2.6.11

Fyrirsöngur og tækifræri?!??!?!

Eins og ég sagði síðast frá þá söng ég fyrir hérna í Görlitz í þeirri veiku von að ég fengið kannski eitthvað bitastæðara, og það hefur nú svosem skilað sér að litlu leiti.  Ég taldi næsta öruggt að ég fengi aðalhlutverkið í Der Vogelhändler, en eins og ég vissi svosem, er það ekki raunin, merkilegt hvað ég reynist sannspár þegar ég hugsa jákvætt!!  Ég fæ allavega næst stærsta hlutverkið, sem er svosem ágætt, þó það geri líklegast ekkert fyrir mig.  En það er allavega einhver vinna á bakvið það, og mér finnst eins og ég hafi eitthvað fram að færa loksins!  Þetta er búið að vera ótrúelga leiðinleg barátta, og ég held, sannlega sagt, að þetta sé ekki rétta leiðin fyrir mig í lífinu.  Ég er einfaldlega ekki ánægður með það að vera hafður að engu, þegar kemur að því að velja í hlutverk.  Ég þarf kannski að kyngja því að ég sé ekki eins góður og ég sjálfur tel mig vera, sem er alltaf erfitt.  En ég á allavega eitt ár eftir hérna til að bæði læra, og reyna fyrir mér.  En eins og staðan er í dag er framtíðin ekki það bjartasta sem ég hef séð síðustu árin, en ég reyni í staðin að gleðjast yfir nýjum erfingja og því fólki sem stendur mér næst.  En það er ekki alltaf auðvelt að sjá það jákvæða þegar það stendur svona nálægt.  Mjög hallærislegt, en svona er það nú bara!!

M&P eru búin að vera í heimsókn síðan á Þriðjudag,  ég er búinn að vera vinna eitthvað síðan þau komu og því ekki eins mikill tími verið aflögu. En við erum þó búinn að afreka það að fara til Dresden og kaupa rúm handa Júlíu, og keyra hér um svæðið og skoða okkur um.

Í dag er svolítð sem kallast hér í Þýskalandi, Christi Himmelfart, sem er alltaf ótrúlega fyndið fyrir okkur sem erum með klósetthúmorinn á réttri stillingu :)  En í dag er líka það sem kallast MännerTag, sem þýðir að flestir ungir Þýskir karlmenn fara á fyllerí, og helst á hjólunum sinum einhvert útí náttúruna.  Það er búið að vera áhugavert að fylgjast með því.  En ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki hvað var í gangi hérna, þegar ég sá þetta í fyrsta skipti. :)  Hér í austrinu eru menn ekki eins trúaðir og í suðurþýskalandi, og því er dagurinn í dag bara fínn fyllerísdagur :) Ég get svosem skilið það :)

Júlía er búin að fá hjól frá Ömmu sinni og Afa, og það er augljóst að hún nýtur þess að hafa þau hérna í heimsókn, hegðunar mynstur hennar er allavega allt annað en við eigum að venjast, og stundum ekki á jákvæðan hátt, en svona er það bara :) Hjólið hefur ekki notið þeirrar náðar fyrir fyrir augliti ungfrúarinnar eins og vonast var eftir, hún vill bara alls ekki hjóla, og það verður ekki rætt frekar!

Hér er veður bara búið að vera sæmilegt (kringum 18-25°C), en um helgina er spáð um 30 gráðum og það þarf ekkert að fjölyrða um það hvað það verður flott.

Jæja meira verður það ekki í bili, myndir koma inn með næsta bloggi, stay tuned :)

29.5.11

Það sem engin sér...

Frá síðasta bloggi hefur lítt markvert gerst, annað en að bankareikningurinn minn hefur farið úr 0 í 4500 á tveimur dögum.  Þetta er frelsandi tilfinning og mikill léttir, en ég á nú líklegast eftir að greiða talsverðan skatt af um 3000 Evrum, sem gæti hugsanlega náð allt að helmingi, sem er ótrúlega sorglegt og leiðinlegt, eins og skattar eru alltaf.  En samt sem áður meira en áður var til og því fagna ég ákaft.

