Þá er komin tæp vika síðan ég henti hér inn einhverjum línum, einungis vegna þess að það hefur lítið verið að gerast til að segja frá. Ég hef reynt að halda rútínu hér síðustu daga allavega þegar kemur að því að sofna, vakna og læra, og það hefur bara verið að ganga ágætlega. EN það vantar vissulega eitthvað hér á heimilið.
Gunnar hefur verið að koma hér á seinnipart og á kvöldin og við tökum í PS3, nánar tiltekið Borderlands, sem er þrælfínn leikur sem hægt er að spila á splitscreen, það hentar sérlega vel á stóra fína sjónvarpinu mínu :) Ég get svosem alveg núna hugsað mér hvað gæti veri gott við að eiga svona vél, en ég held samt að það fái nú að sitja á hakanum, sérstaklega þar sem ég hef allajafna ekki tíma til að eyða í eitthvað svona.
Ég er búinn að fá staðfestingu á að samningurinn minn hafi skilað sér til Görlitz og að allt sé í stakasta lagi með alltsaman sem er ótrúlega gott að heyra, var alveg farinn að undirbúa eitthvað annað :)
Ég hef líka verið ansi duglegur að prufa nýjar uppskriftir á síðustu dögum. Milli þess sem ég þarf að brjóta upp lærdóminn hendist ég í eldhúsið og hendi í einhverja uppskrift. Síðast var það kökubaka og karamellur. Karamellurnar steinlágu, en kökubakan er ónýt sökum þess að ég þurfti að nota natron í stað lyftidufts, og hef ekki reiknað það alveg rétt, því bragðið er viðbjóður. Ég hef því hugsað mér að henda í aðra innan skamms og vera þá búinn að kaupa lyftiduft til að nota í staðinn. Nú og svo henti ég líka í tómatböku, sem var verðlaunauppskrift í gestgjafanum á síðasta ári. Það heppnaðist stórvel og mun ég án efa gera slíkt aftur.
Næstu vikuna verð ég svo á bíl, þar sem Ásgeir Páll er að fara til Íslands í viku og ég ætla að taka bílinn hans á meðan. Þorvaldur Þorvaldz verður hér svo gestur um helgina vegna þess að hann er að fara í prufu í Hamborg. Það verður því nóg um að vera hér næstu daga.
Meira síðar.