27.11.09

Rösti og Júlía

Í morgunmat ákvað ég að elda mér snilld sem ég smakkaði í Innsbruck, en það er fyrirbæri sem kallast Rösti. Þetta eru semsagt kartöflur sem eru afhýddar, soðnar í 5-10 mín, kælt, og svo rifnar niður með rifjárni. Saman við það er svo blandað salt og pipar (ásamt hverju því sem hugurinn girnist, hjá mér var það paprikuduft og laukduft, ég get ímyndað mér að það sé gott að setja góðan ost í þetta líka). Smjörlíki er brætt á pönnu og á 2/3 hita er svo Rösti draslinu hellt á og þjappað vel niður og passað að það haldi lögun (hefðbundna gerðin), það má að sjálfsögðu gera þetta hvernig sem er. Þetta er svo látið steikjast svona í 5-6 mín, og svo hent á hina hliðina (það er best að gera það með að setja disk ofan á og snúa svo pönnunni þannig að kakan lendi á disknum, annars dettur þetta allt í sundur). Einnig 5-6 mín. Það segir sig sjálft að þetta bragðast vel, þar sem smjör, kartöflur og salt smakkast alltaf vel saman. Þetta er líka skítódýr og saðsamur matur, tala nú ekki um ef maður steikir með þessu beikon og/eða egg. Minnir eilítið á pikknikk franskarnar, þegar þetta er vel krispí :) Mæli allavega með þessu.

Nú við erum búin að vera í jólagjafahugleiðingum og fórum í þeim tilgangi í Alexia verslunarmiðstöðina sem stendur alltaf fyrir sínu :) Við keyptum afar lítið, en náðum að láta Júlíu máta hitt og þetta, það er margt sem fer henni vel :) hérna að neðan má sjá eina kápu sem ungfrúin var látin máta, og það fannst henni sko ekkert leiðinlegt :)

Hér fyrir neðan má svo sjá ungfrúnna í hörkustuði að leika við pabba sinn.

23.11.09

Að uppskera ekki eins og til er sáð....

Þá hefur niðurstaða fengist í Innsbruck áheyrnarprufuna sem ég söng mjög vel í. Svarið er það að það voru skiptar skoðnir um mig en ég þótti hafa skilað mínu á sómasamlegan hátt, en ákveðið fara að fá einhvern með meiri reynslu. Mér líður svona eins og ég hafi verið kosin vinsælasta stelpan í ungfrú Ísland, titill sem ekki er merkilegur, en samt titill!! Sama hvað, ég er kominn langt á síðustu dropana í þolinmæði og svona fréttir eru aldrei til upplífgunar.

Ég er samt bókaður í 3 prufur í desember og það verður gaman að sjá hvað kemur útúr því. Ég hitti svo Wolfgang og frú á laugardaginn og tíundaði þar raunir mínar, og fékk þá að læra að það er ekki allt sem sýnist í bransanum. Konan hans Wolfgang hefur verið að vinna sem umboðsmaðurinn hans í 10 ár og hún sagði mér að það er ekki alltaf að marka það ef mér er hafnað í áheyrnarprufu, því stundum er manni hafnað einfaldlega vegna þess að viðkomandi þolir ekki umboðsmanninn, sem í mínu tilviki skilst mér að sé ekki ólíklegt, þar sem sá umboðsmaður sem sendi mig til Innsbruck er víst ekkert sá vinsælasti í bransanum, þó hann hafi mikil sambönd. Ég var því hvattur til að reyna aftur hjá Innsbruck með einhverjum öðrum umboðsmanni!! Úfff maður, á maður eftir að nenna því??? Ég veit það sveimér þá ekki.

