Þá er ég loksins kominn heim til Berlínar, þó ég geti nú ekki sagt að það hafi verið gott að koma heim í ró og næði til að slaka aðeins á! Ég lagði af stað frá Grünberg kl 7, og missti næstum af lestinni þar vegna upplýsingaleysis. En svo tók við löng en góð lestarferð til Berlínar. Hingað var ég kominn um kl 12:30, og hélt beint heim. En þar tóku við mér andlit sem maður var búinn að sakna. Júlía litla er búin að breytast ansi mikið fannst mér, hún er orðin eilítið breiðleitari........ þ.a.l líkari mömmu sinni :) Þetta er í raun allt annað barn, hún er farin að "skríða" og kemst því orðið um allt. Gjörsamlega ofvirk, og var ekkert hrædd við pabba sinn þegar hann kom heim, pínulítið vör um sig en það var fljótt að líða hjá. Nú ekki var Egill lengi í paradís því um 15 barst símtal þar sem ég var boðaður á upplestrar æfingu í Neuköllner Oper. Ég hentist þangað og stóð sú tilgangslausa æfing til um 18:00, þá komst ég loksins heim. Hér var svo farið upp í rúm um kl 21:30 og reynt að sofa, en það gekk ekki eins vel og maður hefði vonað sökum lítils vælukjóa sem er ekki enn búin að læra að sofa. Svo var farið á aðra æfingu kl 10:30 í morgun, sú æfing stóð til rúmlega 15. Nóg að gera í stórborginni.
Í Laubach skemmti ég mér mjög vel og mæli með því að allir sem vilja komast í rosaleg sambönd og að fá borgað fyrir það á sama tíma skelli sér í næstu áheyrnarprufu. Mér tókst að vinna áhorfendaverðlaun á 2 af 4 kvöldum sem er ansi gott, þar sem ég fékk fyrir það samtals 500 Evrur. Eins komst maður í sambönd við nokkra óperustjóra sem vilja endilega fá mig í áheyrnarprufu. Þetta eru stór hús og því ekkert smáræði ef maður kemst þar að, en það á auðvitað allt eftir að koma í ljós :) Ég reyni að vera svartsýnn. Það kemur í ljós á næstu dögum hvort ég fái einhver boð eða ekki.
Auk þess að hafa verið boðið að syngja með Sinfóníuhljómsveitinni í Brandenburg, þá hef ég einnig fengið boð um að syngja Guðspjallamanninn í "Mattheusar Passíuni" í Mars nk í Berlínar Fílharmóníunni!!. Ég veit ekkert hvernig raddlega það er eða hvort ég gæti hugsanlega gert það vel, en ég held ég verði nú að samþykkja það. Maður getur ekki sagt nei í þessari stöðu, og því hef ég samþykkt að gera það, eftir að hafa rætt við Wolfgang um hvort þetta sé gerlegt. Púff, það þyrmir yfir mann á sama tíma og mikil tilhlökkun gerir vart við sig. Blendið er það nú.
Snemma í fyrramálið skal svo lagt af stað til Düsseldorf, þar sem ég er að fara í áheyrnarprufu hjá umboðsskrifstofu "Neill Thornborrow" sem er góðvinur Wolfgangs. Stress stress og aftur stress, svona er bara bransinn.
Er búinn að henda inn myndum frá Laubach hérna, við fáum svo líklega einhverjar "ekta myndir" frá sýningum seinna, ég mun þá henda þeim inn líka. Soffía setti svo inn nýjar Júlíumyndir hérna.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli