28.4.08

Inn og útúm gluggan, langt síðan maður hefur bloggað

Viðburðarríkri helgi er nú lokið, og við er tekin undirbúningur á næstu törn.

Helgin hófst á því að ég sótti bílaleigubíl á föstudeginum, því það átti að nota hann til að versla inn fyrir veisluna, og bara til að létta okkur lífið almennt á föstudeginum og laugardeginum. Nú ég sótti bílinn kl 16, sem var alveg hrikalega ljótur og ömurlegur gömlukonubíll að nafni Nissan Micra....!!! En hann virkaði, og það var svosem það sem skipti máli þarna. Hóptími var hjá Janet, þar sem ég söng tvö lög til að undirbúa tónleika sem nokkrir nemendur Janet eru að fara syngja 11.maí næstkomandi. Mér gekk ekki vel, þó aðrir hafi sagt annað, en það er á endanum mín skoðun sem ræður eins og venjulega :) Þó komu margir góðir punktar sem ég gat nýtt mér. Við Soffía hentumst svo í Kaufland til að gera innkaupin fyrir partýið, við settum um 130 EUR í þetta, sem var nokkuð vel sloppið, miðaðvið að við vorum með mest allan matinn, 5 flöskur af rauðvíni og 3 flöskur af freyðivíni í pakkanum. Um kvöldið notaði ég svo bílinn til að kíkja í partý til Dísu á Torstrasse, það var nú meira meira, ég segji nú ekki annað, en ég er bara ekki vanur svona partýstandi, og því er það eflaust eðlilegt, ég er eiginlega fegin að vera ekki partý týpan. Nú nú en ég stoppaði nú ekki lengi, þar sem stór dagur var framundan. Var kominn heim rétt fyrir 12 á miðnætti, og fór að sofa fljótlega eftir það. Svo var vaknað í aldeilis dýrindisveðri um 10 leitið, og keyrt af stað með fullt af endurvinnslu plastflöskum osfrv. Haldið var fyrst í Getränke Hoffman, sem er svona drykkjavörubúð. Þar fékk ég 10 evrur fyrir flöskurnar sem ég skilaði inn og keypti einn kassa þarf af bjór til viðbótar auk 2 kippur af minni bjór í flöskum. Þetta kostaði mig ekki nema um 15 evrur. Svo var farið í Reichelt, sem er svona Nóatúnið hérna hjá okkur, til að versla það sem uppá vantaði. Einnig fór ég með um 40 plastflöskur í endurvinnsluna í leiðinni og gat verslað það sem okkur vantaði fyrir það sem fékkst fyrir það. Svo var bara haldið heim á leið að slaka á meðan Soffía þreif og sá um matinn, reyndar tók ég nú duglega til í tölvuherberginu mínu og gerði einn af réttunum sem var í veislunni, en að öðru leiti gerði ég ekkert, og töllti mér meira segja á hverfispöbbinn til að fá mér einn öl og sitja í sólinni, á meðan ölið okkar fór í frysti til að kólna nógu hratt.

Veislan kom og mættu flestir sem ég bauð, og stemmningin var bara rosalega fín og fólk borðað almennt vel, en drakk heldur minna :) Fólk var svo bara farið um miðnætti, en íslendingarnir voru eftir og við horfðum á nokkur vel valin myndbrot af óperutengdu efni á Youtube, ásamt því að kryfja málin til mergjar, eins og gerist. Daginn eftir var ég svo að fara syngja og þurfti að taka lest í rúma 3 tíma til að komast þangað. Lestin fór kl 10:30, og þegar ég vaknaði var ég svo þunnur að mér hefur sjaldan liðið eins illa! Ég passaði mig að drekka ekki mikið (4 rauðvínsglös, 4 kampavínsglös), ekki mikið eins og sjá má, en vanlíðanin sem fylgdi var slík, að ég svitnaði og var snjóhvítur og hélt engu niðri..........og ég var á leið í 3 tíma lestarferð með fólki sem ég þekkti nánast ekki neitt!! og að syngja fyrir fólk sem ég vissi ekkert um. Verulega skemmtilegt það, en ég náði þó að sofna rétt aðeins í lestinni og leið aðeins betur við það. Þegar við komum í þetta ágæta heimhús, sem myndi sóma sér vel fyrir 20 manna fjölskyldu, þá frétti ég að við vorum að fara syngja fyrir Wagner félagið í Minden, sem, fyrir mig sem léttan Helden tenór var auðvitað mjög góð kynning. Þrátt fyrir líkamlegt ástand mitt, hef ég sjaldan sungið eins vel og verið eins solid. Þetta er að vissuleiti gott, og ég hafði vissan grun um að þetta myndi ganga svona vel. Því ég hef áður sungið þegar mér leið illa, og þá gekk mér stórvel. Þetta segir manni að þegar allt annað bregst, þá er það góð söngtækni sem bjargar :) Ætli ég sé bara ekki með góða söngtækni :)

Allavega var ég ausin lofi, og fólk grenjaði í salnum......osfrv allt sem við sem söngvarar viljum geta gefið fólki. Konan sem skipulagði þetta vildi svo bjóða mér á Wagner hátíðina í Bayreuth, sem ég var einmitt búinn að fara á (í fyrra), og vegna þess að ég hef áður verið styrkþegi (Stipendaten, heitir það víst), þá mátti ég það ekki. Sem er svosem allt í lagi, það á að leyfa sem flestum að prufa þetta. Allavega, við komum svo heim um kl 21:30 um kvöldið, og ég var kominn með matarlystina aftur og fékk mér sushi til að fagna því. Þessir tónleikar voru teknir upp á videó, og ef ég tel að sé sýningarvænt mun ég henda því inn á youtube við tækifæri, og birta hér á síðunni.

Fyrsti tíminn minn hjá David Jones var í dag, og sem fyrr var það mikið breakthrough, lærði tvö merkileg hugtök sem ég hafði ekki heyrt áður. Marsbúaröddin (sem er ætlað að hjálpa manni að halda raddböndunum saman) og svo hjtt hugtakið, að lyfta ekki tungurótinni heldur að ýta henni létt fram á við og niður!!(hljómar eflaust hættulegt fyrir raddpúrítana, en þetta svínvirkar fyrir sumar raddir, og sem betur fer hef ég kennara sem skilur það). Svo var sest út seinni partinn og tekinn einn öl á línuna og létt spjall. Allt í allt súperfín helgi, og ég hefði getað skrifað mun meira hérna um hana, en læt hér staðar numið. Næsti tími hjá David er svo á miðvikudag, en þá má búast við öðru bloggi frá mér. Í millitíðinni getur fólk yljað sér við nokkrar ljósmyndir sem eru nú komnar inn, nýjar, á myndasíðuna mína.

Viel spass

1 ummæli:

  1. Allt er þetta afskaplega skemmtilegt að lesa. Það má velta fyrir sér 2. kafla sem hefst á: "Veislan kom......"

    SvaraEyða