Frá síðasta bloggi hefur lítt markvert gerst, annað en að bankareikningurinn minn hefur farið úr 0 í 4500 á tveimur dögum. Þetta er frelsandi tilfinning og mikill léttir, en ég á nú líklegast eftir að greiða talsverðan skatt af um 3000 Evrum, sem gæti hugsanlega náð allt að helmingi, sem er ótrúlega sorglegt og leiðinlegt, eins og skattar eru alltaf. En samt sem áður meira en áður var til og því fagna ég ákaft.
Skattaskýrslu hefur verið skilað og samkvæmt bráðabirgðarútreikningum eigum við að fá endurgreitt um 480 Evrur, sem ég tel að verði ekki, en fínt ef satt reynist. Konan sem hjálpaði mér með skýrsluna, er mjög yndisleg og hún er núna farin í það að reyna að redda okkur barnabótum frá byrjun árs 2010, því við höfum engar barnabætur fengið fyrir tímabilið 1.Janúar 2010 til 1.Ágúst 2010. Þetta er auðvitað afar óeðlilegt, en ég bara gafst upp á að reyna að berjast fyrir þessu og þakkaði bara fyrir að fá eitthvað!!! Sem er ótrúlega bjánalegt þegar maður fer að hugsa út í það. EN skattaskýrslan er allavega frá, sem er ótrúlegur léttir!
Ég er svo búinn að frumsýna La traviata, sem var auðveldara en að borða M&M. Kannski sökum þess að ég er nýbúinn að taka þátt í því erfiðasta sem ég hef gert hingaðtil, Das Lied von der Erde. Ég lofa því að ég mun ekki aftur minnast á að það í þessu bloggi, nema ég syngi það aftur einhverntíma :) La traviata var því mín ellefta frumsýning á fyrsta ári hér í Óperuhúsinu, sem ég held að sé nú bara nokkuð gott:)
Nú ég er svo búinn að syngja fyrir hérna í Görlitz.......AFTUR!!!!! Þar sem það var greinilega ekki nóg að ég sé búinn að sýna hvað ég get!! Þeim leist ágætlega á og það gæti farið svo að ég fengi eitt aðalhlutverk næsta vetur í kjölfarið. Líklegast er Adam í Der Vogelhändler, en það fæ ég allt að vita á Mánudaginn kemur. Ég er ekki bjartsýnn, því ég er farinn að hlakka til að fá þetta hlutverk, og það er alltaf vísbending um að hlutirnir fari ekki eins og ég hefði óskað mér.
Foreldrarnir koma svo hér í heimsókn á morgun að öllum líkindum, og verða hjá okkur í viku. Júlía talar um það af og til, kannski afþví að amma og afi ætla að gefa henni hjól :) En það verður gaman hvernig sem á það er litið.
Hér gengur allt sinn vana gang. Soffía vex og vex með tilheyrandi verkjum og ég vinn og vinn með tilheyrandi verkjum :) Ég ætla að reyna að taka því rólega næstu daga, vona bara að ég þurfi ekki að vera á æfingum kvölds og morgna eins og er búið að vera. Svo var ég nú búinn að taka ákvörðun um kaup á PS3 leikjatölvu eftir tónleikana mína, en ég hef ákveðið að setja þau kaup a ís þangað til allavega 9.Júni, en þá er áætlað að Sony muni lækka verðið umtalsvert. Ég tel allavega rétt að bíða eftir því :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli