| Jólatréð á Jólamarkaðnum í Dresden |
| Eftir að hafa sungið á 6 jólatónleikum það sem af er Desember (4 eftir), verð ég að segja að ég er ekki kominn í jólagírinn. Jólatónleikarnir hér á bæ eru ekki beint það sem hægt er að kalla jólalegt, allavega ekki miðað við Jólatónleika Skálholtskórs. Þetta er reyndar ekki mikið jólalegt ef frá er talin "Nóttin var sú ágæt ein" sem fær alltaf mikið klapp. Tónleikunum er reyndar lokið með samsöng á lögum eins og "O du fröhliche, Alle Jahre Wieder, O Tannenbaum og Stille Nacht", þar af þekki ég tvö, eflaust kannast þeir sem mér eldri eru við hin tvö. Tónleikarnir hafa gengið vel og ekki hægt að kvarta yfir aðsókn, þar sem uppselt er og hefur verið á alla tónleika í Desember. |
Sísi, tengdó, kom hér í heimsókn í byrjun Desember, og kom með hangikjöt, appelsín, púðursykur og sitthvað það sem mikilvægt er til jólahalds og ekki fæst hérna í þýskalandi. Það var ótrúlegur léttir. Við áttum ótrúlega fínar stundir, og skelltum okkur meðal annars til Dresden á jólamarkað, sem er einn sá flottasti sem ég hef séð. Markaðirnir í Berlín eru bara drasl miðað við Dresden! Við drukkum Glühwein, og enduðum svo á að kaupa okkur eina flösku af Glühwein frá Nürnberg, sem er talinn einn elsti jólamarkaður þýskalands, það var svakalega gott! Mér hefur aldrei þótt þetta glöggsull gott, en þetta er eins og Sushi, ef maður fær ekki almennilegt og gott glögg þá er hætt við að maður vilji ekki smakka aftur. Einnig var prufað að kaupa síld hér úti í kjörbúð og bragðast hún bara eins og það besta sem maður hefur smakkað, maður þarf nú reyndar að borga fyrir það, en ef maður er á þeim buxunum þá er þetta fínt. En það sem vantar til að hafa með síldinni er rúgbrauðið. Það var svosem ekki að spyrja að því en tengdó henti þá í rúgbrauð og var það svo borðað með bestu lyst ásamt síldinni.
Hér hefur snjóað og snjóað og manni líður bara eins og væri maður staddur á Íslandi. Hér hefur líka frosið allsvakalega, þó hitastigið síðustu daga hafi verið ásættanlegt (í kring 0 gráður).
Júlía litla er komin með hor í nös og ljótan hósta aftur, ég vona að þetta verði þó að mestu farið fyrir jól, þvi þetta er alveg hræðilega leiðinlegt, bæði fyrir hana og okkur. En annars gengur allt vel. Við fórum með hana í tveggja ára skoðun um daginn, og fékk hún góða einkun, sem var svosem vitað fyrir fram þar sem við erum ekki heimskingjar, og það er augljóst að hún getur allt sem hún þarf og á að geta á þessu aldursstigi. Samt sem áður, þá var hreinlega hætt við sjónprófið þar sem hún talar ekki þýsku, og því gat hún ekki sagt Á ÞÝSKU nöfnin á þeim formum sem var bent á í sjónprófinu, því fengum við ávísun á augnlækni, þar sem við eigum að fara og láta kanna sjónina!!! Heimskulegt en svona er þetta bara og maður er orðin vanur því hérna :)
Jæja þá er það ekki meira, myndir segja ansi margt og það er komin inn slatti af þeim á myndasvæðið. Bæði Nóvember og Desember.
Næsta blogg verður svo eftir verðlauna ferð okkar til Berlína næstu helgi :)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli