30.1.08

Abrakadabra og stór dagur búinn!

Þá er einum viðamesta deginum til þessa lokið, en það gerðist ansi margt. Nú fyrst ber kannski að nefna að við fórum niður á leigumiðlun til að fá all pappíra og þar fengum við loksins undirritað og stimplað blaðið sem við þurftum svo að fara með niður á Bæjarskirfstofuna í Tempelhof og fá þar nýtt stimplað blað, sem veitir okkur öll réttindi. Þar fengum við einnig að vita að það er enn ein kellingin sem við þurfum að hitta, og það er miðvikudagurinn 30.jan, þá förum við í íbúðina og og hún fer yfir íbúðina og skráir ef það eru einhverjir gallar osfrv, og svo fáum við bara lyklana....að ég held.

Veit ekki hvort þið áttið ykkur á mikilvægi þessa pappírs hérna úti. En á myndinni sem fylgir þessari frétt, þá glöggt sjá að þetta er ekkert smá plagg :)

Að þessu loknu var svo haldið í Deutsche Bank þar sem ég fékk aðstoð frá henni Dísu vinkonu minni við að stofna bankareikning, og viti menn, það var bara ekkert mál, og hann var strax tilbúinn, og ég get bara byrjað að nota hann samdægurs!!! Ég átti ekki til orð, er Þýskaland skrifræðisins loksins að verða þolanlegra í mínum augum? Allavega, þetta gerði mér kleyft að fara í næstu Vodafone verslun og panta FEITUSTU internet tengingu sem er í boði: "Guten Abend, Kann ich den fettesten vorhandenen dsl haben"......eða eitthvað svoleiðis. Það sem er best hérna er 16Mb tenging með ótakmörkuðu niðurhali og heimasíma á 3995 ISK á mánuði, það er bara nokkuð gott, mv að ég var með 2Mb og heimasíma á ÍSL fyrir 4999ISK. En það á að taka að lágmarki 2vikur að afgreiða það, þannig að ég verð enn ekki kominn með þetta almennilegt fyrr en líklega á afmælisdaginn minn. Það er svosem ágætt, þarf svo að ræða við Janet um að fá smá aðstöðu hjá henni meðan þetta er allt að ganga yfir.

Nú degin lauk svo á ítölsku veitingahúsi, þar sem við Soffía skelltum okkur á svosem eins og einn pastarétt á mann.

Svona var þetta í hnotskurn, og að sjálfsögðu er maður ánægður með það.

Komnar eru nýjar myndir hérna til hliðar fyrir ykkur forvitnu einstaklingana í hópnum. :)

Bis Später,
Egill

28.1.08

Hótel Berlín

Þá erum við komin hingað á 4 hæðina á Hótel Berlín, sem við höfum áður heimsótt, og er með betri hótelum sem ég hef gist á. Og alls ekki svo dýrt, við erum að borga 8900ISK á nótt. Hérna er súper hratt þráðlaust internet sem er innifalið í verðinu á herberginu. Herbergið er stórt og mikið líklega stærra en "íbúðin" hjá brósa og mágkonu í Ástralíu.

Sparnaðarráð #1
Þjóðverjinn er skrýtin tegund af manneskju, það er óhætt að segja það. Þeir eru tildæmis alltaf að spara, og það er gaman að sjá ýmsar birtingarmyndir þess hérna í Berlín, t.d eru rúllustigar hérna á stóru lestarstöðvunum, og þeir eru ekki alltaf í gangi, heldur er skynjari sem setur þá í gang þegar einhver ætlar að nota hann.

Þurfum að hringja í kellinguna á morgun til að fá að vita hvað eru næstu skref, en með góðri lukku ættum við að fá lyklana á morgun, og vonandi að geta gengið frá mestu af pappírsútfyllingum líka. Annars er maður bara farinn að vera svona ligeglad á þessu öllu saman, þar sem þetta er eiginlega bara meira fyndið.

Setti inn nokkar myndir frá loka tímum flutning hérna, hafi fólk áhuga á að sjá þetta alltsaman.

