7.9.11

Fyrsti dagurinn ( bara MYNDIR) :)

ATH að hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær skýrari og stærri :)

Elskar að vera stóra systir

Einn koss

Maður er varla mikið annað en stolltur.

Strax aðeins byrjuð að lyfta höfði

Annar koss

Vildi fá að gera alveg eins og pabbi





Með Ömmu Sísi, allt þarf að vera eins að sjálfsögðu :)


Sú litla mætt í heiminn :)

Eins og lesendur G+ og Fb hafa vafalaust séð er hér mætt á svæðið lítil ungfrú.  Hún fæddist kl 1.10 í nótt.

Dagurinn var þannig að ég var allan daginn á æfingum niðri í óperu, og var ekki búinn fyrr en um 21:20.  Það var þá sem að ég uppgötvaði að hjólinu mínu hefði verið stolið!!!  Beint fyrir utan óperuhúsið!  Ég fór beint til lögreglunnar og tilkynnti það.  Gjörsamlega búinn á því arkaði ég heim á leið, í hálfgerðu sjokki yfir þessu. Það er bara virkilega erfitt að sætta sig við svona lagað.  Þegar ég kem heim byrja ég á að útbúa mér eitthvað að borða þar sem ég hafði ekki borðað neitt síðan í hádeginu. Ég ákvað að fá mér einn bjór til að skola þessu niður.  Klukkan var þá um 22:30, ég var ekki fyrr lagstur upp í rúm gjörsamlega lamaður af þreytu og pirringi yfir þessu hjólamáli.  Þá fer bara allt af stað, vatnið farið og undirbúningur fyrir ferð á fæðingardeildina.  Ég hringdi fyrst upp á deildina, þar sem okkur var sagt að fara að tína allt saman, og Soffía gæti þessvegna skellt sér í sturtu ef hún vildi.  Ég hringdi í rólegheitum á sjúkrabíl, og þar var eitthvað panik í gangi, því þeir sögðu að það gæti allt gerst, sérstaklega eftir að vatnið er farið og annað barn.  Þeir voru því komnir eins og skot. en við vorum bara enn að taka okkur saman.  Við erum svo komin upp á fæðingadeild um kl 23:30, og frúin sett í sónar og eyðublöð fyllt út.  Svo fer þetta bara smám saman af stað og rétt fyrir kl 1:00 fer allt á fullt og þessi litla ungfrú er fædd 10 mínútum síðar.

3530 grömm og 50 cm

Og fyrir þá sem vilja gefa eitthvað þá er það eina sem okkur raunverulega vantar er þetta hérna eða eitthvað svipað:
http://www.amazon.de/Philips-SCD525-00-DECT-Babyphone-Testsieger/dp/B003PJ6IRC/ref=sr_1_1?s=baby&ie=UTF8&qid=1315386259&sr=1-1




4.9.11

40 vikur, been there...!!

Jæja þá er þessi dagur runnin upp aftur og þvímiður ekkert virðist vera að gerast hér á bæ.  Það er hreint með ólíkindum ef við ætlum að fara ganga í gengnum nákvæmlega sama ferlið og síðast.  Sem vekur upp vissan ótta fyrir því sem koma skal.  Kannski aftur magabarn?  Merkilegt að ég sé ekki fullur tilhlökkunar.  Dagurinn er reyndar ekki búinn, og margt getur gerst á næstu klukkutímum, en ég stórefa það.

Í dag er líka stór dagur hérna í vinnunni, fyrst er í Görlitz opið hús hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum, og þar á meðal hjá óperunni.  Það þýðir auðvitað að við þurfum að syngja eitthvað.  Það er allavega dagskrá fyrir utan húsið kl 15 í dag.  Og svo í kvöld eru tónleikar þar sem gefinn verður forsmekkurinn af því sem koma skal í vetur.  Ég þarf að syngja þar 3 númer, þar af aðeins eitt sem vekur einhvern áhuga hjá mér.  Dagurinn í dag verður því sem svo margir dagar í Görlitz, erfiður og lítið gefandi.

Það hefur hlýnað talsvert hérna aftur, eftir hálfgert kuldakast síðustu daga, og í dag á að vera mjög hlýtt.

Inn eru komnar fleiri myndir í Ágúst albúmið hennar Júlíu, og eitt vídeó.  Vídeóið hafa nú reyndar bara G+ áhangendur haft aðgang að, en nú er það í boði fyrir alla :)

29.8.11

Ruslakallinn

Þá er liðin tæp vika af vinnu eftir langt og gott frí.  Hér er allt með kyrrum kjörum, þvímiður.  Það væri nú skemmtilegra ef eitthvað færi nú að gerast.  Það er bót í máli að hér hefur kólnað talsvert og er nú bara rétt um 17-18 gráður.

