25.1.12

Að nenna eða ekki nenna?

Þetta er auðvitað ekki spurning um það lengur, heldur erum við á heimleið.  Í dag var gengið frá samningum við Samskip um að flytja búslóðina okkar til Íslands, eða allavega það sem eftir stendur, sem virðist nú alveg vera slatti!  Hér á bíll að koma að sæka fullpökkuð bretti Þriðjudaginn 7.Febrúar.  Það er kannski verið að taka smá séns með þessu, því ef það verður einhver seinkun þá erum við í djúpum skít.  En við borgum auka 30 Evrur fyrir að þeir komi nákvæmlega á réttum tíma og það er bara eins gott að það haldi.  Heimilið er í rúst vegna flutninganna og það er erfitt að finna suma hluti hér á bæ, og þetta ástand er aldrei skemmtilegt.  Þa

Það er skrítin tilfinning að þurfa ekki lengur að mæta á æfingar, ég mæti vissulega alla morgna kl 8:30 niður í hús til að undirbúa tónleikana á Íslandi, og það er ólíkt skemmtilegra að vinna svona tónlist sem manni þykir falleg og skemmtileg heldur en pínulítil smáhlutverk sem fara illa með röddina og sálina.  Í morgun t.d kíkti ég á æfingu hjá kollegunum, og það var ekki laust við að ég fyndi fyrir svona c.a 2% söknuði að vera ekki með þeim.  Þar er kominn gestasöngvari fyrir mig, og ekki er hann að gera mikið, frekar en venjulega.  Ég er því bara nokkuð ánægður með þessa ákvörðun mína.

Ég ákvað að bóka mér miða á Frumsýningu ÍÓ á La boheme, M&P hafa ákveðið að slást í hópinn.  Þetta verður vonandi mjög góð sýning, fyrir allan peninginn eins og það heitir víst.  Svo daginn eftir hendist ég norður í land, þar sem ætlunin er að hitta fjölskylduna mína, og hugsanlega að fara á tónleika hjá Kristni Sigmunds á Dalvík.  Þannig að það er nóg að gera þá helgina allavega :)

Tónleikaprógrammið fyrir Íslandstónleikana mína er tilbúið og plakat er tilbúið, þannig að nú er bara ekki eftir neinu að bíða nema bara fara æfa með Kristni Erni, píanóleikara :)

Jæja fleirra var það nú ekki í bili, ætli maður fari ekki að detta í bjór og tölvuleik :)

Komnar eru inn fullt af nýjum vídeóum og myndum í albúm þeirra systra hérna.

Og svo ein af þeim systrum í lokin

18.1.12

Að þurfa að telja smáaurana!

Í gær losnuðum við við stóran hluta af þungum og erfiðum húsgögnum og það er vissulega eins og þungu fargi sé af manni létt.  Þó eru nokkrir stórir hlutir eftir eins og rúm og sófi.  En vonandi losnar um það fljótlega.

Hér snjóaði í fyrradag af einhverri alvöru í fyrsta skipti í vetur.  Hér hefur hiti einnig verið í kringum frostmarkið síðustu daga.  Ekki mikill vetur verð ég að segja, en þó í áttina.

Hér var byrjað að sýna "Der Besuch der alten Dame" í Bautzen um síðustu helgi. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef sungið, en mjög erfitt.  Eftir hlé, á ég stutta setningu að syngja en ég var enn í búningkslefanum og ekki í búning þegar ég heyrði tónlistina byrja, ég hafði ekki heyrt kallið um að við værum að byrja, þannig að ég rauk af stað og klæddi mig í búninginn á leiðinni, og rétt náði inn á svið til að klára það sem mikilvægt var.  Það tók engin eftir þessu nema þeir sem þekkja atriðið, þannig að það var ekki nein katasrófa.

Mikil vinna liggur í þessu :)
Hér vorum við svo búin að safna saman öllum smápeningum til að fara með í bankann til að láta telja og leggja inn á okkur, og viti menn, ekki var peningatalningavél í bankanum en þess í stað þarf fólk að fá þar tilgerðan pappír, telja sjálfur allt smælkið og pakka því inn á sérstakan hátt, aðeins þannig er hægt að fá eitthvað fyrir það!  Ég ef oft nánast misst andlitið í samskiptum mínum við þýska kerfið, en þetta var eiginlega toppurinn, og trónir þar núna með því að "ekki sé hægt að borga með pening og það sem upp á vantar með korti" vandamálinu.

Í fyrramálið kl 10 er svo fyrsta sýning af "Litlu Töfraflautunni", þetta finnst mér nú fullsnemmt, en svona er það nú bara.  Það eru nefnilega líka ástæður fyrir því að ég nenni ekki þessu starfi :)

Hér styttist og styttist í brottför, og við hendum og hendum dóti, meðal annars dóti sem ekki hefur komið upp úr kassa í tæp 4 ár!  Það ætti að segja sitt um hversu mikið það er notað :)

Hér eru annars allir bara eldhressir og Júlía talar um lítið annað en að fara til Íslands, og ætlar með litlu prinsessu ferðatöskuna sína sem er nú þegar tilbúin til brottfarar.  Emilía er búin að vera fá sinn fyrsta graut, og virðist bara  kunna nokkuð vel við, þó hún kunni ekki borða almennilega.  En það er hægt að fyrirgefa það.  Júlía fer af og til inn á "Nick Jr" vefinn til að spila Dóru leiki í tölvunni, hún skilur ekki alveg nógu vel ennþá hvert samhengið er milli músarinnar og bendilsins, en hún er að reyna.  Þetta getur gert mann alveg geðveikan að reyna að útskýra fyrir henni hverngi þetta virkar :)

Ég skil ykkur eftir með nokkrar myndir til að skoða, þangað til næst..

Að setja á sig gloss

Mmmmm að borða sjálf

Græðgin algerlega búin að ná tökum

15.1.12

Það sem koma skal, mun koma!

Ég held að það sé í raunveruleikanum að byrja að sígjast inn að við séum að flytja burt, og hið venjulega tilfinningarót sem tengist breytingum er að byrja!  Það er aldrei þægilegt og aldrei gaman.  Það er allavega ljóst að ég mun ekkert fara að vinna fyrr en í Ágúst í fyrsta lagi, þ.e ef mér tekst að finna einhverja vinnu.  Fyrsta merki þess að allt er að fara breytast er að færri blogg eru byrjuð að detta inn.  Ég hef lítinn áhuga á að ræða vinnuna hérna meira og það sem hér gerist, þó það sé vissulega alltaf eitthvað að gerast, eins og t.d í gær þegar sviðskallið kom allt of seint og ég mætti ekki á svið fyrr en um 10 sekúndum of seint!  Þetta er mjög vond tilfinning og má aldrei aftur endurtaka sig.  Ég get rifið mig niður endalaust fyrir þetta, en þökk sé lyfjunum mínum, veldur þetta mér ekki eins miklu hugar angri og ég hélt. En kannski eru þetta ekki lyfin, kannski er þetta bara vegna þess að ég er hvort sem er að hætta hérna og þessvegna er mér skítsama?  Hver veit?  Ég er allavega feginn að vera fara.

Við erum líklegast búin að selja flest allt af stóru hlutunum sem við ætluðum að losa okkur við, og ef allt gengur upp erum við búin að fá upp í helminginn af því sem það kostar að flytja búslóðina til Íslands.  Við erum líklegast að fara missa fataskápana og aðra kommóðuna á Þriðjudaginn kemur, sem er svosem fínt, en þá þurfa fötin öll að fara í kassa :(

Það er líklega til mikils ætlast, en okkur fjölskylduna vantar c.a 4 herbergja íbúð í Reykjavík frá og með Ágúst/September á þessu ári, þannig að ef einhver sem þetta blogg les veit um eitthvað sem er að losna, eða er að leigja og leita að ábyrgum og góðum leigjendum, þá endilega senda mér skilaboð :)

