Hitastigið þegar þetta er ritað (um 18:30) er 25°, í forsælu, hvorki meira né minna, þessu má ekki rugla við 25° sem Ásgeir Páll fær hjá sér með því að láta hitamælirinn liggja í beinni sól :). Þannig að við erum auðvitað í skýjunum yfir þessum hita. Það er varla að maður trúi því að svona verði þetta í sumar, og það sem meira er, hægt að treysta á þetta að mestu!

Frúin að sóla sig og hitamælirinn sem sýnir meiri hita úti en inni, það er óvenjulegt að sjá :)


Búið er að setja general á Nordischer Klang tónleikunum, og hana ætlum við að halda í Hans Eisler hérna í Berlín, 7.maí nk kl 19:00, allir eru auðvitað velkomnir að koma og hlusta, okkar er ánægjan.
Í matinn í kvöld verður "Pasta con Pesto alla Genovese"
Frúin að sóla sig og hitamælirinn sem sýnir meiri hita úti en inni, það er óvenjulegt að sjá :)
Það er eins og hér hafi nánast allt sprungið út yfir helgi og borgin er að byrja að skarta sínu fegursta. Þó eru nú einhverjar trjátegundir sem eru seinar að taka við sér og laufgast ekki strax, en það sem er komið er alveg nóg.
Síðast tími hjá Janet var mikið breakthrough fyrir mig, sérstaklega til að sanna fyrir sjálfum mér að kannski get ég gert þetta á consistant basis (veit ekki íslenska orðið yfir þetta) þeir sem vita mega kommenta, gjarnan. En þessi uppgötvun felst aðallega í því að læra að halda raddböndunum almennilega saman, meðan sungið er upp í gegnum passagioið (mið c til Fís) og svo auðvitað áfram upp. Ef þetta er ekki gert, rétt, þá er hætt við að maður kafni á tóninum, þetta er einmitt allra stærsta hindrun í vegi tenóra almennt, og því var þetta mikið gott fyrir mig að fatta þetta loksins. EN! þetta er náttúrulega ekki komið ennþá, nú þarf að vinna þetta áfram og fá þetta til að verða hluti af eðlilegu söngviðbragði. Það er auðvitað fullmikið einföldun að segja að þetta sé lykillin, þar sem margt annað þarf að vera í góðu lagi áður en þetta finnst, eða vinnst, en þetta er lykillinn hjá mér þessa stundina.
Búið er að setja general á Nordischer Klang tónleikunum, og hana ætlum við að halda í Hans Eisler hérna í Berlín, 7.maí nk kl 19:00, allir eru auðvitað velkomnir að koma og hlusta, okkar er ánægjan.
Í matinn í kvöld verður "Pasta con Pesto alla Genovese"
Nú fleira verður þetta ekki í dag..............veriði sæl.
Gleðilegt sumar sömuleiðis og gaman að heyra að allt gengur vel.
SvaraEyðaÍ kvöldmat hjá okkur er eitthvað pönnuhakk með gulum baunum og hrísgrjónu - með nógu af kryddi
kvöldmatur... boost hérna megin (skyr,mjólk og frosnir ávextir) namm namm !
SvaraEyðaGaman að heyra hvað allt gengur vel!
Ég bið þó bara um rigningu næstu 20 dagana eða svo, og svo má sumarið koma !
Gleðilegt sumar hjá þér, gleðilegan vetur hjá mér
SvaraEyðaÞegar þetta var lesið var ég að renna niður knorr núðlum úr dós með líbönsku brauði með skinku og osti. Í kvöld eru svo kjúklingabringur.....í langfyrsta skiptið á þessu ári.