Í gær var svo fyrsta sviðsframkoma tímabilsins, en þar voru öll tónlistaratriði sumaróperunnar flutt. Auðvitað var ég sá eini sem þurfti að mæta smink, og þurfti að vera með þessa stórkostlegu skallahettu, sem er svo þægileg.  Ég er svo búinn að vera á æfingum kvölds og morgna alla daga!  Ótrúlega gaman. Mér finnst svo gaman að mæta í vinnuna til að gera bara það sem mér finnst leiðinlegt og óáhugavert, en þannig er það nú búið að vera þvímiður, og mun verða í heilt ár í viðbót, takk fyrir.  Ég fór á fyrstu músíkæfingu í dag fyrir óperuna "Schwanda der dudelsackpfeifer", og mér mikilliar undrunar er nánast búið að klippa allt mitt út, þannig að ég stend uppi með um 7-8 setningar af mjög óáhugaverðum línum! Svo tekur við nútímaópera, þar sem ég hef líka eitthvað frekar lítið að syngja, þar næst er það svo Eugene Onegin, þar sem ég fæ allavega eina litla aríu, sem er voða falleg, en ekki merkileg og ekki mikilvæg.  En svona er það nú bara.  Ég er því hérna í hlutverki ruslakarlsins, sem tekur það sem engin annar vill, en hver sem er ætti að ráða við.

Ég var því minntur á það í dag á æfingu, að ég er sannarlega að fara segja upp samingi mínum hér í október. En þvímiður þarf ég að hanga hér fram til Júlí á næsta ári.

Ég er farinn að skoða skóla í Svíðþjóð eða Danmörku, en er ekki búinn að finna neitt sérstakt eins og er. Spurning hvað úr verður.

Ég er í mikilli kreppu hvað þetta varðar núna, því auðvitað vil ég trúa því að ég eigi heima í þessum bransa, og að ég geti vel haldið uppi aðalhlutverki í óperusýningu.  Ég þarf ekki að vera alltaf í aðalhlutverki! Ég skil vel að í litlum húsum er reynt að dreifa álaginu og gefa öllum séns.  Allavega hafa allir mínir kollegar fengið séns, og meira en einn á einu ári. Ég hef ekki fengið einn séns, og mun ekki fá á tveimur árum.  Þrátt fyrir að hafa gert allt sem mögulegt er að gera í minni stöðu.

Næsta skref er að reyna að fara aftur að syngja fyrir, og kostirnir eru svosem engir við það.  Við þyrftum að vera einhverstaðar þar sem auðvelt er fyrir fólk að koma í heimsókn, sem útilokar strax um 85% af þýskalandi. Og þá er ekki um auðugan garð að gresja.  Og eins og áður hefur verið sagt, þá á þetta ekki bara að snúast um að mín fjölskylda elti mig skilyrðislaust um allt, í þeirri von að ég fái eitthvað að gera, og hvað þá mannsæmandi laun.  Svo eru aðrir sem segja að maður bara verði að halda þetta út núna í byrjun og þá lagist þetta.  Ég bara trúi þvímiður ekki.

Jæja, best að fara undirbúa æfingu kvöldsins, fulla af innblæstri og listrænni fullnægju.

24.8.11

Hitablogg, ólétta og vinna og söngþjálfun.

Úff, það verður nú að segjast að hitinn í dag var verulega hár.  Mjög svo áreiðanlegar mælingar sem framkvæmdar voru hér um miðjan dag sýndu, svo ekki var um villst, að hitinn, í skugga fór í 36,5°C!  Annað eins hefur maður ekki upplifað held ég.  Og þó :)  En þetta er spáin næstu 2-3 daga, svo á þetta nú að verða bærilegra.  Á dögum sem þessum er gott að fá sér bjór og það er gott að vera bara inni :)

Í gær var brunað til Berlínar, í þeim tilgangi að ná í tengdó.  Ég er kominn í mjúkinn hér hjá bílaleigunni Sixt, þar sem við leigjum vanalega okkar bíla.  Þau láta mig alltaf fá nokkuð góða bíla, og það er ekkert annað en ánægjulegt.  Þau þekkja mig þegar ég geng inn og heilsa mér með nafni.  Reyndar sjá þau nafnið mitt alltaf á pöntunar seðlinum, því auðvitað vita þau að einhver er að koma að sækja bíl :)  Allavega, ferðin gekk vel, og ég ákvað að nota ferðina til að hitta á Wolfgang kennarann minn í Berlín, það var einstaklega góður tími, og hann var mjög ánægður.  Skildi vel ákvörðun mína um að hætta í þessu veseni, en ákvað samt að benda mér á að sækja um á þremur stöðum þar sem hann er í persónulegum kunningskap við aðalstjórnendur :)  Auðvitað fagnaðarefni, en á endanum er það nú samt alltaf fyrirsöngurinn sem ræður, og þar stendur alla jafna hnífurinn í kúnni.  En hann sýndi mér þó enn og aftur að ég get þetta alveg, og röddin er ekki vandamálið, skrítið samt að hann sé einn af örfáum sem virðast hafa þá skoðun!:)

Á morgun er svo fyrsti vinnudagurinn, hann hefst kl 10 þar sem öllum er smalað saman og nýjir aðilar kynntir til sögunar, og farið yfir breytingar eða hvaða rugl það er sem kemur til með að taka við okkur á komandi tímabili. Að því loknu eða um kl 11, þá hefst fyrsta æfing tímabilsins, og auðvitað er ég þar efstur á blaði í smáhlutverki mínu, og reyndar þarf ég að mæta um kvöldið líka.  Ekki kæmi það mikið á óvart ef ég þyrfti hreinlega að mæta alla daga á næstunni, bæði kvölds og morgna.  En svona er nú líf þeirra sem taka ruslið.