Stórar og góðar fréttir hef ég að færa, þar sem ég hef nýlega skrifa undir samning við stærstu klassísku tónlistarhátíð í Berlín um að koma fram í sumar á þeirra vegum. Þetta þýðir gífurlega auglýsingar og mikið exposure. Hátíðin heitir "Classic Open Air", þessa hátið sækja yfir 60.þús manns á hverju sumri, og er alveg hrikalega merkilegt dæmi. Í fyrra voru þeir t.d með Carreras!! Það er því langt frá því að maður sé í skítnum, en það er langt í þetta og mikið vatn á eftir að renna til sjávar. En þetta er stórkostlegt, þar sem ég horfði á plakötin af þessari hátið með stjörnur í augunum í fyrra, og velti því fyrir hverslags rugl það er eiginlega að komast að á svona hátíð sem listamaður, og sjá hvar ég er núna :) Stórkostlegt er það.

Ég var að sýna í kvöld og á sýninguna komu Gunnar og Einar, það var voða gaman, sérstaklega þar sem Gunnar hefur verið fjarri góðu gamni síðustu vikur. En Gunnar hentumst svo á ítalskan stað á Bergmannstrasse og fegnum okkur bjór og ég fékk mér Trufflupasta, sem er með því klikkaðara í mat sem ég hef borðað, fæ mér þetta af og til, svona til hátíðarbrigða :) Mæli með því að fólk prufi þetta sem á kost á því.

JFE tók upp á því alveg sjálf að þrífa hérna klósettið. Segið svo að þetta sé ekki harðkóðað í okkur frá unga aldri hvað við eigum að gera í framtíðinni :) Þetta hefur allavega ekki verið haft fyrir henni :) Ég sé femínista í ættini verða rauða af bræði við þetta, en svona er þetta bara!

19.11.09

Lestarferð, fyrirsöngur, Töfraflautan, lestarferð

Eftir átta tíma lestarferð sem gekk mjög vel kom ég til Innsbruck síðla kvölds. Fann strax hótelið mitt, þar sem ég er með gps í símanum, ótrúlega þægilegt. Hótelið er um 5 mín frá lestarstöðinni. Þar fékk ég "upgrade" í herbergi með sturtu, þar sem allt annað var fullt. Það er svosem ágætt, fyrir utan góða lestarferð, var þetta fyrsti góði punktur ferðarinnar. Ég svaf svo svefni hinna réttlátu og fór svo í Óperuna til að hitta píanóleikara og gera klárt fyrir prufuna. Þar gekk mér ekki allt of vel og fór því strax að hafa áhyggjur, þar sem ég var einungis með tvö stykki á efnisskránni sem ég hef sungið áður fyrir fólk, og röddin var eitthvða að stríða mér. Og svo kom að prufunni, ef ekki hefði verið búið að fylla mann af einhverjum hugmyndum um konuna sem stýrir húsinu, þá hefði ég kannski ekki verið eins stressaður. En svo komu aðrar góðar fréttir en þær voru að við vorum aðeins þrjú sem vorum að syngja fyrir í dag. Ég var því bæði fljótlega á svið og fljótlega búinn. Prufan gekk glimmrandi vel og ég held að ég hafi sýnt allt það besta sem ég, fékk á tilfinninguna að þeim hafi líkað vel við. En maður veit það náttúrulega aldrei. Næst fór ég svo og keypti mér miða á Töfraflautuna sem er í kvöld og ætla að njóta þess aðeins að horfa í þessu fallega Óperuhúsi.

Svo þarf að vakna kl 4 og hendast í lestina sem fer kl 5, ég þarf að skipta 3 um lest, en frá Munchen er bara ein lest, og það er það sem skiptur máli, þar sem hún er með rafmagnsinnstungum og maður getur bara horft á myndir eða þætti allan 6 tímana sem það tekur nú. Svo er sýning í Neukölln um kvöldið. Nóg að gerast!!

Ég setti inn nokkrar myndir fá fögu Innsbruck hérna

16.11.09

Nýafstaðin veikindi og Júlía

Aldeilis svakalegri helgi er nú að ljúka. Hún hófst á áheyrnarprufunni sem ég hef þegar bloggað um.
Svo tók við tími hjá Wolfgang, þar sem hann sýndi mér enn og aftur framá að ég get sungið í gegnum sama hvað það er, þar sem ég var nánast raddlaus þegar ég fór til hans, að hlut til vegna þess að ég var nývaknaður og að hlut vegna kvefs. Þannig að það er ekki hægt að kvarta yfir því.

