17.2.10

Rauðhetta litla á leið til ömmu sinnar

..eða næstum því. Hún var að þessu sinni á leið á öskudagsball :)

15.2.10

Engin var bollan á þessu heimili

En ég fékk þessa senda í dag, hún dugði mér :)

14.2.10

Afmæli 2010

Eins og svo oft áður þá átti ég afmæli :) Ég bauð í létt matarboð og átti ég von á 8-10 gestum, þar af voru svo 4 sem afboðuðu á síðustu stundu þannig að ég sit nú uppi með ógrinni matar, sem er reyndar afar góður þó ég segi nú sjálfur frá :) Allt á matseðlinum fyrir utan brauðréttin týpíska hef ég aldrei gert áður og það stendur einhversstaðar í "veisluhöld 101" að maður eigi ekki að bjóða upp á mat sem maður hefur aldrei gert áður :) En þetta gekk allt upp og gestirnir virtust ánægðir með þetta. Ég tók nokkrar myndir og birti þær hérna í stað þess að segja meira.

Kökubaka með basil steinselju og fetaosti

Grísk spínatbaka

Smjördeigssnúðar með papriku, sólþurrkuðum tómötum og steinselju

Tómat og mozzarella baka

Gestirnir



10.2.10

Bílastæðavandi, lyklavandii, tölvuvandi, bíomyndavandi og afmælisvandi...eitthvað fleira?

Bílastæðavandi
Hér í Berlín snjóaði gríðarlega um og eftir áramótin. Hitinn hefur líka verið um og undir frostmarki allan tímann, þó hefur það gerst einn og einn dag að plústölur hafa sést á mælinum. Plústölurnar þýða þó bara það að snjórinn sem er fyrir þiðnar aðeins og harðnar svo allsvakalega þegar næsta frost lítur við. Þetta hefur skapað miklar hættur hér í umferðinni og erfiðleika við að leggja bílum, vegna þess að þar sem bílastæðin eru hafa myndast þykkir klaka slabbar sem bæði halda bílunum inn í stæðunum og gera afar erfitt að leggja í stæði, en ég hef nú svosem ekki klikkað á því hingað til. Eitt stærsta vandamálið við þetta er að fólk notar síður bílana sína, sem þýðir að öll stæði eru nánast upptekin allan daginn, og því veigrar maður sér við að fara eitthvað því það tekur dágóða stund að finna annað stæði.

Lyklavandi
Ég var að hendast út áðan til að færa bílinn í löglegra stæði þegar ég skellti hurðinni og fattaði að ég hafði gleymt lyklunum inni!! Ég panikaði þó ekki, því í einhverju ruglinu hafði ég skilið eftir gluggann í eldhúsinu opinn, sem ég geri aldrei ef ég er að fara út, en ég ákvað að láta hann vera opinn til að lofta aðeins út. Eftir að hafa vegið og metið kostina í stöðunni, ákvað ég að banka upp á hjá nágrananum og fá að hendast út á sameiginlegu svalirnar og þaðan inn um gluggann.

Tölvuvandi
Ekki svo mikill vandi kannski :) En ég hef haft hér til umráða forláta PS3 vél, hún hefur valdið því að ég hef verið að spila meira en góðu hófi gegnir síðustu daga. Eigandi vélarinn er kemur reglulega í heimsókn og við tökum í einhvern góðan leik saman. Ég er búinn að klára 2 leiki á þessum tíma: Borderlands og Uncharted 2, leikir sem ég mæla afar mikið með :) Manni líður svolítið eins og maður hafi tapað klukkustundum, ef ekki dögum úr lífi sínu á þessu spileríi.....en maður verður að fá að gera þetta af og til líka.

Bíómyndavandi
Fór á sérstaka "screening" sýningu á Wannsee myndinni sem ég kom fram í, þar er í stystu máli hægt að segja að þetta sé svona "gyðingar eru bestir" mynd, þar sem flest allir listamennirnir eru gyðingar. Sumt fannst mér bara einum of og tónlistin var að mestu leiðinleg, en svona er það bara, þetta er smekksatriði. EN samt leiðinlegt. Þó heyrist nú ansi vel í mér þarna :)

Afmælisvandi
Þar sem ég er enn og aftur að bæta við mig ári er komið að þeirri stundu þar sem ég held litla veislu. Þvímiður er það án litlu fjölskyldunnar minnar sem er á Íslandi, en í staðin býð ég söngkennaranum mínum og hinum Íslendingunum í létta afmælisveislu. Vandinn er auðvitað sá að nú þarf ég að fara þrífa hér allt hátt og lágt og elda og vesenast það er alltaf fáránlega tímafrekt, en auðvitað líka alltaf gaman.