Barnið er ekkert að láta kræla á sér, sem er miður, en hver veit?  kannski gerist eitthvað í nótt!  Ég hringdi allavega í dag á fæðingardeildina til að spyrjast fyrir um hvort hægt væri að kom að skoða aðstöðuna, og það var nú reyndar lítið má.  Við þurfum bara að hringja á undan okkur, og kanna hvort ekki sé allt laust.  Það verður því reynt að detta í það á morgun.  Annars bíðum við bara "spennt".  Ég upplifi mun meira stress í þetta skiptið en áður. Ég veit ég kann ekki neitt, og sama hvað ég kann, þá er ekkert sem undirbýr mann fyrir "magabarn", það er bara þannig, og þetta er greinilega að eilífu brennt í geðið á manni! En svo lengi sem þetta verður ekki alvarlegra en það, þá ber manni að þakka fyrir?!?

Allavega, það er gott að vera búinn að fá tengdó hingað til að lækka álagsstigið um nokkur prik, við þurfum þá allavega ekki að hafa áhyggjur af Júlíu.

Ein matarmynd í lokin, og eins og áður sagði, þá verða fyrstu fréttir af væntanlegum co-erfingja settar inn á Google+
Góðar stundir,
Ótrúlega gaman að borða klúklingalæri :)



22.8.11

Þegar ég hélt að við værum sloppin!

Það sér ekki fyrir endan á veseni hérna úti, ég sem hélt að við værum komin á lygnan sjó eftir að hafa afgreitt tryggingamál farssællega, eða svo hélt ég.  Þetta hefst þannig að þegar við vorum hjá lækni, þá tilkynnit hún okkur að við ættum rétt á því að hringja á sjúkrabíl vegna fæðingar.  Fínt mál, og það var bara það sem við ætluðum að gera.  En NEIIIIIIIII, ekki var það alveg svo einfallt, þegar við hittum ljósðmóðurina sagði hún okkur að til þess að geta tekið sjúkrabíl, þurfum við svokallað Transportschein, sem við eigum að fá uppáskrifað hjá lækninum.  En þær í móttökunni hjá lækninum segja að við þurfum að fá staðfestingu frá sjúkratryggingunum um að þeir muni borga, sem þeir gera.  En sjúkratryggingarnar segja að þeir gefi ekki út neinn slíkan pappír, en að þeir muni borga ef læknirinn skrifar upp á það.  Þannig að við erum ekki að fara fá neinn svona pappír, og þurfum því líklega að taka leigubíl!!  Sem við vitum ekki einusinni hvort muni vilja taka okkur.

Í framhaldi af kvörtun sem ég sendi svo til sjúkratrygginganna hérna fékk ég símtal í dag þar sem mér var tjáð að Soffía og Júlía væru ekkert tryggðar hérna!  Sem vakti bæðu furðu mína og konunar sem ég talaði við því bæði Soffía og Júlía eru með tryggingaskírteini frá umræddu fyrirtæki og ég er með staðfestingu á því að þær séu tryggðar hérna. En ég þurfit samt sem áður aftur að fylla út eyðublöð, aftur!, til að þær yrðu aftur tryggðar.  Ég er löngu hættur að skilja þetta bull, en ég kláraði umræddapappírsvinnu núna áðan og sendi.  Þannig að áhugavert verður að sjá hvað gerist næstu daga.

Ég veit ekki hvort ég á að vera þora að storka örlögnum, en á morgun kemur tengdó, til að aðstoða okkur með Júlíu á meðan barnið kemur í heiminn.  Þar sem Soffía er gjörsamlega komin á steypirinn, þá erum við frekar hrædd um að eitthvað fari að gerast í dag eða á morgun.  Það má hreinlega ekki gerast, en ég tel að miðað við þá heppni sem við erum þekkt fyrir þá mun þetta líklegast gerast á morgun fjótlega eftir að við erum lögð af stað héðan.  Ef ekki, þá er það bara frábært mál og þakkarvert.  En betra væri ef þetta myndi fá að bíða fram á Miðvikudag :)

Hér hefur veðurfar breyst umtalsvert síðustu vikuna, og hér er um 25-28°C hiti alla daga og spáin fyrir seinni helming vikunnar er rúmlega 30°C, þannig að við erum að fá allt góða veðrið á einu bretti, og með því koma moskítóflugurnar sem allir elska.  Lítið við því að gera, nema reyna að láta það ekki á sig fá.

Ljósmóðir býst við að eitthvað fari að gerast í þessari viku og því er viðbúið að eitthvað fari að gerast.

Fyrstu fréttir munu detta inn á Google+ og kannski seint og um síðir á Facebook og svo þetta blogg.
Þannig að ef þú ert ekki komin á Google+ þá er hérna boðsmiði að skrá sig :)