10.3.09

Þegar maður gúgglar sjálfan sig

Við venjubundna gúgglun á sjálfum mér sá ég mér til mikillar ánægjur (kannski ætti það að vera skelfing), að mín er getið í Tyrknesku dagblaði.  Veit ekki alveg hvort þetta sé jákvætt eða neikvætt, en mér sýnist af google translate að þetta sé nú ekkert alvarlegt :)

Af öðru má nefna að ég hentist í bíó í kvöld að sjá kvikmyndina "The Watchmen", trailerinn lofaði svo sannarlega góðu, en þvímður stóðst myndin enganvegin væntingar, það sem var skemmtilegt og flott, var enganvegin nógu stór hluti af myndinni.  Þetta var svipað og ein leiðinlegasta kvikmynd sem ég hef séð á síðari árum, nema öllu áhugaverðari á margan hátt.  Ég veit því ekki alveg hvort ég get mælt með henni en ég mun ekki eignast hana á DVD og ekki dl henni, svo mikið er víst.

Ég velti því fyrir mér í kvöld hvort þetta ætli engan endi að taka með hana Júlíu.  Hún bara fer ekki að sofa öðruvísi en en að genja sig til örmögnunar ásamt því að hossa hennig og hoppa með hana um öll gólf.  Ég held að síðan hún fæddist hafi ekki verið farið að sofa á þessu heimili fyrr en í fyrsta lagi 00:30 á hverju kvöldi.  Reyndar hef ég notið þess að sofna aðeins fyrr þegar þær mæðgur fóru til Íslands í janúar sl.  Við erum bæði orðin verulega þreytt á þessu endalausa veseni í henni Júlíu,  að einhverju leiti er þetta magavesen enn að hrjá hana og veldur því að hún sefur illa.  En það er eitthvað annað sem er að koma í veg fyrir að hún sofni á kvöldin.   Svo þegar maður verður "reiður" við hana, þá bara brosir hún og hlær og slær vopnin úr höndunum á manni :)  Nema reyndar þegar hún á að fara sofa, þá er öskrað og grenjað.   

Jæja fleira var það nú ekki að sinni.

Guð blessi Ísland. 


6.3.09

Að vera þannig upplagður

Þá er þessari fyrstu "vinnuviku" að ljúka og ég er smátt og smátt að melta með mér atburði liðinna daga.  Þetta er vissulega frábært að vera valinn af 460manns og ekki bætir nú úr skák tölvupósturinn sem ég fékk frá þeim í gær.  En þar stendur að ég hafi líka verið valinn til að syngja á sérstökum Góðgerðartónleikum sem haldnir verða í Mercedes höllinni hérna í Berlín þann 14.Maí nk.  Þetta eru semsagt tónleikar þar sem sérvaldir sigurvegarar úr Alþjóðlegri Söngkeppni Kammeroper 2009 koma fram.  Ég veit ekkert út á hvað það gengur en það skiptir heldur ekki máli eins og er :)

Nú svo fékk ég þetta nokkuð nákvæmlega útlistað hvernig þetta verður í sumar.

Æfingar hefjast 19. Júní og frumsýning er 27.Júní svo verða auka sýningar 10. og 25 Október í Braunschweig og fyrir það fæ ég borgað :)  Einnig vilja þau að ég taki þátt í Óperugala  sem verður haldið 2. 3. 4. og 5 Júlí.  Þetta lítur semsagt bara vel út og ég hlakka mikið til.

Í gær kíkti hingað Gunnar nokkur og við horfðum á Mad Max trílógíuna, það var ágætis skemmtun.   Á morgun eigum við svo von á Paul og Önu í kaffi, en þau voru á hinu geysiskemmtilega geburtsvorbereitungskurs með okkur.  

Júlíuhornið
Í gær rann upp fyrir okkur að Júlía hefur ekki verið að grenja út af verkjum í rúma viku!  Sem er mjög gott.  Hún hefur samt sem áður verið að grenja slatta og er mj0g vælin þegar hún tekur sig til.  Hún er ennþá með ótrúleg leiðindi þegar á að gefa henni að drekka og grenjar um leið og hún fer á brjóst, þetta er ótrúlega þreytandi og leiðinlegt, sérstaklega fyrir Soffíu, því það þarf alltaf að reyna að svæfa hana fyrst og svo bíða eftir að hún vaknar eftir um 5 mínútur og þá er hægt að gefa henni.   Við erum byrjðu að gefe blessuðu 3 mánaða barninu graut á kvöldin í þeirri veiku vona að hún muni sofa aðeins meira.  En eins og það lítur út núna virðist það ekki vera skila tilætluðum árangri, en það góða er að hún borðar grautinn og virðist alveg hafa gaman af því. Þetta fer allavega ekki illa í hana.   Það sem er að hrjá  hana núna er nefstífla sem virðist valda því að hún sefur ekki mjög vel.   Fyrir utan þetta má eiginlega segja að hún afskaplega ljúft og gott barn sem hefur mjög gaman af öllu í kringum sig.  Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur að sjá hverjsu hratt hún er að þroskast og hvað hún virðist vera með sterkar taugar.  Þetta er allavega júlíuhornið í dag, verði sæl.

Guð blessi Ísland.

4.3.09

Þá er búið að eyðileggja fyrir manni sumarið!!

Ég var búinn að hugsa mér að eyða sumrinu í að finna mér eitthvað að gera og undirbúa hin og þessi hlutverk úr ýmsum óperum, núna er orðið ljóst að það mun ekki gerast!  Heldur mun ég einungis undirbúa eitt hlutverk og einhverjar aríur.   Ástæðan fyrir þessu er að í dag var ég í svona auka áheyrnarprufu fyrir sumaróperu, eina þá stærstu hérna í Þýskalandi.  Ég komst ekki í alvöru áheyrnarprufuna vegna þess að ég var á Íslandi og sendi því inn DVD.  Skipuleggjendur hátíðarinnar óskuðu eftir að fá að heyra mig syngja í eigin persónu og það gerðist nú í lok dags.  Mér var boðið hlutverk á staðnum og ég beðinn að taka sumarið frá.   Ég tók tilboðinu náttúrulega og þakkaði pent fyrir mig.  Ég hef reyndar aldrei sungið eins vel og í áheyrnarprufunni í dag :)

Það er kannski ekki rétt að segja að sumarið sé ónýtt, en það er allavega að mestu frátekið :)
Mér var semsagt boðið hlutverk "Claudio" í óperunni "Der Liebesverbot (Ástarbannið)".   Ég á eftir að leggjast aðeins yfir þetta en mér skilst að þetta sé svínerfitt hlutverk með einu háu C!!! Allavega þá eru þetta í raun góðar fréttir þrátt fyrir að titill greinarinnar virki neikvæður :)

Ég mun því opna mér bjór í kvöld og hugsa minn gang.  Því söngvarar sem taka þátt í þessari hátið fá mikla athygli hjá Bayreuth, og stóru húsunum hérna í Þýskalandi, svo ekki sé nú talað um Metropolitan í New York.   Allavega maður mun gera sitt allra besta og ég mun hvergi spara til að gera þetta sem best úr garði.     Það er ekki mikið borgað fyrir þetta, þar sem litið er á reynsluna sem borgun.  Þó fáum við frítt fæði og húsnæði og 500 evrur í dagpeninga á meðan á æfinga og sýningatímabili stendur.

Frumsýning er 27.júní kl 20:00
Svo verða einhverjar aukasýningar annarsstaðar í ágúst.

Óperu gala
2, 3 og 4 Júlí kl 20:00
Með Brandenburger Staats Orchester
Hér syngur undirritaður 2-3 aríur

Það er því spennadi sumar framundan hjá mér og mikill stökkpallur.

27.2.09

Síðasti vinnudagurinn

Þá er komið að lokum þessa tímabils.  Skemmtileg og áhugaverð 10 ár með skemmtilegu og góðu fólki.  Ég notaði daginn í það að kveðja fólk og klára ýmis mál sem á mér hvíldu.

Ég er því kominn með nýtt símanúmer sem þið þurfið að nota ef þið þurfið að ná í mig.
Gamla númerinu 664-6232 verður lokað í kvöld eða á mánudag, það þýðir því ekkert að vera með það addressubókinni sinni lengur.  Í staðinn má notast við:
+49-162-488-0984
Endilega nota þetta númer í framtíðinni til að hringja og senda mér sms, þangað til annað er tekið fram :)

Nú er ferðinni heitið í Kaufland og IKEA til að versla inn fyrir heimilið.   Starfslokapartíið sem átti að vera í kvöld var frestað til morguns vegna ónógrar þáttöku.   Morgundagurinn hentar flestum mun betur.  Það er líka bara meiri ró í því, þó er ég reyndar á námskeiði milli 16 og 19 á morgun, en ég er á bílaleigubíl þannig að ég verð snöggur.

Nú áheyrnarprufan gekk svosm ágætlega, nema hvað ég er nokkuð viss um að ég verði ekki fyrir valinu, er meira að segja ekki alveg viss um að ég vilji það.  Þetta var pínlítill salur og mjög ljótt hús, heillaði mig mjög lítið.  Við keyrðum semsagt til Neustrelitz í gær og ferðin tók um 2 tíma, það var leiðinda veður, rigning og þunglyndislegt.   Vegurinn var einbreiður og mjög mikið af vöruflutningabílum á ferð, þannig að þetta var nú ekki skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í.  FS og FrkJ komu með og var sú síðarnefnda pirruð eins og venjulega.  Á heimleið var svo allt stopp, þar sem það hafði orðið eitthvað slys, ég notaði GPS tækið og fann aðra leið heim, en það þýddi um 30 mín lengri för, það hefði hvort eð er verið eitthvað svipað að bíða í röð.   Júlía er skemmtileg og góð og svo grenjar og grenjar, engin veit afhverju, en búið er að komast að því að hún þegir og er róleg fyrir framan sjónvarpið, nú og svo var að detta í hús stóll sem miklar vonir eru bundnar við, en það er þessi hérna.  Nú verður gaman að sjá hvort þetta virki eitthvað :)

Jæja þá er þessi vinnudagur búinn, og ég stimpla mig út í síðasta skipti.......

