29.10.08

Af bleyjukaupum og námskeiðslokum

Mikil þreyta hefur verið að gera sér viðvart hjá undirrituðum.   Að hluta hlítur það að helgast af því að sofa í sama rúmmi og ólétt kona, og að hluta vegna þess að maður hreyfir sig allt of lítið, og er ég farinn að finna fyrir áhrifum af því.   Þessi þreyta er víst eðlileg hjá verðandi feðrum þar sem fólk er jú djúpt tengt eftir 9 ára samband sem við konan fögnuðum á dögunum.   Ekki er hægt að pirrast yfir því, eins má kannski segja að undirbúningur sé hafin fyrir skrautlega næstu daga.

Við konan hentumst í Kaufland í dag, þar sem ætlunin var að byrgja sig upp af allskyns matvælum, þá aðallega þurrkuðum Knorr matvælum, sem maður borðaði mikið af fyrir c.a 6 árum eða svo.  Þetta er allt orðið mun hollara en það var og ekki skemmir bragðið fyrir.   Að auki þurftum við að fara versla inn ýmislegt sem tilheyrir því að taka á móti barni á heimilið, þar á meðal bleyjur... sem er soldið fyndið að vera gera, þar sem ég sá sjálfan mig eiginlega aldrei í þeim sporum.  En svona er það bara, þetta verður lítið mál.   Ég tel mig búa ansi vel að því að eiga 3 yngir systkini, en skiptingar og meðhöndlun ungbarna er mér ekki ókunn, þó ég hafi nú ekki þurft að sinna því mikið í þá gömlu daga, en ég óttast það ekki því ég hef séð þetta gert, og ef ég man rétt, hef ég allavega einusinni til tvisvar á honum Binna okkar :)   En það heyrast eflaust mótmæli úr horni við þessari yfirlýsingu og því leyfi ég því bara að koma ef kemur.

Nú við erum byrjuð að undirbúa "fæðingartöskuna",tónlist, lök, sængurföt "heimferðarföt" og annað mikilvægt þarf að fara þangað og vera tilbúið ef til þess kæmi að allt færi af stað.  Þetta er sturlun að mínu mati, en svona er þetta bara.  Eins verður barnarúminu hent upp á morgun.  Ég set inn myndir ef ég nenni því.

Við erum áfram hress og ég opnaði mér freyðivín í kvöld í tilefni þess að síðasti geburtsvorbereitungskurs er búinn, ég leyfi mér að segja að ég hafi nú gert skemmtilegri hluti hérna í Berlín en það.

Ég lýk þessu á skál og við heyrumst síðar.

27.10.08

Söngur indverska gestsins

Hér hefur verið kalt undanfarna daga, þó fór nú hitinn milli daga úr 4°C í 17°C, það var  vissulega skrítið.   Í síðustu viku tók ég upp efni sem Wolfgang ætlar að senda fyrir mig á agentinn sinn, gæti verið gott break ef ég skila þessu almennilega af mér.    Efnið sem ég tók upp þykir mér ekki nógu gott til að senda, því ætla ég að ráðast í meiri upptökur á næstu dögum.    Vona að það gefi betri raun.  Það gengur verulega vel hjá Wolfgang og ég er nánast kominn á það að hætta hjá Janet og fara eingöngu til hans, en það verður erfitt.  Sé til hvernig ég tækla þetta.   Gunnar kom með mér í tímann á Laugardaginn og endaði á að panta sjálfur tíma hjá kallinum.    Vona bara að hinir íslendingarnir fari ekki að taka upp á því að fullbóka kallinn svo maður komist ekki að :) 

Að loknum tíma hjá Wolfgang fórum við Gunnar á Sushistaðinn TaiSu, sem er mjög góður og ég hef farið þangað nokkrum sinnum.   Þar var ég líka búinn að mæla mér mót við hana Ósk, sem kom færandi hendi, fullan poka af sælgæti og séð og heyrt.   
Ótrúlega gaman að fá svona, og ég þakka þér Ósk vel fyrir pakkann.   Þú ert svo hér með boðin í einhvern flottan mat hérna hjá okkur á Kurfürsten næst þegar þú átt leið um höfuðborg Evrópu.  
Ég hef ekki enn komið mér í það að fara í EOS ferð um ljósnóttina hér í Berlín, og hún er búin núna þannig að það þýðir ekkert að vera væla yfir því.