Ég vaknaði svo um kl 4 á aðfararnótt sunnudags með þessa líka svakalegu ælupest, nokkuð sem ég hef ekki fengið síðan ég var undir tvítugu. Ótrúlega merkilegt. En það var jafn ömurlegt og þá. Hit, beinverkir og höfuðverkur fylgdu þessu að sjálfsögðu og ég var rúmliggjandi allan daginn, þetta hefði nú svosem kannski verið í lagi hefði ég ekki þurft að hendast til að sýna um kvöldið. Ég leitaði allra leiða til að reyna að koma þessu af mér, en sá sem syngur á móti mér var að syngja annarsstaðar þetta kvöld, auk þess sem það var uppselt á sýninguna. Ég auðvitað kunni ekki við að vera sá sem lætur allt hrynja, og mér leið að auki eilítið betur en fyrr um morguninn, þannig að ég lét slag standa. Þau borguðu fyrir mig leigubíl á staðinn og mín beið prívat herbergi til slökunnar þangað til sýnning hófst. Vissulega leið mér eins og ég væri staddur í helvíti því kvalirnar voru miklar, ég pumpaði því í mig 1500mg af paracetamóli og var orðin vinnutækur eftir hálftíma. Það sem var ótrúlegast við þessa upplifun, þrátt fyrir hörmulegt líkamsástand var sú staðreynd að ég gat sungið, og það betur en oft áður!!! :) Svona virðist þetta nú alltaf vera, ég þarf helst að vera þunnur eða veikur til að syngja vel. Því það er þá sem tæknileg vinna fer að skila árangri.

JFE er farin að ganga hér útum allt eins og herforingi og það er mikið gaman að fylgjast með henni. Tók eitt lítið myndband fyrir ömmur og afa sem eru þvímiður að missa af þessu öllu. Eins fór að birtast ein framtönn í efrigómi í dag, þannig að það er allt að gerast. Ungfrúin er því ansi vælin og búin að vera rosalega lítil í sér í dag. Við sjáum fram á stórkostlega nótt.

13.11.09

600 km, mistök og vonbrigði

Þá er ég kominn heim að lokinni enn einni áheyrnarprufunni. Ótrúlega skrítið sem þetta getur nú verið. Ég tók semsagt bílaleigubíl í gærkvöldi til að nýta fyrir daginn í dag, þar sem ég hafði ekki alveg hugmynd um hvar þett var eða hvernig væri best að komast þangað með lest. Þetta var semsagt lítið óperuhús í Zwickau. Ég mætti snemma á staðinn og náði að slaka vel á, hitti píanóleikarann á staðnum og við renndum yfir það sem ég ætlaði að syngja, hann sagði mér að því loknu að ég væri í raun ákkúrat tenór eins og húsið væri að leita að, kraftmikil og breið rödd sem gæti sungið nánast allt!!! Og ég ætti bara að bjóða þessi 3 númer sem ég gerði best. Sem ég og gerði, þegar á sviðið var komið fór hljóðblekking að gera vart við sig og ég fór að ýta allt of mikið á eftir tónunum, auk þess sem mér tókst að gleyma texta sem ég kann aftur á bak og áfram. Þetta var með ólíkindum ömurlegt að upplifa þetta, þar sem ég veit hvað ég get og ég veit að þegar vel tekst til þá þykir mikið til koma, en ekki í þetta skiptið!! Andskotinn hafi það!! Við tók svo ótrúlega leiðinleg heimferð, þar sem það rigndi allan tímann, tafir voru á hraðbrautunum og á tengivegum sem voru á annað borð opnir. Ef þeir voru opnir voru þar vöruflutningabílar á 50km/klst og engin leið að taka framúr. Ef þetta er ekki föstudagurinn 13 þá veit ég ekki hvað?!?! Ég hef reyndar enga paranoju yfir þessum degi, en þetta einhvernvegin lendir bara svo skemmtilega vel saman.