Við erum búin að redda núna E-104 fyrir Soffíu vegna þess að hún flytur á undan okkur til Íslands.  Við hin eigum áfram lögheimili í Þýskalandi, því ég er enn samningsbundinn hérna til loka Júlí.  Ég er í kjölfarið búinn að semja við góða konu hérna um að leigja okkur litla íbúð fyrir lítinn pening fram til 1.Ágúst.  Svo verður að koma í ljós hvað gerist.  Soffía þarf allavega að leita sér að vinnu líka og við erum að fara detta í venjulegt fjölskyldulíf., og líklegast þennan sama góða rythma og maður var vanur, þar sem lífið missir ákveðin tilgang annan en þann að mæta í vinnuna og gera það sama á hverjum degi.  Það er svosem visst öryggi í því, en er það það sem ég vil?  Nei ég held ekki.  Ætli maður finni sér þá ekki fljótlega eitthvað að gera eins og venjulega :)

Í lokin hérna smá myndir af þeim systrum 4 mánaða gömlum.



5.1.12

Dagskrá nýs árs

Jæja, kæru vinir og fjölskylda.  Það er komið nokkuð síðan ég skrifaði hérna eitthvað siðast og það helgast aðallaega af því að virkasti hluti heilabúsins hefur verið að vinna í öðru.  Hér hefur verið æft stíft fyrir næstu sýningu, sem er reyndar endurupptekning á sýningu sem sýnd var fyrir rúmu ári síðan.  En það er einmitt sýningin sem ég hóf ferilinn á :)

Ég er ennþá, einhverra hluta vegna, ánægður með að vera að hætta þessu, þó vissulega sé mikið óöryggi í sálinni vegna framtíðarinnar.  En ég hef einhvernvegin trú á því að það rætist úr þessu, það gerir það nú yfirleitt :)  Síðustu daga höfum verið að selja húsgögnin okkar, MJÖG ódýrt, og margur þjóðverjinn hefur komist í það mjög feitt verð ég að segja.  En við erum búin að selja flest öll stóru húsgögnin hér á bæ :)  Þó er enn eftir sófinn, hjólið hennar Soffíu og líkamsræktartækið okkar fína :)  En það verður bara að fara eins og það fer.

Dagskrá tónleikanna í febrúar er að taka á sig mynd og verður vonandi boðleg þeim sem ákveða að mæta.  Maður stendur alltaf frammi fyrir mikilli sjálfsgagnrýni og nú er hún sú að fólki finnist þetta eftilvill ekki spennandi dagskrá, eða of mikið af "hitturum", en mig langar að gera þetta svona, og verð bara að ákveða að gera þetta svona samkvæt bestu vitund.  Mig langar vissulega að flytja líka ljóðaflokka eftir R.Strauss, og fleiri góða, en ég  held að það fái bara að bíða.  Mér finnst ekki endilega að það þurfi alltaf að bjóða upp á eitthvað svoleiðis.  Stundum má bara vera gaman á tónleikum, þarf ekki endileg að vera "áhugavert".

Hér er heimilið smátt og smátt að byrja að leysast upp, og sumt er komið í kassa, og annað er að finna sér leið uppúr geymslunni til þrifa og yfirhalningar. Það er skrítið að vera standa í því enn og aftur að fara flytja,  við vitum nákvæmlega ekkert hvað við erum að fara flytja mikið heim til Íslands, en það verður vonandi ekki meira en 3-4 bretti.  Sem er svosem alveg nógu dýrt.

Við erum búin að bóka flug til Köben þann 8.Febrúar, og svo frá Köben til Íslands þann 10.  Svo taka við stífar æfingar, og að lokum tónleikar í Aratungu.  Ekki er enn útséð með að halda tónleika í Söngskólanum, en það verður að koma í ljós á næstu vikum hvað mögulegt er í þeim efnum.

Komnar eru inn myndir frá Jólum og Áramótum hérna
..og svo fyrstu myndir frá nýju ári hérna.


26.12.11

Myndir

Ekki er það mikið af blaðri núna, hér eru jóla og desembermyndir komnar í albúm þeirra systra og má nálgast það hér fyrir neðan:

Desember

Jólin

24.12.11

Jól smábarnsins :)

Hvað á ég við með Jól smábarnsins? ætli myndir segi ekki meira en mörg orð :)
Jólahryggurinn að fara detta í pottinn og svona hefðbundin undirbúningur er um það bil að hefjast hér á bæ.



