2.4.09

Vorið er loksins komið! ....á horni Kurfürstenstrasse.

Hér allt að byrja að springa út og veðrið er með besta móti.  Þannig líður mannig nú bara ágætlega, ég fór að taka eftir því fyrir um viku að röddin var ekki alveg að láta að stjórn, og ég skildi ekkert afhverju, en svo fór ég að tengja þegar mig byrjaði að klæja í augun og vakna með kvef, þetta er að sjálfsögðu frjómagnið í loftinu þessa dagana, og við því er aðeins eitt að gera, en það er að fá sér ofnæmistöflu og viti menn, allar truflanir eru hættar.

Hér sjáum við af og til sjónvarp frá Íslandi og ég hef nokkrum sinnum rekist á auglýsingu frá Lífstykkjabúðinni, sem er alveg hræðilegt nafn á verslun, en auglýsingunni lýkur einhvernvegin svona "Lífstykkjabúðin..... á horni Barónstígs" !!!!!!  Þetta fer mjög mikið í taugarnar á mér, þar sem fyrir mér er svona lagað ekki til.  Í fyrsta lagi er ekkert húsnúmer og í öðru lagi, ef þú ert á horni einhversstaðar er það þá ekki alltaf tvær götur sem krossa?  Nema gatan beygji og verslunin er þar á horninu, en þá hlítur að vera húsnúmer!  Jæja nóg um það, þetta er allavega óþolandi í mínum huga.

Nú svo er það að frétta af Júlíu að hún er að taka eitthvað svakalegt pirringsskeið núna, mér til ótrúlega mikillar ánægju.  Þetta er nú alvega að vera komið nóg.  Hún er í raun hætt að sofa meira en svona 1-2 tíma á dag og er í staðin mjög pirruð og vælandi.  Hún á mjög góða spretti á morgnanna og þá er virkilega gaman að vera með henni.  En svona upp úr 17-18, þá byrjar gamanið og því líkur ekki fyrr en eftir miðnætti, sem er bara æðislegt.   Við fórum í dag í smá ferð með ungfrúnna til að kíkja í "Toys'r'Us", það kom á óvart að þarna var hægt að fá fína barnavagna og kerrur sem kosta ekki mikið meira en 60 EUR!!  Magnað, bara ef maður hefði vitað af þessu fyrr, en líklega förum við og kaupum eitthvað létt til að nota í sumar, því vagninn er eiginlega of þungur.  Svona er það nú bara.    En við keyptum svona skemmtilegt mótadót til að taka mót af fótunum á Júlíu, það verður gaman að prufa það.   

Helgin fer svo í Námskeið hjá Janet Williams og tíma hjá Wolfgang, það er eiginlega synd, þar sem það á að vera svo gott veður, en þetta er í raun bara ennþá Íslenska hugsun, þar sem það er eiginlega bókað að við fáum fleiri sólardaga hér en á Íslandi :)

Guð blessi Ísland

29.3.09

Nördlingen gegn Berlín

Jæja þá erum við komin 2 tímum á undan Íslandi og verð ég að segja að það er ansi sniðugt að flýta klukkunni svona, þar sem núna er klukkan að verða hálfátta og það er ennþá bjart og fínt úti. Skrítið að þetta skuli ekki vera gert á Íslandi þar sem þetta myndi líklega gagnast ansi mörgum og gera margt skemmtilegra og auðveldara.

Nú annars er það að frétta að ég fór á námskeið í dag í einhverju sem kallast Gyrokinesis, og má eiginlega segja að þessu svipið mikið til Alexandertækni. Ég fékk það útúr þessu að ákv vandamál sem ég hef allatíð verið með í bakinu er hugsanlega leyst, en ég á nú eftir að prufa nokkrar góðar æfingar í nækkra daga/vikur til að sjá hvað gerist. Eins sá ég þarna sérstaka skó sem eru ansi merkilegir að því leiti að þeir styrkja rétta stöðu baksins og eiga að laga bara nánast öll stoðkerfisvandamál :) Nei kannski ekki alveg svo gróft en þetta er allavega helvíti sniðugt og aldrei að vita nema maður prufi þetta. Það verður líklega seint sagt að þetta séu skór klipptir úr tískutímariti, en það eina sem ég fann er þessi mynd.

Hér er annars allt gott að frétta og hitinn hækkar dag frá degi. Við erum búin að bóka flug til DK í Apríl og erum að fara til Malmö að heimsækja frænku Soffíu og Júlíu, það verður nú gaman, það sem gerir þetta svo senn skemmtilegra er að M&P plús G&B verða þarna líka á sama tíma þannig að maður hittir fólkið sitt í leiðinni sem er aldrei slæmt. Júlía er að fara í annan tímann sinn á morgun í Cranio og það er vonandi að það skili góðum árangri.

Annars langar mig í lokin að minnast á eitt sem hefur verið að angra mig, en það er Sjálfstætt fólk þáttur sem ég sá um daginn, þar var Auður Haralds gesturinn, og það sem gerði mig eiginlega smá reiðan var að hún reykir eins og strompur á dekkjabrennsluverkstæði og svo var alveg á kafi í því að lýsa því yfir að hún lætur nú ekki ofan í sig aukaefni og sneiðir algerlega framhjá slíku í mat og var nánast að hneykslast á því hvað væri mikið af aukaefnum í mat!!! Hversu mikil er sjálfsblekkingin hjá svona fólki. Reyndar má svosem taka punktinn um það að hún er allavega ekki að gera illt verra með því að borða aukaefni ofan á það sem hún reykir þau!

Ekki meira í dag EN......

NÝJAR MYNDIR

25.3.09

Samir við sig...

Þá er búið að staðfesta við mig breytingu á hlutverkum og má sjá upplýsingar um þetta allt hérna.  Svo er búið að færa "Benefiz-Gala" tónleikana fram um einn dag, þetta verður semsagt 13.Maí kl 19:50 í Mercedes Autowelt við Salzufer.  Og við erum 4 eða 5 sem komum þar fram, sem er magnað, hélt að við yrðum mun fleiri, en þetta eru ss sigurvegarar í Kammeroper keppninni, sem ég var ekki alveg klár á að ég væri að taka þátt í :)  En svona gerast hlutirnir, þegar maður á síst von á þeim.  Annað sem kom mér á óvart er að þarna verður hljómsveit undir stjórn Fischer-Dieskau eftir því sem ég kemst næst!!!  Sem er nú ekkert lítið!  Þannig að nú þarf að fara taka á því, það er alveg dagljóst.

Af þjóðverjum:  
Í morgun kl  7:30 kom "viftukallinn" til að mæla kraftin á viftunum hérna í íbúðinni, ekki skil ég nú alveg tilganginn með því, það er nú ekki eins og við köfnum ef þær virka ekki!!   Ég var svo á leið heim í dag eftir tíma hjá Wolfgang og ákvað að koma við og versla kleinuhringi á Dunkin, þar voru komnir einhverir páska kleinuhringir sem ég ákvað að kaupa, þetta var eitthvað svona skreytt dót, og afgreiðslustelpan spurði hvort ég væri að kaupa þetta fyrir börn, og ég sagði nú bara að þetta væri fyrir sjálfan mig, það fannst henni voða fyndið og vildi að ég myndi kaupa eitthvað annað í staðinn!!  Þjónustufólk hérna í Berlín er voðalega ókurteist á köflum og það er oft mjög pirrandi að eiga samskipti við það.

Júlíuhornið:
Júlía er búin að fara í fyrstu bólusetninguna sína og það voru tvær sprautur takk fyrir í hvort lærið, ekki þótti það nú gott en hún var snögg að jafna sig.  Hér gengur allt sinn vana gang með hana og virðist hún nú sofa mest og lengst þegar við bindum hana utan á okkur og löbbum með hana, fín hreyfing svosem, en ekki alltaf það skemmtilegasta.

20.3.09

Sál mannsins er gullfiskur

Jæja það hefur fátt eitt gerst hér á bæ síðan síðast.

Fyrst er kannski að nefna að Rheinsberg óperan, sem ég er að fara syngja í í sumar sendi mér tölvupóst í gær þar sem þeir báðu mig að skipta um hlutverk!  Í óperunni eru semsagt 2 tenór hlutverk, bæði eru þau stór og flokkast sem aðalhlutverk.  Þeir heita Luzio og Claudio, það var búið að bjóða mér Claudio, þar sem búið var að fylla í öll önnur hlutverk.  Ég er búinn að liggja yfir þessu og "highlighta" allt sem ég á að syngja auk þess að forvinna þetta allt með því að skanna inn í tölvu. Núna er semsagt verið að biðja mig að syngja hitt hlutverkið, Luzio, sem er mun leiðinlegra en er eiginlega álitið meira aðalhlutverk.  Það er gífurlega erfitt að ákveða þetta og ég hugsa að ég samþykki þessa breytingu þar sem það kann að vinna mér inn góðvild hjá þessu fólki.  En ég hef grun um að hinn tenórinn hafi annaðhvort gugnað á hlutverkinu og viljað eitthvað "auðveldara" eða þá að hann er svona ömurlegur að hann vill fá að syngja fallegu laglínurnar.  Claudio er semsagt mikið fallegra hlutverk á meðan hinn gaurinn er eiginlega bara leiðinlegur og oft á tíðum í mjög hárri legu, en fokk it, þetta hlítur að eiga að fara svona.

