetta frumort.
Ég get alveg látið eina tillögu flakka, en kýs að gera það ekki að svo stöddu?
Það er sérstök gáta að raða atugasemd minni hér að ofan í rétta tímaröð svo hún virki ekki alveg vitskert. (betra að halda því til haga :))
SvaraEyðaÞetta er að sjálfsögðu frumort!
SvaraEyðaLífvera eða hugmynd er þetta í raun hvorutveggja, svosem eftir því hvernig litið er á :)
Það er augljóst að Þorvaldur, Guðný og Binni eru looserar skv þessari rannsókn og það er bara fínt fyrir mig, sem ég er heilbrigðin uppmáluð og þekktur bindindismaður.
Menn eru ekki ýkja nálægt því að brjóta í öreyndir vísuna eftir Egil Davíð Stefánsson Pálsson :)
Einmitt. Brautin var vissulega rudd fyrir okkur en það að geta lært af mistökum annarra er kostur.
SvaraEyðaLausn gátunnar er grætlega létt. Greinilega ekki fyrir alla samt. Hlýtur að vera afþví að ég er í mastersnámi
Þetta er svo easy að ég gæti grenjað ...
SvaraEyðaog er ég ekki í mastersnámið
;)
Ég leyfi mér hér með að skora á þá einstaklinga sem hér hafa lýst yfir því, að lausn ofangreindra vísna hafi reynst þeim leikur einn. Það er talað um 'grætilega létt' og 'dead easy' í því sambandi. Nú er bara að leyfa þeim sem lítillátari eru að fá að njóta afraksturs þeirra andlegu yfirburða sem fram eru taldir.
SvaraEyða