Jæja, von okkar um að fá nú að njóta þess að eiga ungabarn er úr myndinni! Guð geðveiki og hans föruneyti af hálfvitum frá Satanshólum 5, hefur ákveðið að við eigum að fá að ganga í gengum það aftur að eiga "magabarn". Þetta er verulega svekkjandi, og mun þýða það að í fysta lagi í Janúar getur maður farið að "njóta" þess að eiga barn, þ.e ef maður verður ekki algerlega búinn að tapa geðheilsunni. Það gerðist næstum því síðast, en þá þurfti ég ekki að vinna neitt, og gat verið heima eins mikið mögulegt var. Nú er það ekki svo og ég er nánast ekkert heima, flesta daga, kem nánast bara heim til að sofa, og Júlía þarf á allri manns athygli að halda þann litla tíma sem maður er heima.
Ég veit að hlutirnir gætu verið verri með alvarlegum veikindum eða öðru slíku. En þeir sem ekki hafa átt alvöru "magabarn", heldur bara börn sem grenja 1-2 tíma á sólarhring, vita ekki hvað er verið að tala um hér.
Ég var að koma fra Berlín fyrir nokkrum mínútum, að skutla Tengdó á flugvöllinn. Júlía kom með mér og það gekk bara afar vel. Það er ekki laust við að að mér setjist kvíði þegar ég hugsa til þess að núna við höfum engan til að hjálpa okkur. Hún hefur reynst algerlega ómissandi, eftir andvökunætur, þannig að Soffía geti allavega hvílt sig á meðan ég er í vinnunni. Hún sá hér um ýmis heimilsverk, svo við gætum hvílst. Það er hætt við að hér fari bara allt í steik. Það er skrítið að tala svona þegar liðin er rétt rúm vika, en líkamsminnið og andleg reynsla segir okkur í hvað stefnir. Við vorum alltaf bjartsýn með Júlíu, því við þekktum þetta ekki, og við bjuggumst alltaf við því að þetta væri að verða betra, og að við gætum einhverju breytt með mataræði, lyfjum eða öðru. En nú vitum við bara að EKKERT virkar annað en að bíða í 3 mánuði!
16.9.11
13.9.11
Þær sem öllu skipta
Já það má kannski segja að peningar skipti engu, þó þeir geri það vissulega. Það má segja að fjölskyldan sé allt, en hún er það ekki ef dóp og annað rugl eyðileggur allt saman. Það sem má segja um fullyrðingar er einmitt þetta, ekkert stenst og ekkert er rétt.
Pólitísk rétthugsun er vandamál nútímans.
En hvað um það, þá eru komnar inn nokkra nýjar myndir í Sept albúmið, og nýjar myndir byrja frá og með ÞESSARI.
Pólitísk rétthugsun er vandamál nútímans.
En hvað um það, þá eru komnar inn nokkra nýjar myndir í Sept albúmið, og nýjar myndir byrja frá og með ÞESSARI.
Stoltur faðir kveður að sinni með þessari mynd sem náðist nú í kvöld.
10.9.11
Tíðindalítið en það er bara ágætt!
Hér hefur allt verið með kyrrum kjörum, sem betur fer. Ekkert sem talist getur óeðlilegt eða neitt slíkt. Ró mín er samt óttablandin, því magavesen hefst oft eftir um það bil 1-2 vikur. Það er því ekki allt orðið öruggt ennþá, en ég verð að leyfa mér að vona það.
Ég var boðaður á fund stjórans hérna til að biðja mig að taka að mér tónleika fyrir gesta söngvara sem hefur ekki tíma. Þeir eru búnir að vita af þessu síðan fyrir sumarfrí, og hafa samt ekkert gert í því fyrr en núna. Ég sagðist hreinlega ekki geta gert þetta vegna vinnuálags, sem er sannarlega mikið þessa dagana. En, vegna þess hversu vel ég er innrættur og alltaf tilbúinn að spila með, þá bauð ég honum að ég gæti gert þetta ef ég fæ að hafa nóturnar með mér á sviðinu. Hann sagðist ætla að hugsa málið, og svo frétti ég frá kollega mínum, sem sem sér um þessa tónleika að honum hafi verið sagt að láta þetta ganga upp svona :) En ég þarf ekki að stressa mig því ég verð með nóturnar með mér :) Þetta er líka skemmtileg tónlist sem ég fæ að syngja, og mig hefur alltaf langað til að læra.