JFE hornið
Stelpan sú arna er farnin að gera sér það að leika ganga hér um íbúðina eins og ekkert sé. Hún er greinilega að fatta hvað það getur verið mikið þægilegra. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með henni þegar hún er að prufa þetta einhverstaðar ein án þess að við séum eitthvað að hvetja hana, þá er hún mikið að einbeita sér og það fer greinilega mikil orka í þetta. En það er góð regla á henni núna og það er svona ýmislegt sem er hægt að ganga að sem vísu, sem er ótrúlega þægilegt. Við höfum það aftur gott á kvöldin eins og fyrir rúmu ári síðan, þar sem ungfrúin er búin að ver sofna núna mögglunarlaust síðustu kvöld. Það er líka ótrúlega góð tilfinning að koma heim eftir erfiðan/leiðinlegan dag og fá þetta litla skott á ofsa ferð á móti sér, hún titrar af gleði og spennu við það eitt að maður komi heim, ekki oft sem maður hefur þau áhrif á fólk :)


10.11.09

Í hringiðu lífsins gerist það sem ekki gerist utan hennar.

Langt er síðan ég setti hér eitthvað inn, en síðast var það atónal bloggið, það var að sjálfsögðu hún Júlía sem lék þetta mjög leiðinlega en frumlega tónverk.

Í öðrum fréttum er það kannski helst að fyrir síðustu helgi söng ég tvær Rigoletto sýningar í röð sökum veikinda, og gekk það bara glimrandi vel og ekkert út á það að setja.

Við hjónin hentumst svo til Halle, þar sem stórbaritónninn Ásgeir Páll býr og starfar. Okkur var höfðinglega tekið í ótrúlega flottri íbúð þeirra hjóna og okkur leið mjög vel þarna hjá þeim. Ekki skemmdi svo fyrir að okkur var boðið á sýningu á "Le Comte Ori" sem Ásgeir syngur í. Mjög skemmtilegt það. Hún Júlía var í fyrsta skipti í pössun hjá "ókunnugum", og gekk það vonum framar, henni var í raun skítsama þegar við sögðum bless og fórum. Næturnar hafa verið gífurlega erfiðar hjá ungfrúnni síðustu vikurnar, með ótrúlega mörgum vöknunum á hverri nóttu. Það eina sem dugar er að gefa henni vatn að drekka, þá sofnar hún strax aftur og við fáum smá frið. Nú kann einhverjum uppeldis"sérfræðingum" að þykja þetta einum of mikil eftirlátssemi, en þeir sem ekki hafa átt svona barn vita ekki hvað þeir eru að tala um og ættu að sjá sóma sinn í því að halda sér saman. Reyndar hefur svo sú stutta verið að koma með nýungar síðustu daga, en það er....að sofa lengur en venjulega, og auk þess sofnaði hún í fanginu á mömmu sinni, sem er eiginlega eins og sjá gullitaðan hrafn.

Tvær áheyrnarprufur eru áætlaðar fyrir lok mánaðarins auk undirbúnings fyrir jólatónleika hérna í Berlín, þannig að nóg er að gerast. Ég hef fengið tvær meldingar til baka frá umboðsmönnum varðandi þær prufur sem ég hef þegar farið í og eru þær mjög jákvæðar, en það er kannski ekki alltaf nóg, maður þarf að hafa eitthvað mjög ákveðið til að fá starf hérna, þannig að ég held bara áfram minn veg.

Á morgun er svo tími hjá David Jones sem er mættur aftur til Berlínar, litlar fokking 20.þús krónur kostar tíminn að þessu sinni þökk sé sjálfstæðisflokknum, megi hann hvíla í ófriði.

Annars er ég bara hress og kátur, okkur líður vel og því ekki mikið hægt að væla.


From 2009 Nóvember

4.11.09

Atónal og þessháttar

Nýverið kynntist ég listamanni sem semur atónal músík. Eins og flestir vita þykir mér slík tónlist ekki skemmtileg alla jafna. En þetta tónverk hefur fengið mig til að endurhugsa það aðeins.

Gaman væri að heyra hvernig þetta fer í fólk. Sérstaklega væri þó gaman að heyra í stærsta aðdáanda svona tónlistar sem ég þekki, henni Dísu :)

Meira síðar.