Skattaskýrslu hefur verið skilað og samkvæmt bráðabirgðarútreikningum eigum við að fá endurgreitt um 480 Evrur, sem ég tel að verði ekki, en fínt ef satt reynist.  Konan sem hjálpaði mér með skýrsluna, er mjög yndisleg og hún er núna farin í það að reyna að redda okkur barnabótum frá byrjun árs 2010, því við höfum engar barnabætur fengið fyrir tímabilið 1.Janúar 2010 til 1.Ágúst 2010.  Þetta er auðvitað afar óeðlilegt, en ég bara gafst upp á að reyna að berjast fyrir þessu og þakkaði bara fyrir að fá eitthvað!!!  Sem er ótrúlega bjánalegt þegar maður fer að hugsa út í það.  EN skattaskýrslan er allavega frá, sem er ótrúlegur léttir!

Ég er svo búinn að frumsýna La traviata, sem var auðveldara en að borða M&M.  Kannski sökum þess að ég er nýbúinn að taka þátt í því erfiðasta sem ég hef gert hingaðtil, Das Lied von der Erde.  Ég lofa því að ég mun ekki aftur minnast á að það í þessu bloggi, nema ég syngi það aftur einhverntíma :)  La traviata var því mín ellefta frumsýning á fyrsta ári hér í Óperuhúsinu, sem ég held að sé nú bara nokkuð gott:)

Nú ég er svo búinn að syngja fyrir hérna í Görlitz.......AFTUR!!!!!  Þar sem það var greinilega ekki nóg að ég sé búinn að sýna hvað ég get!!  Þeim leist ágætlega á og það gæti farið svo að ég fengi eitt aðalhlutverk næsta vetur í kjölfarið.  Líklegast er Adam í Der Vogelhändler, en það fæ ég allt að vita á Mánudaginn kemur.  Ég er ekki bjartsýnn, því ég er farinn að hlakka til að fá þetta hlutverk, og það er alltaf vísbending um að hlutirnir fari ekki eins og ég hefði óskað mér.

Foreldrarnir koma svo hér í heimsókn á morgun að öllum líkindum, og verða hjá okkur í viku.  Júlía talar um það af og til, kannski afþví að amma og afi ætla að gefa henni hjól :)  En það verður gaman hvernig sem á það er litið.

Hér gengur allt sinn vana gang.  Soffía vex og vex með tilheyrandi verkjum og ég vinn og vinn með tilheyrandi verkjum :)  Ég ætla að reyna að taka því rólega næstu daga, vona bara að ég þurfi ekki að vera á æfingum kvölds og morgna eins og er búið að vera.  Svo var ég nú búinn að taka ákvörðun um kaup á PS3 leikjatölvu eftir tónleikana mína, en ég hef ákveðið að setja þau kaup a ís þangað til allavega 9.Júni, en þá er áætlað að Sony muni lækka verðið umtalsvert.  Ég tel allavega rétt að bíða eftir því :)

22.5.11

Sumarfrí, svik og fyrirsöngur

Það má segja að sparnaður hafi bjargað okkur í bili.  Ég á að vísu von á ágætis peningaupphæð vegna tónleika síðust helgar.  En ákkúrat núna er bara allt tómt, fyrir utan 250 evrur í sparnað.  Þetta er afar leiðinlegt ástand, en þvímiður sjálfskapað!  Nú verðum við bara að reyna að þrauka  í viku í viðbót, sem er ótrúlega langur tími.  En svona er það nú bara.

Þann 18.Maí lét ég loka VISA kortinu mínu.  Ég tók eftir 4 færslum sem ég kannaðast ekki við, færslurnar voru í sænskum krónum og töldu samtals um 100.þús krónur.  Það kom mér verulega á óvart að sjá hvað ég skuldaði mikið miðað við að ég hef lítið sem ekkert notað kortið.  Ég er því búinn að láta loka kortinu og þurfti líka að senda kortið til baka til Valitor. Ásamt kvörtun. Þetta hefur skapað möguleika á ákveðnu vandamáli í sumar.  En ég á lestarmiða í sumar, og þarf að nota visakortið sem staðfestingu á kaupum!  Engu máli skiptir þó ég get vel sannað hver ég er með persónuskilríkjum, ef ég er ekki með visa kortið gæti þetta orðið mikið vandamál.  En ég vona ekki. Það er samt búið að greiða fyrir miðann, og ég sé fyrir mér að stórvandamál verði úr þessu.  Það sem verra er er að við erum að fara í sumarfrí á þessum lestarmiða, og við fengum hann á fáránlegagóðu verði.  78 Evrur fyrir lestarferð fyrir okkur 3 til Kaupmannahafnar, það verður ekki mikið ódýrara en það.  Við förum þann 12.Júlí og ætlum að vera í um 2 vikur.  Byrjum á að dvelja í Malmö í nokkra daga og jafnvel eittvað í Köben.   Síðan er ferðinni heitir til Álaborgar þar sem við ætlum að dvelja seinni vikuna.  Þetta hangir auðvitað allt saman með því að Soffía verði í ástandi til að ferðast og að við þurfum ekki að vera í einhverjum skoðunum hérna á þessum tíma.

Á næstunni hefur mér verið boðið að syngja fyrir í húsi hérna nálægt,  mig langar að gera það en það er verið að leita að tenór til að syngja aðalhlutverk í léttari kantinum.  Sem er kannski ekki nákvæmlega fyrir mig, en ég held að það geti samt verið áhugvert að reyna, þar sem ég nenni ekki að vera hérna lengur.  Vandamálið við þetta er að þeir eru að leita að tenór frá og með 1.September nk.  Sem þýðir flutningar og vesen með lítið barn nú eða stress og vesen að bíða.  En laun og möguleikar fyrir mig eru mun betri.  Auðvitað er þetta ekki síðasta tækifærið sem mér býðst, en ég gæti trúað því að þetta eigi ekki eftir að ganga upp þrátt fyrir góðan vilja og löngun.   Ég er að fá þetta í gegnum umboðsmann konu sem ég þekki frá námskeiðunum með David Jones hér í þýskalandi.  Oft eru þetta bara sambönd og aftur sambönd.  Þessi umboðsmaður hringdi í mig og sagðist sjaldan hafa heyrt svona fallega tenórrödd og var viss um að hún gæti komið mér í eitthvað.  Þetta er víst mjög krítisk kona og líka mjög góður umboðsmaður, þannig að þetta gæti nú verið verra.  Hér er allavega allt í farvegi og þetta verður bara að gerast þegar það gerist.

Sumarið er komið með tilheyrandi hita og þrumuveðri þess á milli.  Lífið gæti ekki verið betra nema ef við ættum risastórt heimili og allt of mikið af peningum :)

15.5.11

Leyfðu mér að vera fullur áfram!!

.....svo hljóðar síðasta setning tenórsins í sinfóníunni "Das Lied von der Erde" eftir Mahler, sem lesendum þessa bloggs er líklegast orðið ljóst, að ég var að syngja um helgina.  Það er væri líklega lygi ef ég segðist hafa hlakkað til að syngja þetta, því líklegast hef ég sjaldan fyllst jafnmiklum kvíða og fyrir þessa tónleika.  Það sem bjargaði þessu öllu saman var að stjórnandinn Howard Griffiths er algert gull af manni, og vinnur virkilega vel með söngvurum.  Svo er auðvitað hljómsveitin æðisleg.  Þetta er í sjöunda skipti sem ég syng með þeim og það er alltaf jafn gaman.   Fyrstu tónleikarnir voru á Föstudaginn, og gengu nú ekki alveg áfallalaust fyrir sig, þó ekki svo slæmt að upplifun fólks hefði verið neikvæð.  Það eru held ég afar fáir sem geta sungið þetta og skorið í gegnum háfaðan í hljómsveitinni og ég held ég hafi ætlað mér fullmikið þar sem ég gaf allt í botn, oft á tíðum meira en ég réði við.  Það varð til þess að eftir fyrsta ljóðið vissi ég hreinlega ekki hvort ég myndi ná að klára þetta, því tilfinningin í hálsinum var eins og allt sem þarf var væri horfið.  Mjög óþægilegt, og ég hef sjaldan verið jafn hræddur í svona aðstöðu.  En það gekk alltsaman án vandamála.  Næsta dag vaknaði ég raddlaus af kvefi og óttaðist þá auðvitað um sýningu kvöldsins!  En það gekk allt upp líka og hljómsveitin stillti sig í hóf í þetta skiptið, þannig að ég gat aðeins minnkað kraftinn.  Ég fann fyrir gífurlegri raddþreytu í síðasta ljóðinu, og náði að klára þetta á kraftinum einum saman, held að það hafi verið fátt í þeim flutingi mínum sem kallast má fágað :)  Það gladdi mig einnig mjög að sjá sendiherra okkar Íslendinga meðal áhorfenda. Ég hef aðeins kynnst þeim manni í gegnum tónleikahald mitt hér í þýskalandi og hann er mikill áhugamaður um tónlist og reynir að sækja sem flesta viðburði.  Hann kaus að koma frekar á tónleika hjá mér heldur en að horfa á Eurovision :)

Konurnar á heimilinu dvöldu á meðan í Berlín hjá Telmu og Emilíu, þar sem þær vinkonurnar Júlía og Emilía léku sér eins og þær hefðu aldrei gert annað.  Þær fóru í dýragarðin, þar sem margt var að sjá og upplifa.  Maður verður glaður sem foreldri að geta boðið barninu upp á allar þessar upplifanir sem verða vonandi seinna ánægjulegar minningar.  Bara verst að ég er ekki hluti af þessum minningum því ég var að vinna fyrir peningunum til að gera þetta allt mögulegt!  En svona er það nú bara, maður fórnar einu fyrir annað á altari lífsins, takk fyrir það.

Nú tekur við stressandi skattaskýrslugerð, fyrirsöngur og æfingar á "Im Weisses Rössl" hefjast. Það er því langt frá því að vera komið eitthvað frí hér.  En búið er að ganga frá miðakaupum til Danmerkur í sumar þegar sumarfríið hefst hérna í húsinu.  Þar er ætlunin að hitta á ættingja og reyna að slaka aðeins á áður en slökun heyrir algerlega sögunni til næstu árin.

Í dag er rigningarlegt um að litast, og hitastigið um 14°C.  Ég finn mikin mun á því að vera hér í Görlitz, og svo Frankfurt, en þar var gífurlega mikill raki og frekar óþægilegt. Hérna er bara svallt og þurrt, sem er nokkuð mikill kostur, sérstaklega á nóttunni :) Svo er bara nokkuð góð spá næstu daga, þannig að allt er gott.

Jæja meira var það ekki í bili, vona að þetta sé ekki of samhengislaust hjá mér, þar sem ég á það stundum til að nenna ekki að lesa yfir, eins og núna :)  Það hefur aldrei liðið eins langur tími milli blogga hjá mér síðan við fluttum út og það hefur auðvitað sínar ástæður eins og annað.  Nýjar myndir af ungfrúnni í eru væntanlegar, ég hendi þeim hér inn við tækifæri.

1.5.11

Austurþýskaland og 20 vikur

Það er ekki alltaf auðvelt að búa í þýskalandi, þó það sé vissulega ekki sérstaklega erfitt heldur, en eins og annarsstaðar er margt hérna sem er verulega pirrandi og oft á tíðum þannig að maður bara hreinlega skilur það ekki.  Það er kannski helst að nefna reykingar, hér virðist sem svo að nánast annarhver maður reyki, það heyrir til undantekninga, þegar ég geng til vinnu á hverjum degi, að ég lendi ekki á eftir einhverjum sjúklingi úti á götu, og þarf þá annaðhvort að auka hraðan talasvert til að þurfa ekki að anda að mér óumbeðnum reyk nú eða fara aðra leið eða hægja verulega á mér.  Umburðarlyndi mitt gagnvart reykingum er ekki að aukast við það að búa hérna, svo mikið er víst.

