20.4.08

Mínir menn sigruðu!

Bayern Munchen er bikarmeistari í Þýskalandi eftir að hafa sigrað Borussia Dortmund 2-1 eftir framlengingu. Hér var gífurlegur fagnaður í gær og reyndar allan daginn, fólk í gulum og rauðum fótboltabúningum troðfylltu bæinn með tilheyrandi drykkjulátum og gleði. Það var skemmtilegt að kíkja aðeins í bæinn í gær og kynna sér þetta alltsaman. Við Brandenborgarhliðið var búið að koma fyrir risa stórum skjá (á stærð við hliðið sjálft þar sem sýnt var beint frá leiknum). Undirritaður komstþvímiður ekki að sjá þennan viðburð :)

Ég fór hinsvegar í tíma hjá kennara(coach) við Hans Eisler tónlistarháskólann, og hann sagði bara hreint út að kennarinn minn væri augljóslega að gera góða hluti, og hann heyrði ekki oft í söngvurum sem væru tæknilega svona vel staddir, ég var auðvitað mjög ánægður að heyra það. Hann bauð mér einnig að syngja í einhverju svona "heimahús partýi" sem eru víst algeng hérna, þar sem vel stæðara fólkið heldur svona tónleika heima hjá sér og býður nemendum að koma fram, hann sagði að þetta borgi ekki neitt, en þetta fólk er gamalt og ríkt, og vel tengt, og því gæti þetta verið góður leikur. Þetta er semsagt óperettuþema, og ég á einhver stykki þar, því ætti þetta að ganga vel. Hann vill semsagt endilega vinna mér mér meira, og það eru góðar fréttir fyrir mig.

Eftir tímann fór ég að hitta strák sem ég vann með fyrir 2 árum, hann var hér í vinnuerindagjörðum, og við mæltum okkur mót á litlu kaffihúsi, hann bauð mér upp á bjór og við spjölluðum aðeins. Á leið minni að hitta hann rakst ég á þetta hérna:

Þetta er semsagt rúta félaga minn í Bayern Munchen, fyrir framan hótelið þar sem þeir gista.

Þarna var hópur af fólki saman komin til að fagna þeim félögum, þetta var þó áður en leikurinn hófst.

Veðrið í dag er með allrabesta móti.....hingað til allavega, og við Soffía tókum góðan hjólatúr um okkar næsta nágreni. Það er ekki alveg orðið nógu sumarlegt ennþá, en dagurinn í dag ber fyrirheit um góða tíma.

Frumorta vísan mín vekur viðbrögð sem er gott að sjá. Þó hafa vissulega sumir einstaklingar ósanngjarnt forskot á aðra sökum menntunarstigs eða annars sem ekki er þorandi að nefna. Ég er ánægður með það að fólk hefur ekki séð sig tilneytt til að setja út á bragarhátt eða annað sem heitir svipað bjánalegum nöfnum. Þar sem ég er skápavísnahöfundur, og geri þetta ekki allajafna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli