18.9.09

Strike One

Þá er komin annsi langur tími síðan síðast var bloggað. Helsta héðan er kannski það að ég er á leið í enn eina áheyrnarprufuna, sem er alls ekki slæmt. En ég kom einmitt frá einni slíkri í gær, þ.e í Bonn. Það var ein sú hræðilegasta upplifun sem ég hef átt að mörgu leiti. Nú þetta byrjaði allt saman mjög vel ég sat á þægilegum stað í lestinni, með engan við hliðina á mér og gat slakað á og litið yfir músíkina mína og horft á þætti til að stytta mér stundir. Ég var svo kominn í óperuhúsið í Bonn ákkurat á réttum tíma, en þá var mér tilkynnt að ég væri eiginlega of seinn, en við eigum að mæta vel fyrir settan tíma (man það næst). Allavega ég var því síðastur af 8 manns, sem var allt í lagi því mér gafst þá tími til að hita mig upp og gera allt tilbúið. Þegar inn á sviðið var komið stillti ég mér upp og byrjaði að syngja hina svínerfiðu aríu Ítalska tenórsins úr Rosenkavalier. Það gekk ekki betur en svo að ég bæði gleymdi texta og háa nótan var mjög ljót. Þetta á sér margar orsakir sem ég fer ekki í hérna, en allavega þá var næst beðinn að syngja aríu Tamínó úr Töfraflautunni, sem ég og gerði án stórra vandamála, ég held reyndar að það hafi heyrst að ég var að ýta of mikið og er nokkuð viss um að þetta hafi verið versta sýning, á mínum hæfileikum sem ég hefði mögulega getað sýnt!! Heimleiðin var svo eins ferð frá helvíti, þar sem ICE lestin var víst biluð!!! Þetta þýddi ekkert rafmagn og því engin tölva og frekar óþægileg sæti ásamt því að þurfa skipt um lest 3 sinnum á leiðinni. Ferðin tók samt sama tíma sem betur fer, eða rétt rúma 5 tíma.

Það gerir vissulega vart við sig uppgjöf við svona upplifanir, og ég er nú í þeim fasa að reyna að réttlæta það fyrir mér afhverju ég eigi að halda áfram að reyna, afhverju á ég að vera eyða þeim örfáu krónum sem eftir eru til að búa í erlendri borg án atvinnu, þar sem mikil fjárútlát eru í nám og ferðalög til að gera hluti sem eru um 10% líkur á að skili árangri!! Er maður bara að blekkja sjálfan sig með þessu öllu saman eða á maður bara að halda áfram þangað til allt er komið í óefni? Þetta er gífurlega erfitt á fyrir geðið og ef ekki væri fyrir þá staðreynd að mér þykir gaman að syngja og takast á við sjálfan mig sem hljóðfæri, þá væri ég auðvitað löngu hættur þessu bulli.

Í öðrum fréttum er svo það a ég hitti Eirík Sæland hérna yfir nokkrum bitum af Sushi, þar sem hann var hér á ráðstefnu. Það var ansi gaman að hitta hann og ræða lífsins gagn og nauðsynjar :) Auk þess sem sushiið klikkaði ekki frekar en fyrri daginn.

Júlía er við sama heygarðshornið og ég er farinn að íhuga að fá bara svefnlyf fyrir hana svo við getum nú eitthvað sofið, þó það væri ekki nema samfleytt í 5-6 tíma. Jahérna hér svona er nú bara Þýskaland í dag.

Jæja er farinn á æfingu, meira síðar.

12.9.09

Bíttu í bonnið á þér!

Guð má vita hvað þetta helvíti þýðir en þetta man ég eftir að mamma gamla sagði stundum við okkur :) Aldrei velti maður mikið fyrir sér hvað þetta þýddi samt. Efast um að þetta sé til, en ég læt það öðrum eftir að velta því fyrir sér.

Það sem varð til þess að mér datt þetta gamla "spakmæli" í hug var að ég hef verið boðaður í áheyrnarprufu í Óperuna í Bonn. Þetta eru vissulega góðar fréttir, en sigurinn er langt frá því að vera í höfn. Ég er að fara syngja Tamínó sem er óþolandi erfitt fyrirbæri auk þess sem ég þarf að sitja rúma 5 tíma í lest hvora leið, sem er svosem ekki það alversta.