Hérna var svo boðið í vöfflukaffi í gær, og þar mætti afmælisbarn dagsins hún Dísa, klukkutíma of seint reyndar!! (líklega hefur hún stillt klukkuna fram um eina klst í stað aftur, þar sem við fórum á vetrartíma í gær) :)   Guðný fiðla var með í för, eins voru að sjálfsögðu íslensku strákarnir og áttum við mjög góða kvöldstund saman hérna.   Svona lagað þyrfti nú að gerast oftar að mínu mati.   Það er alltaf gaman að vera með svona hitting, því það verður soldið furðulegt að hitta ekki mikið af fólki á hverjum degi sökum vinnu.  

Óléttuhornið:
Það er stutt að sinni, allt líturvel út, og við búin í síðustu skoðun hjá lækni.... þ.e þangað til 20.nóv, þá vill hann sjá okkur aftur ef ekkert verður farið að gerast.   Ljósmóðirin kom í dag með lista yfir það sem við þurfum að eiga heimavið þegar við förum heim eftir fæðingu.   Það er svosem ekki margt sem kemur á óvart á þeim lista.  Og þetta er allt til að mestu hvort sem er.   Soffíu líður bara vel og lítið nema gott um það að segja.  Síðasti geburtsvorbereitungskurs er svo á miðvikudag og það verður mikill léttir..... trúi reyndar ekki að liðnar séu 7 vikur síðan þetta byrjaði, tíminn líður með ógnarhraða þessa dagana og maður veitt ekkert hvað er að gerast :)

Hérna eru svo nokkrar léttar myndir úr vöffluboðinu.

22.10.08

Ég gleðst í dag #2

Í dag er það gleði, eða ölluheldur slökun sem grípur mig, þar sem peningur sem ég hélt að væri tapaður, skv upplýsingum frá Friends Provident, var í raun ekki tapaður.  Heldur einfaldlega innleystur af mér :)  Þetta er bara búið að taka mun styttri tíma en þau sögðu og þegar ég hringdi til að kanna með það afhverju það væri svona mikið hrun, þá sögðu þau bara að svona væri þetta bara!!  Og þau sögðust ekki sjá að ég hefði innleyst eitt eða neitt.  

Það var því með mikilli gleði að ég leit inn á þýska bankann minn í morgun og sá að þangað var sparnaðurinn minn kominn :)   Það er samt alltaf gaman að þessu rugli og ég þakka þeim sem höfðu af mér áhyggjur.  

Bissí dagur í dag, fyrst þurfum við að fara FERA og fá neyðarnúmerið til að nota ef fæðing fer af stað.  Það kostar litlar 100EUR, en það er í raun eini kostnaðurinn sem við þurfum að bera vegna þessarar fæðingar, nema komi til keisara, sem verður ekki.  Eftir það fer ég í tíma hjá píanóleikara og þvínæst á næstsíðasta "geburtsvorbereitungskurs".   Á morgun er svo tími hjá Janet og á föstudag er ég að fara reyna að taka upp DVD til að senda agentum.  Nóg að gerast í þessari viku!


20.10.08

Festival of Lights

Hér má sjá undirritaðan og frú ásamt Gunnar í hópmyndatöku í Berlín :)

Ég gleðst í dag

Audition sem ég átti að fara í í næstu viku er búinn að breytast í 09.des!  Hefði verið gott að fara í næstu viku.   Auk þess er ég búinn að tapa öllum sparnaði mínum síðan árið 2000, c.a 1.2 milljónir!

