28.12.10

Síðasta blogg ársins 2010

Mér leiðist að geta ekki endað síðasta blogg ársins á eins jákvæðum nótum og hægt er, en mun samt reyna. Þetta er reynar næst síðasta blogg ársins, þar sem ég á eftir að henda inn stutta samantekt fyrir árið, það kemur fyrr en seinna :)

Ég var að frétta frá hinum tenórnum í húsinu hérna að hann muni fara með aðalhlutverkin í öllum 4 uppsetningunum á næstu leiktíð. Þetta þýðir semsagt það að ég mun ekki fá að spreyta mig á einu aðalhlutverki, eins og hafði verið ýjað að við undirritun samningsins. Talað var um Belmonte í Flóttanum úr kvannabúrinu eftir Mozart. En það er ekki á dagskrá!! Það hefði svosem þá bara átt að bjóða mér eitthvað annað í staðin. Ég lít á þetta sem hrein og klár svik, og hef ákveðið að endurnýja ekki samninginn minn hérna um fleiri ár, þ.e ef þeir vilja á annað borð hafa mig. Ég er mjög vonsvikinn, því þetta hægir á öllu í kringum mig, því nú hef ég ekkert á efnisskránni til að koma mér á framfæri. Ég hef því ákveðið að öllu óbreyttu er ég hættur í þessu rugli (söngnum í þýskalandi). Tilfinningalegur rússíbani sem ég má bara hreinlega ekki við lengur, ég er orðinn þreyttur og pirraður og það er ekki gaman að eyða flestum dögum ársins í því ástandi, sama hvað hver segir. Betra er þá bara að geta notið þess að vera með fjölskyldunni, og vinna einhverja góða vinnu sem maður þarf ekki stöðugt að vera með heima hjá sér. Eftir síðustu fréttir er þetta auðveld ákvörðun og satt best að segja er ég nánast búinn að vera leita að ástæðu til að hætta þssu bara. Hvað tekur við??? Eg veit það ekki, og það er fínt, en allavega að vera búinn að taka ákvörðun er útaf fyrir sig stór áfangi.

Næst tekur svo við Nótt í Feneyjum á afmælisdaginn minn í Febrúar, svo hefst Candide í Mars og svo er það La traviata.

Ég held áfram að vinna sem áður og mun ekkert gera það með hangandi hendi, það hjálpar til að vita að ég þarf ekki að vera fullkominn, því ég er hvort sem er að hætta og mér gæti ekki verið meira sama, vonandi léttir það eitthvað stressið.

Jólin voru mjög góð, allt of stutt, sú litla naut þess að miklu leiti, helst þó að hún er búin að fatta að biðja um "bara eitt í viðbót" sem þýðir súkkulaði :) Hún fékk fullt af flottum pökkum og var rosalega glöð. Hún hefur látið ljótréð alveg í friði sem er stórmerkilegt. Hún lét líka alla pakkana undir trénu í friði. Spurning hvort hér sé um aðhaldsríkt og gott uppeldi að ræða?? :)

Jóladagur og annar í jólum fóru í lærdóm hjá mér sem var ekki það skemmtilegasta sem ég gat hugsað mér að gera þessa daga, en ég kom miklu í verk og það léttir aðeins undir. Þó tók maður frá smá tíma með fjölskyldunni til að fara út á snjóþotunni, ég hendi inn vídeói af því við tækifæri.

Hér er tvær vetrarmyndir í lokin
Úti að róla í ískulda annan í jólum
Fullt af snjó eins og sjá má

25.12.10

Jólin á Bies - Frohe Weihnachten

Nokkrar myndir eru komnar inn frá Jólahaldi. Blogg kemur síðar.