Við fjölskyldan hentumst svo á bíl til Düsseldorf á miðvikudaginn svo ég kæmist í prufu fyrir umboðsmannaskrifstofu Neill Thornborrow. Það er skemmst frá því að segja að ég stóð mig mjög vel og Neill er þegar byrjður að dæla á mig fyrirspurnum og tilboðum um áheyrnarprufur!! Sem er súper flott. Eins er ég búinn að fá sent samkomulags blað, einskonar samning við umboðsmanninn að hann fái 10% af öllum mínum launum, sem mér skilst að sé mjög eðlilegt. Eins eru einhverjar prósentur teknar af konsert launum. Düsseldorf er svakalega fín borg, það litla sem okkur gafst tími til að skoða, þar sem við vorum 6 tíma á leiðinni þangað, og svo auðvitað 6 tíma aftur til baka, við gátum því aðeins stoppað í tæpa 3 tíma fyrir áheyrnarprufu og stutta skoðunarferð. Borgin er flott og að sama skapi mjög dýr að öllu leiti, en þarna mátti einmitt hvergi sjá slæðukellingar eða þ.h lið sem flytur bara til borgarinnar til að lifa á kerfinu, þar sem það er nánast ómögulegt :)

Allavega það er margt að gerast og ekki annað hægt en að reyna að hlakka til og hugsa ekki allt of mikið um peninga. Þar sem þessi ferðalög útheimta gífurlegan kostnað sem ekki verður töfraður fram úr loftinu einu saman.

Æfingar eru byrjaðar í Neukölln og ekki get ég sagt að þetta verði mjög spennandi, þá meina ég ekki svona óperureynslulega, en sviðsreynsla og vinna með öðru tónlistarfólki er alltaf til góðs.

Fyrsti tíminn hjá Wolfgang var svo í dag, og það gekk svakalega vel. Wolfgang vill koma mér í samband við aðaltónlistarstjórnandann í Düsseldorf sem er góður vinur hans. Það er bara svaka fínt ef það gengur eftir. Eftir tímann hitti ég svo Soffíu, Júlíu, Erlu og Gunnar á Hermannplatz, þar sem farið var svo í lakkrísbúð!! Ég ætlaði bara ekki að trúa því að slíkt væri til í Berlín, en þarna fæst allt sem hugurinn girnist í lakkrís, og meira að segja íslenskt nammi eins og Ópal, Draumur, Eitt Sett og eitthvað fleira smálegt. Þetta var stórkostlegur fundur, og við versluðum eilítið.

Meira var það nú ekki í bili en þetta er alveg nóg held ég að sinni, meira síðar.

8.9.09

Af guðspjöllum, æfingum og heimkomu.

Þá er ég loksins kominn heim til Berlínar, þó ég geti nú ekki sagt að það hafi verið gott að koma heim í ró og næði til að slaka aðeins á! Ég lagði af stað frá Grünberg kl 7, og missti næstum af lestinni þar vegna upplýsingaleysis. En svo tók við löng en góð lestarferð til Berlínar. Hingað var ég kominn um kl 12:30, og hélt beint heim. En þar tóku við mér andlit sem maður var búinn að sakna. Júlía litla er búin að breytast ansi mikið fannst mér, hún er orðin eilítið breiðleitari........ þ.a.l líkari mömmu sinni :) Þetta er í raun allt annað barn, hún er farin að "skríða" og kemst því orðið um allt. Gjörsamlega ofvirk, og var ekkert hrædd við pabba sinn þegar hann kom heim, pínulítið vör um sig en það var fljótt að líða hjá. Nú ekki var Egill lengi í paradís því um 15 barst símtal þar sem ég var boðaður á upplestrar æfingu í Neuköllner Oper. Ég hentist þangað og stóð sú tilgangslausa æfing til um 18:00, þá komst ég loksins heim. Hér var svo farið upp í rúm um kl 21:30 og reynt að sofa, en það gekk ekki eins vel og maður hefði vonað sökum lítils vælukjóa sem er ekki enn búin að læra að sofa. Svo var farið á aðra æfingu kl 10:30 í morgun, sú æfing stóð til rúmlega 15. Nóg að gera í stórborginni.