Um daginn átti ég von á smá pakka frá útlöndum, og þar sem virði vörunnar var ekki skráð á pakkann, því ég fékk vöruna án þess að greiða fyrir hana, þá var hann að sjálfsögðu stoppaður í tollinum.  Og ég átti þess eiginlega bara kost að sækja hann.  Sem þýddi lestarferð sem kostaði mig 10Evrur og svo um 45mín labb hvora leið.  Heilsbót, en ekki mjög einfallt. Ég átti reyndar von á meira veseni við að leysa pakkann út, því virði vörunnar var hvergi skráð.  Ég sagði þeim einfaldlega hvað þetta kostaði og þeir tóku það bara gilt, sem kom mér verulega á óvart.

Hér er mikið að gerast næstu tvær vikurnar eða svo, lokaæfingar fyrir La traviata, mjög erfiðir tónleikar, með tilheyrandi æfingum.  Ég er kominn á jaðar þess sem ég þoli, eins og venjulega.  Mér líður í raun eins og allt sé að hrynja í kringum mig og að ég ráði ekki neitt við neitt.  Ekki bætir svo úr að ég virðist vera að fá kvef eða einhver leiðinda veikindi, sem er svosem ekki skrítið þannig séð, þar sem tveir söngvarar hér í húsinu eru þegar orðnir veikir, og það er ekkert smá taugatrekkjandi að vita af því svona stuttu fyrir stóra og mikilvæga tónleika.

Hér hefur veður farið kólnandi og er framtíðarspáin í raun ekkert svakalega spennandi, þannig séð.  Hitinn í kringum 10-13 stig og sól.  Það er frekar kalt verð ég að segja.

Af barnamálum er það að frétta að við erum búin í 20 vikna sónar og þar leit allt vel út nema eitt atriði sem gæti verið slæmt en gæti líka ekki skipt neinu máli.  Þannig að Soffía þarf að fara í regluleg tékk fram að fæðingu. Einnar slagæðar naflastrengir hafa verið tengdir við hjartagalla í börnum, en það á að sjást strax í ítarlegum sónar, sem við einmitt fórum í, allt leit vel út. Það þarf samt að fylgjast með hvort barnið fái nóg næringu og vaxi eðlilega.  Ekki alveg það sem vantaði upp á stressið, en svona er það nú bara.

Hér er lokasýning á Carmen í kvöld, mikið er ég nú glaður að vera laus við það. Einnig er lokasýning á Fledermaus næstu helgi, sem ég mun hugsanlega fagna með kampavíni!!  Djöfull verð ég feginn að losna við það hlutvek úr efnisskránni!  Ég skrifaði bréf til listræns stjórnanda við húsið og lýsti í raun frati á þær ákvarðanir sem hér eru teknar, allavega hvað mig varðar og óskaði eftir svörum um það afhverju ég er ekki að fá stærri hlutverk?  Ég fékk svar í gær og þeir vilja hitta mig í smá óformlegu spjalli, því listrænn stjórnandi ræður í raun ekki miklu en ég gæti hugsanlega fengið að vita eitthvað um mína stöðu hér við húsið.

Meira var það ekki í bili, góðar stundir.

24.4.11

Les Pâques og sumar

Gleðilega páska til allra þeirra sem halda upp á það.  Páskar er asnalegt orð og er komið af hebreska orðinu pesach, lýsir reyndar ágætlega því sem gerist með þá eins og annað, þeir ganga yfir :) .  Í mínum huga eru páskarnir svosem ágætir, þó vissulega hafi þeir enga trúarlega þýðingu. Þetta er lengri helgi, vinni maður, "venjulega vinnu", en ég þarf að vinna í dag og á morgun, sem gerir þessa helgi svosem ekkert sérstaka eða spennadi í mínum huga. Þó bjargar góða veðrið öllu því sem bjargað verður, hér fór hitinn hátt í 25°C í gær, og við notuðum daginn og hjóluðum stóran hring hérna í bænum.  Hér voru svo grillaðar lambalundir í gærkvöldi.



