15.1.12

Það sem koma skal, mun koma!

Ég held að það sé í raunveruleikanum að byrja að sígjast inn að við séum að flytja burt, og hið venjulega tilfinningarót sem tengist breytingum er að byrja!  Það er aldrei þægilegt og aldrei gaman.  Það er allavega ljóst að ég mun ekkert fara að vinna fyrr en í Ágúst í fyrsta lagi, þ.e ef mér tekst að finna einhverja vinnu.  Fyrsta merki þess að allt er að fara breytast er að færri blogg eru byrjuð að detta inn.  Ég hef lítinn áhuga á að ræða vinnuna hérna meira og það sem hér gerist, þó það sé vissulega alltaf eitthvað að gerast, eins og t.d í gær þegar sviðskallið kom allt of seint og ég mætti ekki á svið fyrr en um 10 sekúndum of seint!  Þetta er mjög vond tilfinning og má aldrei aftur endurtaka sig.  Ég get rifið mig niður endalaust fyrir þetta, en þökk sé lyfjunum mínum, veldur þetta mér ekki eins miklu hugar angri og ég hélt. En kannski eru þetta ekki lyfin, kannski er þetta bara vegna þess að ég er hvort sem er að hætta hérna og þessvegna er mér skítsama?  Hver veit?  Ég er allavega feginn að vera fara.

Við erum líklegast búin að selja flest allt af stóru hlutunum sem við ætluðum að losa okkur við, og ef allt gengur upp erum við búin að fá upp í helminginn af því sem það kostar að flytja búslóðina til Íslands.  Við erum líklegast að fara missa fataskápana og aðra kommóðuna á Þriðjudaginn kemur, sem er svosem fínt, en þá þurfa fötin öll að fara í kassa :(

Það er líklega til mikils ætlast, en okkur fjölskylduna vantar c.a 4 herbergja íbúð í Reykjavík frá og með Ágúst/September á þessu ári, þannig að ef einhver sem þetta blogg les veit um eitthvað sem er að losna, eða er að leigja og leita að ábyrgum og góðum leigjendum, þá endilega senda mér skilaboð :)

Við erum búin að redda núna E-104 fyrir Soffíu vegna þess að hún flytur á undan okkur til Íslands.  Við hin eigum áfram lögheimili í Þýskalandi, því ég er enn samningsbundinn hérna til loka Júlí.  Ég er í kjölfarið búinn að semja við góða konu hérna um að leigja okkur litla íbúð fyrir lítinn pening fram til 1.Ágúst.  Svo verður að koma í ljós hvað gerist.  Soffía þarf allavega að leita sér að vinnu líka og við erum að fara detta í venjulegt fjölskyldulíf., og líklegast þennan sama góða rythma og maður var vanur, þar sem lífið missir ákveðin tilgang annan en þann að mæta í vinnuna og gera það sama á hverjum degi.  Það er svosem visst öryggi í því, en er það það sem ég vil?  Nei ég held ekki.  Ætli maður finni sér þá ekki fljótlega eitthvað að gera eins og venjulega :)

Í lokin hérna smá myndir af þeim systrum 4 mánaða gömlum.



5.1.12

Dagskrá nýs árs

Jæja, kæru vinir og fjölskylda.  Það er komið nokkuð síðan ég skrifaði hérna eitthvað siðast og það helgast aðallaega af því að virkasti hluti heilabúsins hefur verið að vinna í öðru.  Hér hefur verið æft stíft fyrir næstu sýningu, sem er reyndar endurupptekning á sýningu sem sýnd var fyrir rúmu ári síðan.  En það er einmitt sýningin sem ég hóf ferilinn á :)

Ég er ennþá, einhverra hluta vegna, ánægður með að vera að hætta þessu, þó vissulega sé mikið óöryggi í sálinni vegna framtíðarinnar.  En ég hef einhvernvegin trú á því að það rætist úr þessu, það gerir það nú yfirleitt :)  Síðustu daga höfum verið að selja húsgögnin okkar, MJÖG ódýrt, og margur þjóðverjinn hefur komist í það mjög feitt verð ég að segja.  En við erum búin að selja flest öll stóru húsgögnin hér á bæ :)  Þó er enn eftir sófinn, hjólið hennar Soffíu og líkamsræktartækið okkar fína :)  En það verður bara að fara eins og það fer.

Dagskrá tónleikanna í febrúar er að taka á sig mynd og verður vonandi boðleg þeim sem ákveða að mæta.  Maður stendur alltaf frammi fyrir mikilli sjálfsgagnrýni og nú er hún sú að fólki finnist þetta eftilvill ekki spennandi dagskrá, eða of mikið af "hitturum", en mig langar að gera þetta svona, og verð bara að ákveða að gera þetta svona samkvæt bestu vitund.  Mig langar vissulega að flytja líka ljóðaflokka eftir R.Strauss, og fleiri góða, en ég  held að það fái bara að bíða.  Mér finnst ekki endilega að það þurfi alltaf að bjóða upp á eitthvað svoleiðis.  Stundum má bara vera gaman á tónleikum, þarf ekki endileg að vera "áhugavert".

Hér er heimilið smátt og smátt að byrja að leysast upp, og sumt er komið í kassa, og annað er að finna sér leið uppúr geymslunni til þrifa og yfirhalningar. Það er skrítið að vera standa í því enn og aftur að fara flytja,  við vitum nákvæmlega ekkert hvað við erum að fara flytja mikið heim til Íslands, en það verður vonandi ekki meira en 3-4 bretti.  Sem er svosem alveg nógu dýrt.

Við erum búin að bóka flug til Köben þann 8.Febrúar, og svo frá Köben til Íslands þann 10.  Svo taka við stífar æfingar, og að lokum tónleikar í Aratungu.  Ekki er enn útséð með að halda tónleika í Söngskólanum, en það verður að koma í ljós á næstu vikum hvað mögulegt er í þeim efnum.

Komnar eru inn myndir frá Jólum og Áramótum hérna
..og svo fyrstu myndir frá nýju ári hérna.


26.12.11

Myndir

Ekki er það mikið af blaðri núna, hér eru jóla og desembermyndir komnar í albúm þeirra systra og má nálgast það hér fyrir neðan:

Desember

Jólin

24.12.11

Jól smábarnsins :)

Hvað á ég við með Jól smábarnsins? ætli myndir segi ekki meira en mörg orð :)
Jólahryggurinn að fara detta í pottinn og svona hefðbundin undirbúningur er um það bil að hefjast hér á bæ.



Verði ykkur að góðu :)
Búin að raða öllum pökkunum sjálf undir jólatréð


20.12.11

Er það farið að síast inn?

Ekki er átt við jólin heldur flutninginn frá Þýskalandi.  Erum við í alvörunni að fara flytja aftur heim til Íslands? Já það lítur út fyrir það. Þó flytjum við nú ekki alveg að fullu fyrr en samningurinn minn við húsið hérna rennur út í Júlí. Núna er bara heilinn á fullu alla daga að reyna að finna út hvað skal gera þegar heim er komið.  Það sem í boði er:
  1. Fara aftur í skóla, Söngskólann, og klára Bachelor í kennslu
  2. Fara á vinnumarkaðinn og sjá fyrir fjölskyldunni
  3. Reyna áfram fyrir mér hérna í Þýskalandi, einn.
  4. Fara í skóla á norðurlöndunum að læra eitthvað allt annað.
Ég þarf ekki að hafa áhuggjur af því að finna mér ekkert að gera en mig langar ekki að gera eitthvað sem ég á hugsanlega eftir að sjá eftir. En það sem þarf að ráða för er fjölskyldan, og líklega eru bestu kostirnir að flytja aftur heim og hætta þessum draumum um að starfa við söng í útlöndum.  Það er að auki ekki eins gaman eins og ég hélt, og því svolítið asnalegt að vera halda fjölskyldunni hérna fyrir eitthvað sem enga ánægju veitir.

Hér stefnir í rauð ljól, núna er bara heiðskýrt og sól, með 3 gráðu hita.  Svosem ágætt, þá er maður ekki að frjósa innandyra :) Hér er búið að versla alltsaman.  Hamborgarhryggurinn að þessu sinni var keyptur beint af kjötkaupmanninum á horninu, og það var svosem ekki gefins. Líklega dýrara en á Íslandi eða um 26 Evrur fyrir 2,2 kíló.  Íslenska appelsínið og þýska maltið bíða kæld inni í vetrargarði ásamt öllum pökkunum sem okkur hafa borist. Jólatréð var skreytt í gær og átti dagurinn að fara í jólaundirbúninginn að mestu. En uppúr klukkan 11 var hringt í mig frá óperunni og ég beðinn að syngja tvenna jólatónleika vegna veikinda hins tenórsins hér í húsinu, sem ég og gerði. En það þýddi vinna frá 14-22, sem er frekar truflandi svona þessa síðustu daga.  Aðrir tvennir tónleikar eru svo í dag, en ég þarf ekki að vinna á morgun nema eitthvað mikið komi uppá.  Þannig að nú er bara að vona.

Ég finn jólaskapið seytla hægt og rólega inn, þrátt fyrir snjóleysið.  Það hjálpar til að ég keypti í fyrsta skipti Hyasintu sem nú er byrjuð að blómstra með tilheyrandi jólalykt :)  Þetta er í fyrsta skipti sem hún er keypt hérna, því talið var að Soffía væri með ofnæmi fyrir þeim.  En annað hefur komið á daginn :)

Ég neyti nú lyfja að staðaldri og tel að þeirra vegna sé ég bara nokkuð slakur og mér líður bara nokkuð vel :)  Allavega er ég ekki stressaður eins og ég ætti að vera miðað við hvað er að fara gerast og það er bara nokkuð fínt.

Af þeim litlu er það að frétta að Emilía er orðin afar vakandi og sperrt, brosir mjög mikið og talar heil ósköp, sem Júlía gerði afar lítið af.  Svefninn er hægt og rólega að komast í gott horf og hún stækkar og þroskast eðlilega.  Júlía er aftur farin að fara í leikskólan og það er bara alltaf jafn gaman, þó var gamanið stutt í þetta skiptið því síðasti dagurinn  var einmitt í dag/gær :)

Á heimleið úr leikskólanum

Allir að skreyta smákökur fyrir jólin.


12.12.11

Röddin farin og allt í steik?

Nei kannski ekki alveg svo slæmt, en vegna hvíldarinnar undanfarna daga hefur mér þótt afar erfitt a ná fyrra formi.  En reynslan segir mér að svona sé þetta bara, það er þó ekki þar með sagt að maður sé sáttur við þetta ástand, og andleg líðan fylgir raddlegu ástandi mjög þétt.  Þetta þekkja þó líklega ekki aðrir en söngvarar.  Maður er bara hálfur maður þegar röddin er ekki til staðar.  Í gær voru jólatónleikar í Zittau, sem gengu svosem ágætlega þó vottaði hafi fyrir smá einbeitingarleysi hjá mér á fyrri tónleikunum, sem var svo snarlega lagfært á þeim seinni :)  Í morgun var svo fyrsta æfing með aðalstjórnanda hússins sem ég hef ekki hitt síðan á fundinum fræga, og það var eins og ekkert hefði gerst, sem betur fer.  Æfingin gekk vel og lítið annað um það að segja.

Hér er ekki enn byrjað að snjóa, sem er svolítið annað en á sama tíma í fyrra, en þá var hér allt undirlagt í snjó og gott betur en það.  Það er bara frekar milt veður, í kringum 1-2 gráður, þó svolítið hvasst.  Þannig að ekki er hægt að kvarta mikið yfir því. Vona þó að við fáum smá snjó fyrir jólin, það er bara sama sagan og alltaf.

Herra og Frú Blobel, sem eru nágrannar okkar hér á efrihæðinni eru hjón á aldrinum 75-80 ára.  Þau eru afskaplega yndislegt fólk og þykir mjög vænt um Júlíu, og tala alltaf um hvað hún er hress og skemmtileg.  Við Júlía fórum í heimsókn til þeirra í kvöld, aðallega til að spyrja hvort hægt væri að versla jólatré í göngu fjarlægð, sem reyndist ekki alveg vera raunin. En þau leystu Júlíu út með gjöfum og mikilli gleði, og það gladdi þau mikið að fá svona heimsókn.  Sem var auðvitað mjög gleðilegt fyrir okkur líka.  Ég sagði þeim að við værum á leiðinni burtu, og þau urðu afar sorgmædd yfir þeim fréttum og fannst það nú ekki það besta sem gæti gerst. En svona er þetta bara og þau skildu það auðvitað mjög vel. Það er ákveðin tilhlökkun í mér að fá að fara og færa þeim forláta konfektkassa frá Íslandi í jólagjöf. Og vonandi nær maður að smella mynd af þeim hjónum til minnis um tíma okkar hér í Görlitz.