Nú ég hentist í gær og keypti mér nýjan síma, eða ölluheldur fór að fá mér samning þar sem ég nenni ekki þessu frelsis rugli og ég fékk bara nýjan síma með.  Fyrir valinu varð Xpressmusic 5800 frá Nokia og við fyrstu prófun er ég bara nokkuð ánægður með hann.  EN það varð úr að ég get ekki notað gamla númerið mitt, þannig að ég er kominn með nýtt númer!!  Sem er reyndar allt í lagi þar sem það er rosalega fínt, og ég bið ykkur að breyta hjá ykkur í hið nýja númer sem birtist neðst á síðunni.  En hvað með það, þegar ég fór að fá mér símann tók ég ungfrúnna með, bundna utan á mig og hún steinsvaf, blessunin, í 3 tíma, sem er bara nokkuð gott fyrir hana.  

Og áfram með Júlíu, hingað kom semsagt sérfróð kona í næringu og ummönnun barna, eins og ég var búinn að segja frá, og eftir tvo tíma af blaðri kom í ljós að við erum ekki að gera neitt rangt og það er ekkert sem við getum gert...og þó, við fengum að vita að núverandi vandamál Júlíu við að drekka er tengt byrjun á tanntöku, þó einungis þannig að tannræturnar eru að vaxa og það veldur miklum pirringi, og miklu slefi, og það má sjá á því líka hvað hún er mikið með hendurnar uppi í sér, auk vill hún ekki drekka því þrýsingurinn sem myndast við að sjúga meiðir hana. Allavega 2 tímum og 90 Evrum seinna komumst við að því að við gætum prufað að kaupa hómópataformúlu sem á að lina þjáningar, erum búin að vera gefa henni það og ég er ekki viss um að það dugi frekar en annað sem við erum búin að prufa, ég er því orðinn sannfærður um að ekkert sé hægt að gera nema bíða sem er eitt það leiðinlegasta og ömurlegasta sem hægt er að taka sér fyrir hendur.  Mér dettur í hug kínversk vatnsdropa pynding við þessar aðstæður.

Allavega nýja númerið er:
+49-170-1818-155 

17.3.09

Svona átti þetta nú ekki að vera!!

Þá er hafin þriðja vikan í atvinnuleysi og ég sem var búinn að setja saman ansi mikil plön um það hversu mikið ég ætlaði nú að fara læra og reyna að koma mér af stað í hreyfingu aftur.   Lítið hefur gerst síðan ég planaði þetta allt, ég er reyndar búinn að skanna inn þær 130 blaðsíður sem ég þarf að syngja af í sumar og vinna með það efni þannig að ég geti nú farið að læra af fullri alvöru.  Ég henti mér í ræktina í fyrsta skipti í gær og það var mjög gott mér leið strax betur.  EN í morgun bara komst ég ekki upp úr rúminu.....,!! Það er svolítið langt síðan mér leið svona.....síðast var það svona í kringum tvítugt.  Ég veit ekki alveg hvað þetta er en þreytan á Júlíu og hennar ástandi er nú ekki til að bæta það, þó vissulega sé hún, eins og margoft hefur komið fram, MIKIÐ betri en áður.   Hún sefur lítið sem ekkert og er þessvegna mjög mikið pirruð og stanslaust að væla, svo er grenjað ef hún er sett að sofa.  Þetta er ótrúlega skemmtilegt eða hitt þó heldur og hefur verið svona á hverjum einasta degi frá því hún fæddist, munurinn á deginum í dag og áður er að það er ekki sár grátur.  Annars er andlegt álag vegna þessa mjög svipað. 

Við erum búin að panta hingað sérfræðing í brjóstagjöf, svefni og næringu ungabarna.  Hún er væntanleg á morgun.  Ég á ekki von á að neitt komi útúr því nema að vera 90 evrum fátækari, en maður er þá allavega búinn að reyna.  Nú svo er búið að bóka ungfrúnna í ungbarnasund og frúin að fara í "endurhæfingar leikfimi". 

Sönglega er ég í lægð þessa dagana, og það er aldrei góð líðan sem fylgir því.  En ljósið í myrkrinu er að Wolfgang er komin heim úr fríi og ég er að fara hendast í tíma til hans á föstudag, það kemur aðeins til með að brjóta upp daginn og vonandi að lífga við röddina aðeins.   

Hræðilegir svona dagar, en maður hefur komist í gegnum þetta áður og mun líklega gera það aftur.

13.3.09

Ástarbannið

Þá er ég kominn með nóturnar í hendurnar og það er ekki laust við að manni hafi eilítið brugðið, þar sem þetta er ekkert smáræði, en ég vissi það nú reyndar fyrir :)  Þá er maður allavega kominn á fullt að reyna að læra  þetta.   Við fáum aðeins 10 daga í æfingar og svo er sýnt, þetta er semsagt concert uppfærsla, ss ekki leikið á sviði, sem eru vissulega vonbrigði, en það er sama þetta er mikil kynning og eins gott að gera þetta vel.

Á eftir erum við svo að fara í "Babytreffen" það eru semsagt þeir sem voru saman á geburtsvorbereitungskursinum að hittast 3 mánuðum eftir að síðasta barn fæddist.  Það verður vissulega áhugavert, en ég get ekki sagt að ég hlakki mikið til, þar sem mér leiðist nú yfirleitt eitthvað svona.