Meiri vandi er það ekki í bili, bónusvandinn er svo kannski sá að litla Júlía er að þroskast afskaplega hratt, er að fá allt í einu fullt af tönnum, farin kubba alveg sjálf, borðar alveg heilan helling, og verður bara alltaf sætari og sætari.

7.2.10

Görlitz

Ég rakst á nokkur skemmtileg videó um nýja heimabæinn minn og hér er eitt.


5.2.10

Tíðindalaust og skrítið

Þá er komin tæp vika síðan ég henti hér inn einhverjum línum, einungis vegna þess að það hefur lítið verið að gerast til að segja frá. Ég hef reynt að halda rútínu hér síðustu daga allavega þegar kemur að því að sofna, vakna og læra, og það hefur bara verið að ganga ágætlega. EN það vantar vissulega eitthvað hér á heimilið.

Gunnar hefur verið að koma hér á seinnipart og á kvöldin og við tökum í PS3, nánar tiltekið Borderlands, sem er þrælfínn leikur sem hægt er að spila á splitscreen, það hentar sérlega vel á stóra fína sjónvarpinu mínu :) Ég get svosem alveg núna hugsað mér hvað gæti veri gott við að eiga svona vél, en ég held samt að það fái nú að sitja á hakanum, sérstaklega þar sem ég hef allajafna ekki tíma til að eyða í eitthvað svona.

Ég er búinn að fá staðfestingu á að samningurinn minn hafi skilað sér til Görlitz og að allt sé í stakasta lagi með alltsaman sem er ótrúlega gott að heyra, var alveg farinn að undirbúa eitthvað annað :)

Ég hef líka verið ansi duglegur að prufa nýjar uppskriftir á síðustu dögum. Milli þess sem ég þarf að brjóta upp lærdóminn hendist ég í eldhúsið og hendi í einhverja uppskrift. Síðast var það kökubaka og karamellur. Karamellurnar steinlágu, en kökubakan er ónýt sökum þess að ég þurfti að nota natron í stað lyftidufts, og hef ekki reiknað það alveg rétt, því bragðið er viðbjóður. Ég hef því hugsað mér að henda í aðra innan skamms og vera þá búinn að kaupa lyftiduft til að nota í staðinn. Nú og svo henti ég líka í tómatböku, sem var verðlaunauppskrift í gestgjafanum á síðasta ári. Það heppnaðist stórvel og mun ég án efa gera slíkt aftur.

Næstu vikuna verð ég svo á bíl, þar sem Ásgeir Páll er að fara til Íslands í viku og ég ætla að taka bílinn hans á meðan. Þorvaldur Þorvaldz verður hér svo gestur um helgina vegna þess að hann er að fara í prufu í Hamborg. Það verður því nóg um að vera hér næstu daga.

Meira síðar.

30.1.10

In fernem Land

Í kvöld hljómuðu þessi orð af munni Ben Heppner í Deutsche Oper hér í Berlín. Þvímiður var maðurinn ekki alveg í toppformi, en ég naut þess engu að síður. Engu minna hlutverk var í höndum Kristins Sigmundssonar sem stóð sig það vel að maður var stoltur afþví að vera Íslendingur. Í óperunni Lohengrin eftir Wagner hljómaði margt fallegt, og þar er kannski þekktast brúðarmarsinn sem hljómar við nánast öll brúðkaup. Að lokinni óperunni hittum við stuttlega á Kristinn og héldum svo í mat á nálægum stað sem kallast Papageno, svona upscale ítalskur staður. Ég fékk mér svakalega gott tortelone með trufflum!!! MMMMMMMM. Þeir gerðu það svo enn betra með hinni skotheldu pasta eldunaraðferð að dreypa yfir garlic infused butter (hvað sem það kallast nú á íslensku) :)

Að maður sé að fara hendast í þetta starf er skrítið, og MIKLAR efasemdir sækja nú að, sérstaklega þegar litið er til þess að ég álít mig eiginlega ennþá nemanda í söng. Ég er ekkert tilbúinn í þetta!! En hvenær er maður það svosem?

Allavega ég sendi samninginn af stað í dag og því verður ekki aftur snúið :) Ég reyni að framkalla tilhlökkun en það er afar erfitt á stundum.

Bis nächstes mal.....