Gleðilega hátið kæra fjölskylda og vinir

20.12.10

Berlín, vinningsferðin

Þá erum við komin til baka úr langþráðu "fríi", ég segi það svona vegna þess að þetta var ekki mikið frí. Einhverjir kunna að hlæja að þessu af tveimur ástæðum, annarsvegar vegna þess að fólk skilur ekki að það sé flókið að fara í frí þegar við erum bara 3, og hinsvegar vegna þess að Júlía er orðin rúmlega 2.ára og ég giska á að þeir sem hafa einhverntíma þurft að eiga við börn á þeim aldri viti hvað er verið að tala um. Við vorum skítþreytt eftir hvern dag. Ekki svo að skilja að við höfum ekki notið þess, en maður stendur sig að því að óska sér að við værum bara tvö að fara í smá helgarferð án Júlíu. En svona er þetta bara. Sú litla held ég að hafi nú notið þess, ég vona það allavega. Hún er búin að vera fá jaxla og hefur það valdið miklum og snöggum veikindum ásamt miklum niðurgangi og tilheyrandi pirringi. Soffía hefur líka verið að þjást af kvefi og því var ekki sérstaklega mikil tilhlökkun í loftinu eftir þessari annars langþráðu ferð.

Best Western Hótelið var í fáum orðum sagt lélegt, starfsfólk var vingjarnlegt og morgunverðurinn var bara mjög góður, en herbergið var ömurlegt, auk þess að vera við umferðargötu og götu þar sem sporvagn fór um á 20 mín fresti eldsnemma fram á kvöld. Við höfðum það nú samt af, og fórum, næsta dag, á næsta hótel, sem ég hafði ákveðið að yrði bara líka Best Western en nálægt Alexanderplatz(pöntun gerð ekki vitandi hvernig keðja þetta væri). Svosem ekkert ömurlegt, en samt ekki nógu gott. Þjónustan var sem áður fín. Við kíktum á jólamarkað í Gendarmenmark, og hann var mjög fínn sem áður. Þó var eitthvað minna af almennilegum varningi til kaups, og heldur meira af allskyns stöðum til að setjast inn á og borða. Við komum við í Ostabúðinni eins og fyrri ár og keyptum rosalega góða osta. Þeir sem hafa smakkað þetta kannast við gæðin :) Nú auðvitað var líka kíkt í sushi á uppáhalds staðinn okkar við Kochstrasse/Checkpoint Charlie, það klikkaði ekki frekar en áður.

Í dag var fór ég svo í tíma hjá Wolfgang, og svo fórum við að versla inn hamborgarhrygg fyrir jólin. Við fórum í Karstadt þar sem við fengum þennan líka flotta hrygg í fyrra. Og viti menn sama merki var til og það var að sjálfsögðu fjárfest í nánast 3kg stykki. Þetta er bara matur sem er alltaf góður og ekki dýr, það er því ekkert að því að eiga smá af þessu :) Tuborg Jólabugg og smá jólabjóra sampler var einni keyptur á sama stað, og svo var haldið heim á leið til Görlitz. Ferðin gekk vel, en það verður einhver bið á að við nennum þessu aftur með ungfrúnna. Hún er afskaplega erfið og það er bara að versna. Kannski er það okkur að kenna, og kannski er þetta bara svona þrátt fyrir okkar bestu viðleitni. Maður veit það ekki, en við reynum að gera okkar besta sem í raun það eina sem hægt er að gera.

Við erum búin að kaupa inn stórt og fínt jólatré og verður það líklega skreytt með viðhöfn á næstu dögum. Ég sakna þess eilítið að fara ekki í gott skötuborð með fjölskyldunni, en svona er það nú víst. Maður fær bara engu ráðið.

Framundnan er svo gífurlega stífur lærdómur, vegna Óperuballs sem verður 12.Febrúar nk, ég þarf að syngja glettilega erfiðar aríur og tvö samsöngsatriði úr Nótt í Feneyjum. Fyrir þá sem muna, þá söng ég í sömu óperettu í Íslensku óperunni fyrir nokkrum árum. En það eru 2 tenórhlutverk, og auðvitað þarf ég að syngja það sem ég hef aldrei áður sungið!! Vissulega gott en líka afar slæmt, þar sem við höfum lítin tíma til að undirbúa okkur og þetta er mikill texti!! En vonandi gengur þetta allt upp að lokum.

Úti snjóar lárétt og spáð er vonsku veðri hérna í nótt og á morgun. Ég er að fara á hardcore æfingu í fyrramálið, þannig að það er kannski rétt að setja punktinn hérna.

12.12.10

Jólin koma, jólin koma, kuldi heimsókn og snjór.

Jólatréð á Jólamarkaðnum í Dresden
Eftir að hafa sungið á 6 jólatónleikum það sem af er Desember (4 eftir), verð ég að segja að ég er ekki kominn í jólagírinn. Jólatónleikarnir hér á bæ eru ekki beint það sem hægt er að kalla jólalegt, allavega ekki miðað við Jólatónleika Skálholtskórs. Þetta er reyndar ekki mikið jólalegt ef frá er talin "Nóttin var sú ágæt ein" sem fær alltaf mikið klapp. Tónleikunum er reyndar lokið með samsöng á lögum eins og "O du fröhliche, Alle Jahre Wieder, O Tannenbaum og Stille Nacht", þar af þekki ég tvö, eflaust kannast þeir sem mér eldri eru við hin tvö. Tónleikarnir hafa gengið vel og ekki hægt að kvarta yfir aðsókn, þar sem uppselt er og hefur verið á alla tónleika í Desember.

Sísi, tengdó, kom hér í heimsókn í byrjun Desember, og kom með hangikjöt, appelsín, púðursykur og sitthvað það sem mikilvægt er til jólahalds og ekki fæst hérna í þýskalandi. Það var ótrúlegur léttir. Við áttum ótrúlega fínar stundir, og skelltum okkur meðal annars til Dresden á jólamarkað, sem er einn sá flottasti sem ég hef séð. Markaðirnir í Berlín eru bara drasl miðað við Dresden! Við drukkum Glühwein, og enduðum svo á að kaupa okkur eina flösku af Glühwein frá Nürnberg, sem er talinn einn elsti jólamarkaður þýskalands, það var svakalega gott! Mér hefur aldrei þótt þetta glöggsull gott, en þetta er eins og Sushi, ef maður fær ekki almennilegt og gott glögg þá er hætt við að maður vilji ekki smakka aftur. Einnig var prufað að kaupa síld hér úti í kjörbúð og bragðast hún bara eins og það besta sem maður hefur smakkað, maður þarf nú reyndar að borga fyrir það, en ef maður er á þeim buxunum þá er þetta fínt. En það sem vantar til að hafa með síldinni er rúgbrauðið. Það var svosem ekki að spyrja að því en tengdó henti þá í rúgbrauð og var það svo borðað með bestu lyst ásamt síldinni.

Hér hefur snjóað og snjóað og manni líður bara eins og væri maður staddur á Íslandi. Hér hefur líka frosið allsvakalega, þó hitastigið síðustu daga hafi verið ásættanlegt (í kring 0 gráður).

Júlía litla er komin með hor í nös og ljótan hósta aftur, ég vona að þetta verði þó að mestu farið fyrir jól, þvi þetta er alveg hræðilega leiðinlegt, bæði fyrir hana og okkur. En annars gengur allt vel. Við fórum með hana í tveggja ára skoðun um daginn, og fékk hún góða einkun, sem var svosem vitað fyrir fram þar sem við erum ekki heimskingjar, og það er augljóst að hún getur allt sem hún þarf og á að geta á þessu aldursstigi. Samt sem áður, þá var hreinlega hætt við sjónprófið þar sem hún talar ekki þýsku, og því gat hún ekki sagt Á ÞÝSKU nöfnin á þeim formum sem var bent á í sjónprófinu, því fengum við ávísun á augnlækni, þar sem við eigum að fara og láta kanna sjónina!!! Heimskulegt en svona er þetta bara og maður er orðin vanur því hérna :)

Jæja þá er það ekki meira, myndir segja ansi margt og það er komin inn slatti af þeim á myndasvæðið. Bæði Nóvember og Desember.

Næsta blogg verður svo eftir verðlauna ferð okkar til Berlína næstu helgi :)

Ljúkum þessu á mynd af forkunnar fögru jólatré og skreytingu frá þeim félgögum okkar hérna Póllands megin :) Smekk fólk eins við vitum.

5.12.10

Tveggja ára


Jæja góðir tilheyrendur, þá er loknum merkilegum degi í lífi heimasætunnar. Hún er nefnilega orðin tveggja ára. Eða "hosos" (=eins árs) eins og sumir halda ennþá, þetta er líklegast landlægt að meðal kvenna, að ljúga til um aldur, allavega í sönggeiranum :)

Ekki ætla ég að hafa mörg orð um það en birta í stað þess myndir sem eiga að segja meira en mörg orð.

Við þökkum góðar kveðjur, hvort sem á Facbook eða símleiðis :)




1.12.10

Stórfurðulegt, snjór, Desire, óþolandi

Gærdagurinn var furðulegur að mjög mörgu leiti. Ég ákvað að fara til læknis aftur vegna hósta sem hefur ekki yfirgefið mig enn. Kláði í hálsinum og endalaust slím á raddböndunum er farið að pirra mig aðeins. Ég fór því til læknisins, þar þurfti ég að vera í 3 tíma, og af því var bið á biðstofu um 95%!! Ég var að verða bilaður á þessu rugli. Svo nú eftir 3 mínútur með lækninum ákvað hún að ég ætti að fara hitta háls-nef og eyrnalækni bara til að tékka allt. Ég fékk uppáskrift og fór þangað án þess að eiga tíma, sem þýddi að ég þurfti að bíða í um 1 og hálfan tíma eftir tímanum. Ekkert kom útúr því nema bara að allt lítur vel út og ég á að taka einhver rándýr jurtalyf í smá tíma og vona að það hjálpi eitthvað!! Á meðan ég beið hjá fyrri lækninum hringdi síminn, það voru vinir mínir hjá T-mobile að tilkynna mér að síminn sem ég er búinn að vera bíða eftir væri kominn. Ég fór því beint þangað eftir HNE, og viti menn, þar var næstum því 40 mínútna bið, eftir að ég hafði keyrt um allt í tæpan hálftíma að finna stæði! EN þetta gekk allt á endanum, og þegar heim var komið, var stefnan svo tekin beint í Marktkauf, þar sem ætlunin var að kaupa í matinn. Dagurinn var því annsi langur og skrítinn, blandinn gleði og pirringi. Þegar heim var komið fór ég að sjálfsögðu að fikta í nýja símtækinu, og þegar það var samstilla póstinn, sem tók ekki nema um nokkrar sekúndur, þá sá ég tölvupóst um að ég hefði unnið í Jólaleiknum sem einhverjir muna eflaust eftir að ég setti hér inn á bloggið mitt ekki fyrir löngu :) Deginum lauk því með mikilli gleði, þvi við fáum bílaleigubíl, hótelgistingu í Berlín og 250 Evrur til að eyða í það sem hugurinn girnist. Ég skil ekkert hvernig heimurinn virkar, en af og til kemur hann með eitthvað svona skemmtilegt, allt of sjaldan, en það kemur þó fyrir, sem betur fer :)

Hér er þykkt snjólag yfir öllu og mikill kuldi (-7°C og um 100% raki) Í Berlín er hinsvegar ekki eitt snjókorn, og mun hlýrra en hérna. Við getum ekki annað en hlakkað til að fara til Berlínar 17.Desember nk!!