Það er því ekki annað hægt en að gleðjast yfir því halda allavega heilsunni.

Skál!

19.10.08

Borg ljósanna

Í gær hófst hátíð í Berlín sem kallas "Festival of Lights" það er búið að lýsa upp flest allt sem merkilegt þykir hérna í Berlín, með marglitum ljósum og mynstrum.   Þetta er voða flott að sjá, og við fórum í göngutúr um lítin hluta svæðisins í gærkvöldi.   Með í för var Gunnar.  Við tókum þátt í einhverri uppstillingu með ljósum niðri á Gendarmenmarkt, og ef ég finn einhverntíma myndirnar sem voru teknar, þá birti ég það hér.

Annars er nú lífið að ganga sinn vana gang hér, alltaf verður kaldara og kaldara, og á sumum trjám eru aðeins örfá lauf eftir.   Peningmálin eru svosem ekki alveg farin að setja strik í reikninginn hér, þar sem maður tekur bara útaf VISA það sem maður þarf hverju sinni, þannig er maður að halda sér gangandi frá degi til dags.   Ég er þó búinn að fá fréttir frá Landsbankanum að þeir séu búnir að senda millifærslu til mín, og ef þetta skilar sér fyrir mánaðarmót þá er ég sáttur.

Ég hitti Wolfgang aftur í gær, það er hrikalega pirrandi að þessu fíni kennari sé ekki nær, að fara til hans kostar 3 tíma í lest í hvert skipti, en það er svosem þess virði miðað við það sem ég er búinn að vera fá frá honum.   Hann bauð mér að senda agentinum sínum demo CD/DVD ef ég á svoleiðis, og ég er að fara reyna að henda í einn slíkan á föstudaginn, ef allt gengur upp, þannig að maður þarf sannarlega að vinna fyrir hlutunum hérna :)  Sem er svosem gott.

Óléttuhornið:
Síðasta námskeið var alveg eins og þau sem á undan komu, það var verið að tala um sömu hlutina aftur og aftur, annaðhvort erum við svona rosalega gáfað fólk, eða þjóðverjar eru bara svona heimskir!  Ekki bætir úr skák að fólk þarf að sitja á gólfinu allan tímann, og það er bara ekki auðvelt, hvað þá fyrir óléttar konur!   Jæja hvað með það.   Við erum komin með barnarúm og vagn núna, ásamt einhverjum aragrúa af fatnaði sem ég er ekki alveg með á hreinu hvað er :)  Þarna er t.d eitthvað sem kallast "heimferðarföt", ég held ég nenni nú bara ekkert að pæla í því, ef það er eitthvað sem þarf, þá er það bara þannig :)   Kúlan stækkar hratt, og er að stækka meira á þverveginn en áður, því hefur maður tekið eftir ákv minnkun á framstæðunni.   Barnið er byrjað að skorða sig núna skv fræðunum, og ætti ekki að breyta mikið meira um stellingar fram að fæðingu, sem er gott þar sem það snýr ákkúrat eins og best þykir.   Það tekur því við hérna bið hjá mér og andvökunætur hjá Soffíu........ það er gaman að þessu.