Í Laubach skemmti ég mér mjög vel og mæli með því að allir sem vilja komast í rosaleg sambönd og að fá borgað fyrir það á sama tíma skelli sér í næstu áheyrnarprufu. Mér tókst að vinna áhorfendaverðlaun á 2 af 4 kvöldum sem er ansi gott, þar sem ég fékk fyrir það samtals 500 Evrur. Eins komst maður í sambönd við nokkra óperustjóra sem vilja endilega fá mig í áheyrnarprufu. Þetta eru stór hús og því ekkert smáræði ef maður kemst þar að, en það á auðvitað allt eftir að koma í ljós :) Ég reyni að vera svartsýnn. Það kemur í ljós á næstu dögum hvort ég fái einhver boð eða ekki.

Auk þess að hafa verið boðið að syngja með Sinfóníuhljómsveitinni í Brandenburg, þá hef ég einnig fengið boð um að syngja Guðspjallamanninn í "Mattheusar Passíuni" í Mars nk í Berlínar Fílharmóníunni!!. Ég veit ekkert hvernig raddlega það er eða hvort ég gæti hugsanlega gert það vel, en ég held ég verði nú að samþykkja það. Maður getur ekki sagt nei í þessari stöðu, og því hef ég samþykkt að gera það, eftir að hafa rætt við Wolfgang um hvort þetta sé gerlegt. Púff, það þyrmir yfir mann á sama tíma og mikil tilhlökkun gerir vart við sig. Blendið er það nú.

Snemma í fyrramálið skal svo lagt af stað til Düsseldorf, þar sem ég er að fara í áheyrnarprufu hjá umboðsskrifstofu "Neill Thornborrow" sem er góðvinur Wolfgangs. Stress stress og aftur stress, svona er bara bransinn.

Er búinn að henda inn myndum frá Laubach hérna, við fáum svo líklega einhverjar "ekta myndir" frá sýningum seinna, ég mun þá henda þeim inn líka. Soffía setti svo inn nýjar Júlíumyndir hérna.


3.9.09

Hvað ert þú að gera 3.Október...........2010???

Þessa spurningu fékk ég núna rétt áðan þegar ég var á leiðinni í netsamband til að blogga þetta blogg um frumsýninguna sem á sér stað í kvöld :)

Sinfóníuhljómsveit Brandendburgar vill ráða mig til að syngja tenor sóloið í 9ndu sinfóníu Beethovens 3.október 2010, hvað get ég annað sagt en já :) Auðvitað veit ég ekkert hvar ég verð í heiminum þá þessum tíma eða hvort ég verð yfir höfuð að syngja einhversstaðar, en maður veit aldrei. Það er erfitt að taka þessa ákvörðun einfaldlega vegna þess að á næstu mánuðum gæti ég fengið ráðningu einhversstaðar í millitíðinni, og það er erfitt að þurfa að hugsa um þetta. EN, eins og er má maður varla við því að hugsa alltor mikið, maður verður bara að GERA, ekki hugsa of mikið. Það hefur alltaf reynst góð strategía.

Allavega, þá að máli dagsins. Í kvöld er frumsýning, c.a 2 tímar í herlegeitin. Generallinn í gær gekk mjög vel og það var samdóma álit þeirra umboðsmanna sem þarna voru að þetta sé langbesti "Oper Laubach" árgangurinn til þessa! Sem er ótrúlega gaman að heyra. Í gær fengum við svo að spjalla við aðalstjórnanda óperunnar í Frankfurt, sem sagði okkur frá ýmsu í kringum bransan og hvernig okkar staða er gagnvart þessu, hvað við eigum að passa okkur á og við hverjum við megum búast. Lítur ekki of illa út miðað við allt og allt.

Hér er tildæmis ein sópran fráGeorgíu, sem er svo rosalega mikil snobbdíva að allir eru löngu búnir að fá leið á henni, og ég hef heyrt nokkra málsmetandi menn segja að ef hún læti svona í alvöru leikhúsi yrði hún umsvifalaust rekin! Hún vill ekki vera í þessum kjól, því hún er ekki nógu sæt í honum osfrv osfrv...... og hún vælir og tuðar út í eitt. Þetta er gjörsamlega að gera alla vitlausa hérna og hún bara hreinlega skilur ekki þegar er verið að skamma hana eða útskýra fyrir henni afhverju þetta er svona. Ég meina, ég er langt frá því að vera ánægður með hvernig ég lít út í mínum búning, en ég geri það þar sem þetta er það sem vinnan gengur út á!

