Hér í Berlín snjóaði gríðarlega um og eftir áramótin. Hitinn hefur líka verið um og undir frostmarki allan tímann, þó hefur það gerst einn og einn dag að plústölur hafa sést á mælinum. Plústölurnar þýða þó bara það að snjórinn sem er fyrir þiðnar aðeins og harðnar svo allsvakalega þegar næsta frost lítur við. Þetta hefur skapað miklar hættur hér í umferðinni og erfiðleika við að leggja bílum, vegna þess að þar sem bílastæðin eru hafa myndast þykkir klaka slabbar sem bæði halda bílunum inn í stæðunum og gera afar erfitt að leggja í stæði, en ég hef nú svosem ekki klikkað á því hingað til. Eitt stærsta vandamálið við þetta er að fólk notar síður bílana sína, sem þýðir að öll stæði eru nánast upptekin allan daginn, og því veigrar maður sér við að fara eitthvað því það tekur dágóða stund að finna annað stæði.
Lyklavandi
Ég var að hendast út áðan til að færa bílinn í löglegra stæði þegar ég skellti hurðinni og fattaði að ég hafði gleymt lyklunum inni!! Ég panikaði þó ekki, því í einhverju ruglinu hafði ég skilið eftir gluggann í eldhúsinu opinn, sem ég geri aldrei ef ég er að fara út, en ég ákvað að láta hann vera opinn til að lofta aðeins út. Eftir að hafa vegið og metið kostina í stöðunni, ákvað ég að banka upp á hjá nágrananum og fá að hendast út á sameiginlegu svalirnar og þaðan inn um gluggann.
Tölvuvandi
Ekki svo mikill vandi kannski :) En ég hef haft hér til umráða forláta PS3 vél, hún hefur valdið því að ég hef verið að spila meira en góðu hófi gegnir síðustu daga. Eigandi vélarinn er kemur reglulega í heimsókn og við tökum í einhvern góðan leik saman. Ég er búinn að klára 2 leiki á þessum tíma: Borderlands og Uncharted 2, leikir sem ég mæla afar mikið með :) Manni líður svolítið eins og maður hafi tapað klukkustundum, ef ekki dögum úr lífi sínu á þessu spileríi.....en maður verður að fá að gera þetta af og til líka.
Bíómyndavandi
Fór á sérstaka "screening" sýningu á Wannsee myndinni sem ég kom fram í, þar er í stystu máli hægt að segja að þetta sé svona "gyðingar eru bestir" mynd, þar sem flest allir listamennirnir eru gyðingar. Sumt fannst mér bara einum of og tónlistin var að mestu leiðinleg, en svona er það bara, þetta er smekksatriði. EN samt leiðinlegt. Þó heyrist nú ansi vel í mér þarna :)
Afmælisvandi
Þar sem ég er enn og aftur að bæta við mig ári er komið að þeirri stundu þar sem ég held litla veislu. Þvímiður er það án litlu fjölskyldunnar minnar sem er á Íslandi, en í staðin býð ég söngkennaranum mínum og hinum Íslendingunum í létta afmælisveislu. Vandinn er auðvitað sá að nú þarf ég að fara þrífa hér allt hátt og lágt og elda og vesenast það er alltaf fáránlega tímafrekt, en auðvitað líka alltaf gaman.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli