| Á leið upp á Landeskrone, fjallið okkar Görlitzbúa |
Við fórum til Dresden í innkaupaferð, þar sem við keyptum stærra rúm handa Júlíu, hún sefur nú í því án teljandi erfiðleika, sem er alveg magnað! En hún hefur eitthvað átt erfitt með að sofa greyið og vaknar um 3svar-4sinnum á nóttu vælandi yfir einhverju og einhverju, ef það er ekki af því að hún er þyrst, þá er það afþví að hún finnur ekki dudduna eða þarf að láta snýta sér :) Sem er tilbúið vandamál og tilkomið vegna þess að hún þarf alltaf að grenja svo mikið. Þetta er afskaplega þreytandi og skapar leiðinlegan vítahring fyrir okkur.
| FD á Brúnni í Bastei |
Hér var steikjandi hiti allan tíman á meðan þau gömlu voru í heimsókn, ég kvartaði ekki. En sumum fannst þetta þó heldur of heitt, og það væri lygi ef ég segði ekki að það væri voða þægilegt núna að fá smá svalara loft og lægra hitastig í nokkra daga. Við notuðum tímann í góða veðrinu m.a til að fara í stutta róðrarferð á ánni Neisse, og svo dagsferð til Sächsische Schweiz, þar sem við skoðuðum Bastei, sandsteina byggðina, og bæinn Rathenau, sem er hinumegin við ánna. Líklegast hefði maður nú gert meira ef maður hefði ekki verið með smábarn, ólétta konu og tvö gamalmenni í eftirdragi :) En þetta var mjög góð ferð, fínt að hafa svona risastóran þjóðgarð hérna rétt hjá.
Ecoli sýkinging hefur haft sín áhrif á okkur eins og aðra, aðallega í því að við kaupum og borðum síður grænmeti. En þó er það nú að breytast og fer væntanlega að aukast eitthvað. En þetta er búið að vera hlægilegt mál og erfitt, þar sem fólk þorir ekki að kaupa grænmeti.
Æfingar eru að komast á rennslis stig fyrir sumaróperusýninguna Im Weisses Rössl, sem frumsýnt verður 24.Júní nk, og lítið fer að verða um frítíma. Þó ætlum við familían að skella okkur til Berlínar þann 17.Júni og hitta vini ásamt því að fara í sónar til að að láta tékka bumbubúanum. Svo er aldrei að vita nema maður skelli sér í veislu í ráðherrabústaðnum, þar sem haldin verður árlegur fagnaður. Það er því nóg framundan, sem beturfer allt skemmtilegt og jákvætt og ætla ég þar með að láta staðar numið að sinni.
Hérna eru svo komnar inn fullt af myndum frá Júnímánuði, þar sem hæst bar heimsókn ömmunar og afans.
| Heimasætan myndast vel með Bastei í bakgrunni |