Það stefnir allt í það að við flytjum alfarið til Íslands á næstu mánuðum, ég fer hugsanlega að bæta við mig kennara réttindum og einhverju slíku, og Soffía fer að reyna að finna sér einhverja vinnu.  Það er allavega ósanngjarnt af mér að láta börnin mín gjalda þess að ég sé óánægður með starfið mitt og það sem er í boði.  Kannski vegna reynsluleysis eða kannski vegna þess að ég á bara ekki að vera standa í þessu mannskemmandi starfi sem þessi söngur er, alllavega svona í byrjun.  Ég ræð allavega ekki við þetta eins og er, og því er ráð að láta staðar numið í bili.

Í dag var svo verið að leika sér með þeim systrum og voru þessar myndir teknar í kjöfarið :)






9.12.11

Unproductive tímabilið

Ef hægt er að kalla þetta leiðinlega tímabilið, þá geri ég það.  Ég er reyndar búinn að vera í fríi frá vinunni í rétt tæpa viku núna (þó eru 3 sýningar núna um helgina).  En í fríinu er ég búinn að ná upp fyrri starfsorku.  En andlega á ég ekki mikið meira  :)  Það helgast af því að hér eru tvær (3) sem þurfa nánast stöðuga athygli, og það tekur meira á en ég hélt.  Ég er nánast hættur að svara tölvupóstum, og er engu búinn að koma í verk.  Sem er magnað miðað við að ég sé búinn að vera í "fríi".  En þetta er bara fjölskyldulífið.  Það er líklegast ljótt að halda því fram að tími með fjölskyldunni sé vinna, en upplifunin er þannig :)  Ekkert slæmt um það að segja. Þetta er líka ánægja, þannig að það má ekki misskilja orð mín :)

Hér er verið að reyna að koma Emilíu í einhvern svefn rythma, og erum við Soffía búin að eiga nokkra góða daga saman meðan allir aðrir sofa í smá stund.  Höfum náð einum til tveimur þáttum á kvöldi, og það má bara teljast mjög gott!

Júlía er komin með niðurgang, þar sem slíkt er að ganga í leikskólanum, og það er frekar pirrandi.  Henni líður samt ótrúlega vel og engin vanlíðan virðist fylgja því önnur en hin augljósa. Hún er orðin frekar frek/ákveðin og það er yfirleitt eitthvað vesen að koma henni í svefn, og að hafa ofan af fyrir henni á daginn.  kannski er ég bara svona lélegt foreldri en mér finnst þetta mikið :)

Eins og flestir vita erum við á leið til Íslands í Febrúar, og ég hef í hyggju að halda þar einsöngstónleika í Aratungu og jafnvel í Reykjavík líka. Þetta er þó eins og annað ekki meitlað í stein.  En ég vona að af þessu geti orðið.  Efnisskráin verður hin glæsilegasta og áheyrilegasta og líklegt að þar muni allir finna eitthvað við sitt hæfi.  Dagskráin mun samanstanda aðallega af Ítölskum sönglögum, en að sjálfsögðu mun ég henda inn smá þýsku og íslensku líka, bara svona til að gæta jafnræðis.  Þannig að það er von mín að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Mér dettur alltaf svo margt í hug sem ég ætti að skrifa um í þessu bloggi mínu, svo sem eins og einhverjar félgaslegar ádeilur eða gagnrýni á hitt eða þetta sem mér mislíkar. Eins og ég gerði einu sinni í gömlu bloggi, nær allt aftur til ársins 2004, og líklega væri hægt að núa nösum mínum uppúr einhverju sem ég segi þarna, en þetta er hluti af því sem ég var á þessum tíma og þó að ég sé ekki alltaf sammála öllu sem ég sagði þá, þá er þetta samt sá sem ég var og gerði mig að því sem ég er, þannig að því ber að taka sem slíku :)

Jæja, þangað til mér dettur eitthvað skynsamlegra í hug verður þetta bara að duga :)
Komnar eru inn myndir fyrir Desember mánuð