27.1.08

Rólegt rólegt Rólegt

Þá er tveimur rólegustu dögum síðustu 3 vikna að ljúka og við að taka nokkrir erfiðir. Laugardagur og sunnudagur eru semsagt búnir að fara í það að hanga heima og horfa á videó og borða ljúffengar pizzur og drekka ljúffengan bjór. Veðrið er ekki búið að vera upp á marga fiska, og maður tekur því eins og hverju öðru hundsbiti. En við erum búin að hafa það virkilega gott það er ekki hægt að segja annað. Nú tekur bara við hin endalausa bið, og hún hefst á því að við förum á hótel, og höldum til þar þangað til á föstudag. Þá vonandi getum við farið að flytja inn.

Ég er annars á fullu að reyna að troða í mig aríunni "Di rigori armato il seno.." úr Rosenkavalier, eftir Richard Strauss, sem er notabene eina tenórhlutverkið og eina tenór arían í þessari 5-6 tíma óperu :) Nokkuð magnað.............og þegar Pavarotti söng þetta á sínum tíma, þá tók hann full laun fyrir.....!!! Það er nokkuð gott verð ég að segja, en þetta þetta er svosem langt frá því að vera auðvelt.

Hér er allt á fullu að ganga frá öllu ofan í töskur og svo er bar að vakna eldsnemma í fyrramálið og hringja á leigara, til þess að keyra okkur á hótel.

Svona er bara hið erfiða líf listamannsins....... :)

Hérna má svo sjá meistara Pavarotti syngja þessa fallegu aríu (þess ber kannski líka að geta þarna má sjá í vinkonu mína hana Kiri:)):


Di rigori armato il seno
Contro amor mi ribellai
ma fui vinto in un baleno
in mirar due vaghi rai.
Ma fui vinto in un baleno
in mirar due vaghi rai.
Ahi! che resiste puoco a stral di fuoco
cor di gelo di fuoco a stral.

25.1.08

So close........yet so far.......

Jæja ég vaknaði á venjulegum tíma í morgun en Soffía þurfti að rífa sig upp fyrir allar aldir :) Því við vorum að fara að undirrita leigusamning, og gerðum svona ráðfyrir því að í kjölfarið fengjum við loksins hina langþráðu pappíra sem þarf til að gera allt hérna í Berlín, svosem eins og að opna bankareikning, sækja um internettengingu, leigja videóspólur, fá búslóðina afhenta og svo framvegis, en þegar á staðinn var komið þá var það sko alls ekki málið.....Herra Sven Bosser var þó hin viðkunnalegasti og fór með okkur yfir eins mikið og hann gat tjáð sig á ensku sem var umtalsvert meira en flestir sem við höfum hitt hérna. EN........svo kom rúsínan í pylsuendanum, við undirrituðum einhverja pappíra, ég tel þó að mín takmarkaða þýskukunnátta hafi hjálpað til við að skilja þetta í stórum dráttum, og þar sem þetta er risastórt leigufyrirtæki, þá var þetta frekar staðlað, og ég held að við þurfum ekki að hafa of miklar áhyggjur af því að það sé verið að svindla á okkur. En í lokin kom það í ljós að við þurfum að hringja aftur á þriðjudaginn í næstu viku og tala við einhverja kellingu, sem lætur okkur hafa lykla og skrifar undir "Anmeldungið" sem er aðal pappírinn. Við erum samt búin að taka á það ráð að skrá okkur á Hotel Berlín sem er nokkuð fínt hótel og er með þráðlausu interneti, þannig að maður þarf ekki mikið að fara út í næstu viku.

Nú af söngmálum er það að frétta að við erum að flækjast fram og til baka með audition stuffið sem ég er að undirbúa, og er ég nú kominn með nýtt til að læra fyrir 8.feb, held svosem að það ætti ekki að vera vandamál. Þetta verður strembið, en ég er samt búinn að heyra comment frá píanóleikara sem hefur unnið fyrir audition liðið, og hann sagði að þau væru bara eitthvað skemmd í hausnum er þau ráða mig ekki í eitthvað :) Það er eflaust jákvætt komment.