14.10.08

Bölsýni hugans, jólin, partý og erfinginn

Þá er hér hafin önnur vikan þar sem ekki er hægt að nálgast peninga frá Íslandi, þýskir bankar segja að krónan sé dauður gjaldmiðill og ætla bara að hætta að skipta með hana. Svosem ekki líkt þjóðverjanum að vera með einhverjar svoleiðis yfirlýsingar. Ég hef gripið á það ráð að reyna að leysa út sparnað sem ég á í Bretlandi, ekki hjá bönkunum þar þó heldur Friends Provident, sem er eitthvað líftrygginga og fjárfestingafélag. Ég á orðið talsverðan sparnað þarna, enda búinn að spara síðan 2000, þetta á vonandi eftir að ganga smurt, það eina sem gæti verið er að þeir vilji fá löggilt og vottað afrit af passanum mínum, að öðru óbreyttu ætti þetta að ganga smurt. Vona það svo maður geti nú borgað leiguna næstu mánaðarmót. Annars fengum við nú póst um daginn þar sem fólk, sem býr hérna í Þýskalandi og við kynntumst örstutt þegar við fórum til Dresen, var að bjóða okkur peninga að láni ef okkur vantar!! Þessu átti ég nú ekki von á hérna, og vorum við að vonum þakklát, vona bara að við þurfum ekki að þiggja það.

Nú ég er búinn að vera kanna aðeins með jólahátíðina sem við ætlum að halda hérna úti, og þá kemur í ljós að við þurfum að redda okkur jólamat og öðru slíku sjálf, það er því svo að við þurfum að fara skrifa óskalista og biðja svo okkar fólk að burðast með þetta hingað þegar það kemur. Það er svosem ekki mikið held ég sem þarf: Hamborgarhrygg, hangikjöt, skötulús, malt og appelsín... og eflaust eitthvað meira, en þetta eru aðalatriðin :)

Á laugardag var svo heljarinnar partý hjá Janet, og íslendingarnir voru sem fyrr seinastir til að yfirgefa staðinn, ætli maður hafi verið komin heim um 5 leitið?? hver veit. Hér er allavega ein mynd af okkur skandinavíska strákagenginu sem erum að læra hjá Janet.

Sama dag og partýið var vaknaði ég snemma til að undirbúa tíma hjá Wolfgan Milligramm, sem svo margir hafa hent grín að, nafnsins vegna. Ég náði gífurlegum árangri og tel mig loks, með hans aðstoð hafa fundið síðasta púslið, gullna gralinn, sem ég hef verið að leita að svo lengi. Málið er einfallt, en það er bara að lyfta mjúkagómnum :) Sem er bara ekki búið að segja mér síðan ég byrjaði í söngnámi, málið er að það er bara ekki alveg svo einfalt að segja og gera. Með stífum æfingum næstu daga ætla ég mér að ná þessu almennilega svo maður fari að öðlast traust til að fara vinna við þetta. Og beitti ég þessari nýju tækni hjá Janet, þar sem á undan partýinu var svokallað studio class, sem er einusinni í mánuði, þar syngja allir fyrir alla. Þetta var tekið upp á videó, og ef það er eitthvað varið í það, sem ég er að vona, þá birti ég það hugsanlega hér á þessari síðu. (Hér fyrir neðan má svo sjá kvöld í Berlín sem EOSinn smellti myndum af á heimleið).
Óléttuhornið:
Frúin er nú farin að finna meira og meira fyrir óþægindum og við eigum enn langt í land. Sem er náttúrulega ekki gott, en þetta er allt eðlilegt. Við erum búin að hitta ljósmóðurina sem var að klára að fara yfir með okkur skriflega þáttinn í fæðingunni, þ.e.s listann yfir allt það sem getur farið úrskeiðis, sem er nú ekki það skemmtilegasta, en það er fínt að vera viðbúinn. Svo er bara að skrifa undir samninginn og borga 100EUR, þá erum við opinberlega skráð hjá þeim og ferlið getur hafist. Til gamans erum við búin að glugga í kellingabækur, til að fá skýrari mynd af því hvers kyns barnið er, og bendir allt til þess að um sé að ræða strák. Við notuðum meðal annars, pendúl og kínverska stjörnuspeki :) Þetta er auðvitað meira til gamans gert, en þetta er engu að síður áhugavert.  Þess má þó geta að kínverska stjörnuspekin er talin vera um 90% nákvæm þegar kemur að þessu.   Eins hefur pendúllinn gott "track record", fengum meira að segja að vita það að barnið kemur nákvæmlega 20.nóv :)

Bis später.......