Ungfrúin fékk svo sín páskaegg í morgun og var auðvitað alsæl með þau. Hún er búin að vera mjög dugleg og þolinmóð.  Þegar pakkinn kom, þá var henni tilkynnt að hún fengi á egg á Sunnudaginn.  Síðan þá hefur hún verið að minnast á þetta af og til, og tiltekur alltaf sérstaklega Sunnudag í því tilviki, þó hún viti ekkert hvað Sunnudagur er :)

18.4.11

20 vikur, ræktun, skatturinn og sumarið

Nú styttist í 20 vikna sónarinn vinsæla, og ætlunin er að þessu sinni að fá að vita um hvort kynið er að ræða.  Ætlunin er einnig að halda þeim upplýsingum leyndum fyrir fjölskyldu og vinum :)  Reyndar á það allt eftir að koma í ljós.  Og líklegra en ekki að þessu verði blaðrað fljótlega á einhverjum miðlum eða öðrum fjarskiptatækjum.

S&J eru mættar á svæðið, ungfrúin hefur vissulega bætt við sig í þroska síðan ég sá hana síðast.  Hún talar mjög mikið og syngur einnig mjög mikið, sem er gaman að heyra.  Mikil lífsgleði í gangi og líklega gæti maður lært sitthvað af þeirri litlu.  Það er búið að taka smá tíma að koma svefnmálum í samt lag, en það virðist nú allt vera komið núna.  Ég sef hinsvegar verr, þá á ég við að gæði svefnsins virðast hafa minkað eitthvað.  En það virðist nú líka vera jafna sig til hins betra.  Eftir fréttir af heilsufari mínu, hefur reynst afar auðvelt að hætta áfengisdrykkju, bjór heyrir nú sögunni til og rauðvín tók við í einhvern tíma.  En ég finn bara afar litla löngun í þetta og það virðist halda nokkuð vel.  Þó veit ég ekki alveg hvað ég á af mér að gera á kvöldin, því þetta var komið í svo mikin vana.  En sódavatn skilar sínu og vel það.

Ekki langt að sækja garðyrkjugenið :)
Við ákváðum að prufa að planta nokkrum fræjum af spínati og steinselju í þartilgerðan ílangan blómapott(veit ekki hvort slíkt ber eitthvað annað heiti).  Það verður áhugavert að sjá hvort eitthvað komi útúr því.  Hér sárvantar ferskt spínat, það er hvergi til hér í búðum.  Skilst að það sé að mestu selt frosið í þýskalandi!!

Nú fer að styttast í að skila þurfi skattaskýrslu hér á bæ.  Það er fínt að fá að gera það mitt í öllu stressinu, og á tungumáli sem þjóðverjar sjálfir eiga oft erfitt með að skilja.  Eins og gefur að skilja veldur þetta mér talsverðu stressi, en einhverra hluta vegna finn ég ekki þennan óþægilega óútskýranlega kvíða sem ég er vanur.  Skýringar er líklegast að leita í því að ég er á lyfjum sem lækka blóðþrýsting og er hættur að drekka áfengi!  En maður veit aldrei!

Sumarið er enn á leiðinni, og fengu þær stöllur fyrsta almennilega sumarveðrið í dag, en það var mjög hlýtt og gott í dag og því var tekinn smá túr niður í bæ, þar sem skoðuð var nýja og stórglæsilega H&M verslunin á staðnum.  Það er afar langt síðan ég hef séð H&M af þessari stærðargráðu.  Þetta gladdi líka konuna á heimilinu meira en orð fá lýst, því nú er komin "óléttudeild" :)

Annars er það komið héðan í bili, komnar eru inn myndir á myndasvæðið hennar Júlíu, frá Íslandsför, og 2-3 myndbönd frá sömu för.

Líklegt þykir að næsta blogg verði um páska, sem að þessu sinni verða fátæklegir, því ég er að vinna! Annars hefði stefnan verið tekin eitthvað útúr borginni.

Fyrsta sápukúlubaðið, nú kemst ekkert annað að :)