Á bóndadaginn gladdi mín kæra Soffía mig með lífrænt ræktuðum jarðarberjum hjúpuðum í Lindt súkkulaðu og bjór (er það ekki annars lífrænt líka? :)) Og svo er stefnana að fara út að borða í kvöld á einhvern fínan Sushi stað.

Ég vil vekja athygli á því að nýjar myndir eru komnar inn, og hér til hliðar má smella og skoða þær fyrir þá sem lifa fyrir slíkt. Og til þeirra sem skipta máli segi ég "til hamingju með daginn" :) (Þau sem kjósa að sjá nauðgunarmyndmál í þessu geta bara átt sig) :)

24.1.08

Kurfürstenstrasse 75 er okkar... :)

Þá er það loksins komið á hreint og maður getur andað aðeins léttar. EN.....það er líklegt að við fáum hana ekki afhenta fyrr en 1.febrúar. Og það þýðir bara hótelgisting í eina viku eða svo. Sem ætti svosem ekki að vera mikið mál, en ég bara nenni því ekki. Ég get svosem ekki kvartað, er búinn að fá allt upp í hendurnar hérna og það er ég verulega þakklátur fyrir.

Við förum svo í fyrramálið að undirrita leigusamning á þýsku, vona bara að það sé ekkert smátt letur :) Ég mun reyna að pressa sem mest ég má á það að fá afhent fyrr, þar sem íbúðin er tóm, og ég get ekki séð að þeir tapi eitthvað á því að við komumst inn 3-4 dögum fyrr. En við sjáum til.

Við fórum aðra ferð í IKEA í gær, og fengum okkur að borða þar, alveg skítsæmilegt fyrir þennan pening. Þar fundum við rúm, fataskáp, sjónvarpsborð og sófa sem við getum hugsað okkur ásamt fleira dóti, ég leit bara svo á að þeim mun ódýrari húsgögn sem við kaupum, þeim mun dýrara sjónvarp get ég keypt mér :) ..........en það kemur allt í ljós.

Allavega, þetta er staðan í dag, kl 13:25 að þýskum tíma.

23.1.08

Evru andskoti!!!!

Um helgina gerðist sá markverði atburður að allt sem ég kaup í Berlín er nú orðið talsvert dýrara. Sem dæmi má nefna að lestarmiðinn hefur hækkað um tæpar 5 kr, flatskjársjónvarpið sem mig langar í hefur hækkað um 2700 krónur, reiðjólið sem ég ætla að fá mér hefur hækkað um 700 kr.

Þetta er bara alveg hætt að vera fyndið hvernig efnahagsástandið er orðið heima!! Maður þarf að fara reyna að koma þeim peningum sem hægt er úr landi, á meðan maður á eitthvað eftir.....

21.1.08

faxtækið misnotað

Í dag voru sendar um 10 blaðsíður í faxi til leigumiðlunarinnar, og vonandi dugar það til að klára þetta mál. Síðan þarf að fara með undirritað blað frá leigumiðluninni á sérstaka hverfisskrifstofu í Tempelhof og fá þau til að stimpla og staðfesta. Það þurfum við síðan að nota til að geta fengið bankareikning hérna, til þess að geta fengið íbúðina.....?!?!? Þetta er allt óttalega skrýtið og furðulega flókið. En ég held að þetta ætti að geta gengið.

Janet var svo dásamleg að taka við okkur og pappírunum okkar í dag, og einnig var hún með faxtæki og tölvu þannig að við gátum klárað þetta að mestu í dag. Vona svo að þetta skýrist allt á morgun og við getum bara farið að andskotast til að flytja inn, við eigum bara eftir eina viku hérna í fallegu íbúðinni á Scönhauser, og svo förum við bara vonandi beint inn í nýja íbúð á föstudag, eða í síðasta á mánudag.

Ég var svo í tíma í dag, sem gekk ekkert allt of vel, en svona er þetta bara, þetta gengur upp og niður, þó las ég að þetta væri væri versti dagur ársins samkvæmt einhverhjum útreikningum, og ég ákvað að skrifa þetta all á það :)