Allavega þarf að fara að undirbúa mig fyrir kvöldið, góðar stundir.

31.8.09

Brúðkaup Fígarós og Sumar

Ég er nú á æfingu á Finale 2 úr Brúðkaupi Fígarós, það er verið að hamra sömu atriðin aftur og aftur og svosem lítið annað að gera en að blogga, enda kominn tími til. Tíminn hefur liðið mjög hratt hérna og það er skrítið að hugsa til þess að frumsýning er aðeins eftir 2 daga.... Sem er á sama tíma bara rosalega fínt, þar sem maður er farinn að vilja breyta um umhverfi aðeins. Reyndar er þetta voðalega þægilegt, maður er eitthvað svo laus við áhyggjur hérna og getur virkilega notið þess að einbeita sér bara að söng og engu öðru, með hjálp mjög góðra manna.

Í gær fórum við í matarveislu hjá sjúklega ríkum bankamanni, og hann býr í því allra flottasta húsi sem ég hef séð. Ég mun henda inn einhverjum myndum af þessu þegar ég kem heim aftur.

Hér er bara búið að vera fínasta veður, þó frekar kalt á kvöldin og morgnanna, þá verður maður að henda sér í peysu, en það lagast nú svosem uppúr hádegi, sem betur fer. Við erum reyndar alltaf inni þannig að það kannski skiptir ekki höfuðmáli.

Nú svo var öllum hérna hent í það sem heitir "Stilberatung" sem ekki skal rugla saman við "Stillberatung" :) Það var sérlega áhugvert að fara í þetta, okkur var hjálpað með fataval og hvað passar okkar litarhafti og vaxtarlagi, áhugavert sannarlega :) Ég er semsagt "Sumar" skv þessum fræðum, og það vill einmitt svo vel til að það er einmitt litasamsetning sem ég hata hvað mest:
(tekið af einhverjum vef hjá FSU)
Sumar
:
Einkenni:Mildir litir með bláum eða gráum tón. Svalir pastellitir, oft deyfðir/dempaðir með gráu. T.d. blábleikt, off-white/milt hvítt, ljósfjólað, blágrænt. Silfrað.
Húð: Oft rósbleik, e.t.v. freknótt.
Augu: Oft græn, móleit eða dökkbrún.
Hár: Oftast ljóst, dökkskollitað, hörlitt, e.t.v. aðeins rauðleitt. Klæðir oft vel upplitun/strípur.

Það er svosem ekki margt annað um þetta að segja :)

Ég fæ reglulegar fréttir af ungfrúnni, og hún er nú byrjuð að setjast upp sjálf og labba meðfram borðum, sem er mjög gott. Hérna má svo sjá mynd af ungfrúnni þar sem hún stendur alveg sjálf, og svo aðra þar sem hún bara sæt :) Þangað til næst....


25.8.09

Blues, Schmus und Apfelmus

Hér var um síðustu helgi heljarinnar blús hátíð í bænum, sem heitir btw þessu asnalega nafni sem er titill greinarinnar. Samt svaka flott búið að skreyta garðinn hérna og það var sannkölluð karneval stemmning í bænum. Við fengum frímiða inn á hátíðina eitt kvöldið og maður nýtti sér það nú til að labba um svæðið. Þetta var nú ekki skemmtilegasta tónlist sem ég hef heyrt sem þarna var í boði, þannig að ég lét mér nægja að rölta um og skoða sölubásana, sem er alltaf skemmtilegt.