28.11.10

Fíkn í tækni

Þessa fíkn kannast margir við, og ég er engin eftirbátur í þeim efnum. Það sem trónir á toppnum þessa stundina er þessi gullmoli hérna til hliðar HTC Desire HD

Hann verður reyndar minn í næstu viku án verðmiðanns sem settur er á hann á Íslandi :) Mér býðst nefnilega að framlengja samning minn við T-Mobile hérna í þýskalandi og fá þennan síma að "launum". Ég er búinn að bíða eftir þessu tæki í rúman mánuð og er búinn að skoða allt sem um hann finnst á internetinu. Allir eru sammála um að hérna sé komin einn sá allra besti "snjallsími" sem til er á plánetunni jörð, og það gerir eftirvæntinguna ekkert minni.

Þessi fíkn mín er sem betur fer ekki kostnaðarsöm, en svona einusinni á ári þá langar mig í eitthvað fínt tæki, það er ekkert óeðlilegt held ég :) En þetta verður í fyrsta skipti þar sem ég eignast eitthvað sem er það allra besta sem er í boði. Ég hef yfirleitt látið mig hafa það að taka það næstbesta, sem er líklega eitthvað í uppeldinu :) Maður þarf ekki alltaf að kaupa það dýrasta kannast ég við að hafa heyrt einhverntíma. En það eru reyndar skiljanlegar ástæður að baki því sem ég mun ekki dirfast að gera lítið úr.

Ég er enn mjög vonsvikinn eftir fréttir gærdagsins, og það sem bætir enn á þetta er að þeir hjá T-Mobile ætluðu að hafa samband við mig um leið og síminn kæmi í hús. Ég kom svo við hjá þeim á föstudaginn og sá þá að búið var að hengja upp auglýsingu um símann, og þá var mér tjá að þeir hefðu fengið eitt eintak og það væri nú þegar selt!!! Ég var samt fyrstur á lista, þau voru mjög vandræðalega að reyna að klóra yfir mistökin, og ég sá að það var skrifaður stór miði og límdur á lagerdyrnar til minnis um að það eigi að hringja í mig strax og tækið kemur í hús. Það sem er meira pirrandi við þetta er að ég hefði vel getað framlengt samninginn minn á netinu og verið búinn að fá síman fyrir viku síðan, en ég ákvað að styrkja útibúið hérna, þar sem þetta er lítill staður, og þau hafa svosem reynst mér vel. En þetta er bara bjánalegt. Ekki það að ég geti ekki beðið, ég hef bara gott af því :)

Í dag kl 15:00 er svo næst síðasta sýning af Tiefland, ég hef verið þjakaður af leiðinda hæsi og einhverjum andskotans skít í hálsinum í nánast heilan mánuð!! Er þó eitthvað að skána, en ég er búinn að vera dæla í mig náttúrulyfjum síðustu daga og er ekki frá því að það sé eitthvað að hjálpa. Jólatónleikar eru svo framundan og þjóðverjarnir standa sig vel í að læra "með vísnasöng ég vögguna þína hræri", en þau þurfa að syngja viðlagið með mér :) Við erum 3 tenórar sem deilum með okkur tónleikunum og þurfa því hinir tveir, sem eru þýskir, að syngja á Íslensku, sem er afar áhugavert. Annar þeirra er orðin nokkuð góður og leggur sig mikið fram um að gera þetta rétt, og það er gaman að heyra. Því eins og þeir sem þekkja til í söngbransanum er áherslan á að syngja rétt á þýsku svo svakalega mikil að það nánast skemmir tónlistina, en núna snýst það við, og ég hef ekki lagt hart að mönnum að bera allt 100% rétt fram, aðeins að það hljómi rétt. Eins og t.d þegar sungið er "með vísnasöng ég vögguna þína hræri", þá sagði ég þeim bara að syngja "me wiesnasöng é vöggöna thina hraajri", þá hljómar þetta nokkuð íslenskt :)

Hér hefur húsfrúin á heimilinu verið að dunda sér við að hengja upp seríur og var ein sett í herbergi drottningarinnar, hún dáist mjög að þessari ljósadýrð og getur setið í dágóða stund í glugganum að dunda sér.