Jæja, þetta er hætti að vera fyndið fyrir svona 2-3 vikum. Nú er símakallinn búinn að koma, og ég er í raun kominn með tengingu.......eða svo heldur maður allavega. Þar sem ég er ekki enn búinn að fá rétta routerinn. Hann á sko að koma með póstinum í þessari viku, þá kemur fyrst í ljós hvort þetta virkar eða ekki. Ég er ekki viss um að ég nenni að taka þann slag ef þetta er ekki í lagi, en ég ætla bara að treysta því að það sé svo.
Mér finnst ég bara verða þreyttari og þreyttari með hverjum deginum sem líður, þetta er svona eins og að klífa fjall og sjá alltaf nýja hæð eftir eftir nýja hæð. Mig langar að fara prófa að klífa eitthvað annað fjall til tilbreytingar, og þetta módem er síðasta hæðin, og það skal andskotann koma á morgun!!!!
Annars er það að frétta héðan að það er orðið talsvert kaldara en á síðustu dögum, og jefnvel svolítið rigningalegt. Það er svosem allt í lagi, ekki drepst maður af smá vætu :)
Nú ekki bætir úr skák að ekki hefur verið að ganga allt of vel í söngtímum, er alltof stífur og byrjaður að frosera allt of mikið aftur, ég tel að það megi rekja þetta allt saman til ofsaþreytu sem ég þjáist nú af vegna álagsins við að koma öllu heim og saman. Ég merki það meðal annars í því að ég steinsofna nánast strax og ég leggst á koddann, það hef ég t.d aldrei gert!
Ég fann í dag upptöku úr fyrsta tímann sem ég fór í hjá David Jones í London 26.apríl 2003, ekki hægt að segja annað en ég heyri smá mun :) Það er vissulega gaman að heyra árangur, og þannig er það nú víst bara að læra að syngja tekur tíma, þrotlausar æfingar, staðfestu og sterkan vilja. Kannski hendi ég einhverju hérna inn þegar netið verðu komið í gagnið.
Nú við fórum út að borða á Sushi-Circle í tilefni afmælis míns á þriðjudaginn, það er víst "all-you-can-eat" alla daga frá kl 17 til lokunnar, á þessum stað, og það var því tekið hraustlega á því. Ágætis sushi, en jafnast ekki á við fína staðinn á Amsterdam Ave, í NY. Fínn afmælisdagur og ágætis endir án honum.
Biðst afsökunar á frekar neikvæðu bloggi þetta skiptið, en einhverstaðar verð ég að setja þetta, þýðir ekkert að byrgja þetta inni.
ég segi nú bara eins og spekingurinn sagði í gær: per aspera ad astra ;)
SvaraEyðaOk bjúrókratið í Þýskalandi er slæmt en jafnast það á við idiótana í Símanum - þe. sölumennina og þjónustuaðilana?
SvaraEyðaBlessaður bjórinn hjálpar nú samt of til við að slaka aðeins á. Þið verðið bara að fara eitthvert um helgina og slappa af. Taka smá frí. Sjálfur er ég nú búinn að vera í fríi síðan 21. des
SvaraEyða