Já það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá síðasta bloggi mínu. Það vatn sem helst um ræðir er söngvatn......(no pun intended). Ég sagði frá því í síðustu færslu að það stæði jafvel til að ég syngi eitthvað óperettudót þarnæstu helgi ,og ég var farinn að undirbúa hvað ég ætlaði að syngja og farin að taka allt til, svo hitti ég konuna sem er að sjá um þetta í í dag, og þar var ákveðið það sem ég ætla að syngja, sem ég taldi nú ekki vera mikið mál þar sem ég hef jú viku til að læra textana og gera þetta almennilegt............en hvað haldið þið? jú jú þetta er barasta núna á sunnudaginn!!! Og ekki nóg með það, þetta er í Minden, sem er um 350km vestur af Berlín! Þetta þýðir að ég þarf að leggja af stað eldsnemma á sunnudagsmorgun (sem eyðileggur fyrir mér partýið á laugardaginn), ég fæ sem betur fer far. En það er sama, þetta er langur tími í bíl, og gert er ráð fyrir að fara kl 10 um morguninn og koma heim kl 22 um kvöldið. Ég er að sjálfsögðu ekki kominn með allt mitt utanbókar og því hefst barátta næstu daga að berja þetta inn í hausinn á mér. Púff, jæja, en þetta er svosem það sem ég er að gera hérna, láta til mín taka á söngsviðinu. Nú svo kom upp skemmtileg hugmynd í dag, um að ég gæti hugsanlega tekið að mér baritónhlutverk í Fledermaus, sem nemendur í Hans Eisler skólanum eru að fara setja upp, það væri vissulega gaman að gera það, en auðvitað er þetta bara skemmtileg hugmynd eins og er.
Söngtími hjá Janet á morgun, og þá gerist vonandi eitthvað stórfenglegt, ef ekki þá bara næst. Hér er bara loksins að koma sumar, og ég fagna því á hverjum degi, þó lítur laugardagurinn ekki nóguvel út, sólarlega séð, en hitinn verður fínn, og kannski gæti ringt sem væri leiðinlegra. Við erum búinn að bóka bílaleigubíl á föstudag og laugardag, bara til að geta gert öll innkaup snarlega og örugglega. Þetta verður létt veisla hjá okkur byggð að mestu á brauðréttum. Þeir eru alltaf góðir.
Nú er bara að vona að allt fari vel og allt gangi upp.....eins og venjulega :)
On the road - er það ekki það sem þetta snýst um? Spennandi líf og vonandi upphaf að öðru meira. Ég held að það verði raunin.
SvaraEyðaJæja og hvað gerðist svo í tímanum hjá Janet?