Fyrir áhugasama þá eru komnar inn myndir í Egilsdaughter albúmið(ótrúlega sniðugt að þurfa ekki að búa til nýjan account fyrir nýtt barn :))
Og svo hérna skemmtileg samanburðarmynd á þeim systrum þar sem þær eru báðar 3 daga gamlar.
![]() |
| Emilía-----------------------------------Júlía |
8.9.11
7.9.11
Fyrsti dagurinn ( bara MYNDIR) :)
Sú litla mætt í heiminn :)
Eins og lesendur G+ og Fb hafa vafalaust séð er hér mætt á svæðið lítil ungfrú. Hún fæddist kl 1.10 í nótt.
Dagurinn var þannig að ég var allan daginn á æfingum niðri í óperu, og var ekki búinn fyrr en um 21:20. Það var þá sem að ég uppgötvaði að hjólinu mínu hefði verið stolið!!! Beint fyrir utan óperuhúsið! Ég fór beint til lögreglunnar og tilkynnti það. Gjörsamlega búinn á því arkaði ég heim á leið, í hálfgerðu sjokki yfir þessu. Það er bara virkilega erfitt að sætta sig við svona lagað. Þegar ég kem heim byrja ég á að útbúa mér eitthvað að borða þar sem ég hafði ekki borðað neitt síðan í hádeginu. Ég ákvað að fá mér einn bjór til að skola þessu niður. Klukkan var þá um 22:30, ég var ekki fyrr lagstur upp í rúm gjörsamlega lamaður af þreytu og pirringi yfir þessu hjólamáli. Þá fer bara allt af stað, vatnið farið og undirbúningur fyrir ferð á fæðingardeildina. Ég hringdi fyrst upp á deildina, þar sem okkur var sagt að fara að tína allt saman, og Soffía gæti þessvegna skellt sér í sturtu ef hún vildi. Ég hringdi í rólegheitum á sjúkrabíl, og þar var eitthvað panik í gangi, því þeir sögðu að það gæti allt gerst, sérstaklega eftir að vatnið er farið og annað barn. Þeir voru því komnir eins og skot. en við vorum bara enn að taka okkur saman. Við erum svo komin upp á fæðingadeild um kl 23:30, og frúin sett í sónar og eyðublöð fyllt út. Svo fer þetta bara smám saman af stað og rétt fyrir kl 1:00 fer allt á fullt og þessi litla ungfrú er fædd 10 mínútum síðar.
3530 grömm og 50 cm
Og fyrir þá sem vilja gefa eitthvað þá er það eina sem okkur raunverulega vantar er þetta hérna eða eitthvað svipað:
http://www.amazon.de/Philips-SCD525-00-DECT-Babyphone-Testsieger/dp/B003PJ6IRC/ref=sr_1_1?s=baby&ie=UTF8&qid=1315386259&sr=1-1

4.9.11
40 vikur, been there...!!
Jæja þá er þessi dagur runnin upp aftur og þvímiður ekkert virðist vera að gerast hér á bæ. Það er hreint með ólíkindum ef við ætlum að fara ganga í gengnum nákvæmlega sama ferlið og síðast. Sem vekur upp vissan ótta fyrir því sem koma skal. Kannski aftur magabarn? Merkilegt að ég sé ekki fullur tilhlökkunar. Dagurinn er reyndar ekki búinn, og margt getur gerst á næstu klukkutímum, en ég stórefa það.
Í dag er líka stór dagur hérna í vinnunni, fyrst er í Görlitz opið hús hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum, og þar á meðal hjá óperunni. Það þýðir auðvitað að við þurfum að syngja eitthvað. Það er allavega dagskrá fyrir utan húsið kl 15 í dag. Og svo í kvöld eru tónleikar þar sem gefinn verður forsmekkurinn af því sem koma skal í vetur. Ég þarf að syngja þar 3 númer, þar af aðeins eitt sem vekur einhvern áhuga hjá mér. Dagurinn í dag verður því sem svo margir dagar í Görlitz, erfiður og lítið gefandi.
Það hefur hlýnað talsvert hérna aftur, eftir hálfgert kuldakast síðustu daga, og í dag á að vera mjög hlýtt.
Inn eru komnar fleiri myndir í Ágúst albúmið hennar Júlíu, og eitt vídeó. Vídeóið hafa nú reyndar bara G+ áhangendur haft aðgang að, en nú er það í boði fyrir alla :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)