28.11.10

Fíkn í tækni

Þessa fíkn kannast margir við, og ég er engin eftirbátur í þeim efnum. Það sem trónir á toppnum þessa stundina er þessi gullmoli hérna til hliðar HTC Desire HD

Hann verður reyndar minn í næstu viku án verðmiðanns sem settur er á hann á Íslandi :) Mér býðst nefnilega að framlengja samning minn við T-Mobile hérna í þýskalandi og fá þennan síma að "launum". Ég er búinn að bíða eftir þessu tæki í rúman mánuð og er búinn að skoða allt sem um hann finnst á internetinu. Allir eru sammála um að hérna sé komin einn sá allra besti "snjallsími" sem til er á plánetunni jörð, og það gerir eftirvæntinguna ekkert minni.

Þessi fíkn mín er sem betur fer ekki kostnaðarsöm, en svona einusinni á ári þá langar mig í eitthvað fínt tæki, það er ekkert óeðlilegt held ég :) En þetta verður í fyrsta skipti þar sem ég eignast eitthvað sem er það allra besta sem er í boði. Ég hef yfirleitt látið mig hafa það að taka það næstbesta, sem er líklega eitthvað í uppeldinu :) Maður þarf ekki alltaf að kaupa það dýrasta kannast ég við að hafa heyrt einhverntíma. En það eru reyndar skiljanlegar ástæður að baki því sem ég mun ekki dirfast að gera lítið úr.

Ég er enn mjög vonsvikinn eftir fréttir gærdagsins, og það sem bætir enn á þetta er að þeir hjá T-Mobile ætluðu að hafa samband við mig um leið og síminn kæmi í hús. Ég kom svo við hjá þeim á föstudaginn og sá þá að búið var að hengja upp auglýsingu um símann, og þá var mér tjá að þeir hefðu fengið eitt eintak og það væri nú þegar selt!!! Ég var samt fyrstur á lista, þau voru mjög vandræðalega að reyna að klóra yfir mistökin, og ég sá að það var skrifaður stór miði og límdur á lagerdyrnar til minnis um að það eigi að hringja í mig strax og tækið kemur í hús. Það sem er meira pirrandi við þetta er að ég hefði vel getað framlengt samninginn minn á netinu og verið búinn að fá síman fyrir viku síðan, en ég ákvað að styrkja útibúið hérna, þar sem þetta er lítill staður, og þau hafa svosem reynst mér vel. En þetta er bara bjánalegt. Ekki það að ég geti ekki beðið, ég hef bara gott af því :)

Í dag kl 15:00 er svo næst síðasta sýning af Tiefland, ég hef verið þjakaður af leiðinda hæsi og einhverjum andskotans skít í hálsinum í nánast heilan mánuð!! Er þó eitthvað að skána, en ég er búinn að vera dæla í mig náttúrulyfjum síðustu daga og er ekki frá því að það sé eitthvað að hjálpa. Jólatónleikar eru svo framundan og þjóðverjarnir standa sig vel í að læra "með vísnasöng ég vögguna þína hræri", en þau þurfa að syngja viðlagið með mér :) Við erum 3 tenórar sem deilum með okkur tónleikunum og þurfa því hinir tveir, sem eru þýskir, að syngja á Íslensku, sem er afar áhugavert. Annar þeirra er orðin nokkuð góður og leggur sig mikið fram um að gera þetta rétt, og það er gaman að heyra. Því eins og þeir sem þekkja til í söngbransanum er áherslan á að syngja rétt á þýsku svo svakalega mikil að það nánast skemmir tónlistina, en núna snýst það við, og ég hef ekki lagt hart að mönnum að bera allt 100% rétt fram, aðeins að það hljómi rétt. Eins og t.d þegar sungið er "með vísnasöng ég vögguna þína hræri", þá sagði ég þeim bara að syngja "me wiesnasöng é vöggöna thina hraajri", þá hljómar þetta nokkuð íslenskt :)

Hér hefur húsfrúin á heimilinu verið að dunda sér við að hengja upp seríur og var ein sett í herbergi drottningarinnar, hún dáist mjög að þessari ljósadýrð og getur setið í dágóða stund í glugganum að dunda sér.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli