
Gærdagurinn og gærkveldið var í alla staði vel heppnað!! Ég er mjög ánægður allvega þó líklegast megi alltaf gera betur.
Þetta hófst reyndar allt á þriðjudeginum þegar við fórum til Frankfurt and der Oder, þar var æfing með hljómsveit og þess á milli farið til Póllands og fengið sér að borða á Egypskum veitingastað :) Þetta var allavega voða gaman.
Mæting var svo í Mercedes höllina kl 15:00 í gær og þar var öllu klabbinu rent í gegn einu sinni fyrir kvöldið, mér gekk ekki alveg nógu vel á æfingunni, en í staðin gekk mér mjög vel um kvöldið......þegar það skipti einhverju máli! :) Ég er bara svakalega sáttur við daginn og kvöldið. Fólk var ánægt og ég gaf eiginhandar áritun :) Nú tekur svo bara við að læra Liebesverbot fyrir Júní. Í dag er ég að fara hitta eina sóprönu sem syngur á móti mér og við ætlum að rúlla yfir dúettinn okkar með Eddy, pínóleikara. Það er því hvergi slakað á og það er að vissuleiti gott mál.

Martin Fischer-Dieskau gaf sér tíma í mynd :)

Nú það voru að sjálfsögðu tekin vídeó á staðnum og hér koma þau "exclusively" fyrir lesendur þessarar síðu :)
Gjörið svo vel, (það eru einhverjar hljóðtruflanir vegna þess að vídeóvélin mín er í einhverri steik)
Gjörið svo vel, (það eru einhverjar hljóðtruflanir vegna þess að vídeóvélin mín er í einhverri steik)
Pourquoi me Reveiller - Werther (Massenet)
La donna e mobile - Rigoletto (G.verdi)