Verði ykkur að góðu :)
Búin að raða öllum pökkunum sjálf undir jólatréð


20.12.11

Er það farið að síast inn?

Ekki er átt við jólin heldur flutninginn frá Þýskalandi.  Erum við í alvörunni að fara flytja aftur heim til Íslands? Já það lítur út fyrir það. Þó flytjum við nú ekki alveg að fullu fyrr en samningurinn minn við húsið hérna rennur út í Júlí. Núna er bara heilinn á fullu alla daga að reyna að finna út hvað skal gera þegar heim er komið.  Það sem í boði er:
  1. Fara aftur í skóla, Söngskólann, og klára Bachelor í kennslu
  2. Fara á vinnumarkaðinn og sjá fyrir fjölskyldunni
  3. Reyna áfram fyrir mér hérna í Þýskalandi, einn.
  4. Fara í skóla á norðurlöndunum að læra eitthvað allt annað.
Ég þarf ekki að hafa áhuggjur af því að finna mér ekkert að gera en mig langar ekki að gera eitthvað sem ég á hugsanlega eftir að sjá eftir. En það sem þarf að ráða för er fjölskyldan, og líklega eru bestu kostirnir að flytja aftur heim og hætta þessum draumum um að starfa við söng í útlöndum.  Það er að auki ekki eins gaman eins og ég hélt, og því svolítið asnalegt að vera halda fjölskyldunni hérna fyrir eitthvað sem enga ánægju veitir.

Hér stefnir í rauð ljól, núna er bara heiðskýrt og sól, með 3 gráðu hita.  Svosem ágætt, þá er maður ekki að frjósa innandyra :) Hér er búið að versla alltsaman.  Hamborgarhryggurinn að þessu sinni var keyptur beint af kjötkaupmanninum á horninu, og það var svosem ekki gefins. Líklega dýrara en á Íslandi eða um 26 Evrur fyrir 2,2 kíló.  Íslenska appelsínið og þýska maltið bíða kæld inni í vetrargarði ásamt öllum pökkunum sem okkur hafa borist. Jólatréð var skreytt í gær og átti dagurinn að fara í jólaundirbúninginn að mestu. En uppúr klukkan 11 var hringt í mig frá óperunni og ég beðinn að syngja tvenna jólatónleika vegna veikinda hins tenórsins hér í húsinu, sem ég og gerði. En það þýddi vinna frá 14-22, sem er frekar truflandi svona þessa síðustu daga.  Aðrir tvennir tónleikar eru svo í dag, en ég þarf ekki að vinna á morgun nema eitthvað mikið komi uppá.  Þannig að nú er bara að vona.

Ég finn jólaskapið seytla hægt og rólega inn, þrátt fyrir snjóleysið.  Það hjálpar til að ég keypti í fyrsta skipti Hyasintu sem nú er byrjuð að blómstra með tilheyrandi jólalykt :)  Þetta er í fyrsta skipti sem hún er keypt hérna, því talið var að Soffía væri með ofnæmi fyrir þeim.  En annað hefur komið á daginn :)

Ég neyti nú lyfja að staðaldri og tel að þeirra vegna sé ég bara nokkuð slakur og mér líður bara nokkuð vel :)  Allavega er ég ekki stressaður eins og ég ætti að vera miðað við hvað er að fara gerast og það er bara nokkuð fínt.

Af þeim litlu er það að frétta að Emilía er orðin afar vakandi og sperrt, brosir mjög mikið og talar heil ósköp, sem Júlía gerði afar lítið af.  Svefninn er hægt og rólega að komast í gott horf og hún stækkar og þroskast eðlilega.  Júlía er aftur farin að fara í leikskólan og það er bara alltaf jafn gaman, þó var gamanið stutt í þetta skiptið því síðasti dagurinn  var einmitt í dag/gær :)

Á heimleið úr leikskólanum

Allir að skreyta smákökur fyrir jólin.