Hér er allt að smella saman og maður er orðinn örþreyttur af söng alla daga, en einhvernvegin finnur maður samt orku til að halda áfram. Það eru skemmtilegir krakkar hérna og mórallinn er mjög góður, þannig að það heldur þessu svolítið á lofti líka. Nú er búið að ákveða þetta alltsaman og við munum vera í ljótu tískubúningunum alla sýninguna, upprunalega áttum við að syngja aríurnar okkar í okkar eigin "performance" fötum, því það gefst ekki tími til að skipta.
Ég mun syngja aríu sem ég hafði ekki undirbúið áður en ég kom en kann að mestu leiti, það gengur allt vel sem betur fer. Það er búið að hengja upp lista yfir þá sem eru í dómnefnd fyrir keppnina og það eru svosem engir smá pappírar, stjórnendur húsa eins og Staatsoper í Berlín, Óperunnar í Bonn, Saarbrucken og svo eitthvað meira sem ég man ekki eins og er. Í fyrra fengu meira en helmingur þáttakenda boð um samning hjá óperuhúsi eftir sýningarnar. Þannig að ef þetta er eins og í fyrra þá á ég góðan séns held ég. Verðlaunin eru 3000, 2000 og 1000 EUR fyrir fyrstu 3 sætin og svo eru 1000 EUR áhorfendaverðlaun fyrir hvert kvöld og það er ákveðið hver vinnur það með "klappmæli", sem er ekki nógu gott fyrir mig, því ég er fyrstur á svið, og reynslan kennir manni að fólk klappar oftar meira eftir því sem á líður, auk þess sem það fer nú ekki að klappa eins og brjálæðingar fyrir fyrsta atriðinu án samanburðar við önnur atriði, það er semsagt dauðadæmt að fá það.
En ég er ekkert að velta mér uppúr því að óþörfu. Þetta er exposure og það er það sem skiptir höfuð máli.

Ungfrúin er orðin hress og búin að ná sér af hitanum, unir sér ótrúlega vel í Svíþjóð hjá frænku sinni og mömmu. Ég fékk sendar myndir frá því að ungrúin fór í myndatöku fyrir norðan, og það kemur bara vel út. Svo fékk ég líka aðra mynd senda frá því í morgun sem er ansi fyndin :)
Hérna eru myndirnar............... þangað til næst, verið þið bless.

21.8.09

Hitamet, vinna og tíska

Þá má með sanni segja að hér hafi verið heitt síðustu daga, en gærdagurinn var þó það allra heitiasta sem ég hef upplifað. En hér for hitinn í 38 gráður og hélst þannig frá hádegi til loka dags, við vorum á æfingum allan daginn eins og vanalega og þær eiga sér allar stað innan hallarveggja úr þykkum steinum og því er mjög svallt innandyra og jafnvel oft kalt. Við fórum einnig til Frankfurt í gær til að máta föt hjá tískuhönnuðinum René Storck, en við munum sýna föt frá honum á í tískusýningarþemanu sem er á þessu hjá okkur. Ég verð í fatnaði upp á tæpa miljón ISK! Ótrúlega finnst mér þessi föt nú ekki alveg vera þess virði.

Hér er unnið mjög stíft og ekki laust við að mikil þreyta sé að gera vart við sig. Ég á sem betur fer um 4 tíma frí í dag frá æfingum og ætli maður nýti það ekki til að fara reyna læra það sem ég er að fara syngja í Nauköllner Oper, en ég fékk einmitt allar nótur í gær frá þeim.

Svo eru einhverjar tilfæringar í lagavalinu mínu sem er eilítið pirrandi!! Ég sendi lista yfir 5 aríur sem ég vil gefa kost á, og þar af ættu þeir hérna að velja eina, ásamt mér til að syngja í keppninni sem er hluti af þessu prógrammi. Nema hvað allt í einu vilja þessir ágætu aðilar að ég syngi aðra aríu en það sem ég var búinn að undirbúa, málið er það að ég kann þessa aríu, en hún fer mér ekkert svakalega vel og ég þarf að taka góðan slurk í að rifja upp textann osfrv! Sem er óþolandi, því hitt allt gæti ég sungið með bundið fyrir augu eyru og munn :)

Það sem nýtt er að ég hef verið boðaður í áheyrnar prufu hjá umboðsskrifstofu Neill Thornborrow í Düsseldorf þann 9.sept nk, þetta kemur í kjölfar umsóknar sem ég sendi þeim eftir að Wolfgang hafði talað við þá og beðið um að taka mig í prufu. Þetta er skref áfram.......ekki endilega uppávið en áfram.

Júlía litla er núna fárveik í Svíþjóð með móður sinni, með háan hita og sefur því enn verr en áður, þetta er ótrúlegt ástand og alveg hreint ömurlegt að mamma hennar fái ekkert að hvíla sig, en ég vona að þetta fari nú að ganga yfir. Það er búið að fara með hana til læknis sem fann ekkert að og því þarf bara að bíða og vona að allt sé í lagi.

Þangað til næst.