25.2.09

Kominn aftur til Berlínar

Þá er maður kominn aftur á heimilið sitt umkringdur sínu dóti og með geymslupláss og ekki tilfinninguna að vera inni á einhverjum.

Það er vissulega gott að vera kominn aftur, en auðvitað saknar maður alltaf fólksins síns.  
Hér tekur nú við smá törn í að gera sig að alvöru söngvara.  Síðasti vinnudagurinn minn er á föstudaginn og hef ég boðið í léttar veitingar hérna á Kurfürsten í tilefni af því að nú hefst nýr kafli í mínu lífi, kafli sem verður vonandi stærri og meiri en sá sem lokið hefur verið við auk þess má segja að þetta sé einnig 10 ára afmæli mitt í vinnu á sama vettvangi.  Það verður skrítin tilfinning að hafa engar skildur nema gagnvart sjálfum sér og fjölskyldunni.

Á morgun  hendist ég upp til Neustrelitz þar sem ég er að fara í áheyrnarprufu fyrir lítið hús þar í bæ.  Við höfum einmitt tekið bíl til að fara þangað saman og reyna að sjá eitthvað í leiðinni.  Svo fékk ég bréf frá öðrum aðilum sem ég sendi DVD og þeir hrifust svo af að þeir vilja hitta mig og heyra í mér "live".  Það verður semsagt í næstu viku, þetta er fyrir mjög stóra óperuhátíð sem er haldin á sumrin.   Ég var búinn að skrá mig í þetta í fyrra en gat ekki mætt sökum veikinda, en nú er vonandi komið að því :)  Þetta er að sjálfsögðu allt eins og áður maður veit í raun ekkert hvað kemur útúr þessu, en eini sénsinn að fá eitthvað er að taka þátt!

Ætlunin var líka að sækja um í alþjóðlegri keppni í Osló sem er í ágúst en það þarf að vera búið að skila öllu efni fyrir 1.mars og ég vil ekki taka áhættuna á að tapa 80 evrum ef ég fæ ekki að vera með.  Svona er það nú bara.

Júlía hefur að mestu verið góð, en þó var hún vælandi meira og minna í allan gærdag, og til kl 1:30 eins og venjulega.  Við erum að fara reyna að hefja smá svefnþjálfun núna, þannig að það verður gaman að sjá hvað gerist.  Skv "Uppeldishandbókinni" ættu börn sem eru um 5 kg að sofa 5-7 tíma á nóttu.   Júlía hefur einmitt aldrei sofið meira en 4 tíma í einum rykk!!

Jæja nóg er komið af skrifi, ég læt vita hvernig gekk í prufunum og mun fara skrifa reglulegar í þetta blogg :)

Komnar eru inn FULLT FULLT af myndum fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.


18.2.09

Að dunda sér í ásnum

Hér höfum við haft það verulega gott þó stutt sé, Reykjavíkurferð er áætluð á morgun, reyndar ekki fyrr en undir miðnætti eða þar um bil.  Veður hefur nú kannski ekki verið með besta móti, en það hafa skapast skilyrði fyrir ákveðinni tegund myndatöku sem kallast HDR myndataka eða eitthvað svoleiðis.  Ég hef að sjálfsögðu reynt að nýta mér þessa nýfengnu þekkingu til að grípa náttúrufegurð Laugarássins og nágrennis.  Hér að neðan fara nokkrar myndir sem spruttu úr þessari vettvangsferð minni og EOSins.

Júlía litla er búin að vera mjög dugleg og heimsótti afa og ömmu í vinnuna í dag, þvímiður hitti hún ekki á "Guðrúnu á bókasafninu", en það koma líklega tímar.   Hún hefur vissulega skánað og það er ennþá þakkarvert, en það er byrjað að örla á smávægilegri tilætlunarsemi hjá henni, sem seinnameir verður frekja, og í skjóli magakrampa getur hún enn komist upp með það að maður tekur ekkert á þessu eins og agavandamáli :)  

16.2.09

Júlía Freydís Egilsdóttir

Stelpan hefur semsagt hlotið fullt nafn fyrir augum guðs og manna og erum við að sjálfsögðu voða ánægð með að þetta sé nú allt komið, þ.e öll formlegheitin búin.

Það er annars að frétta að ég kom til landsins fyrir rúmri viku síðan og hef dvalið í góðu yfirlæti hjá tengdó í Skagafirðinum.  Þar var líka drifið í það að fara með þá litlu til læknis til að láta kanna allt sem hægt væri svo það væri nú hægt að útiloka alvarlegri hluti.  Það var gert með rannsókn á blóði og þvagi auk skoðunnar hjá frábærum lækni á Akureyri.   Þetta er semsagt bara ungbarnakveisa!!  En það eru nú góðar fréttir að hún hefur stórlagast á síðustu 2 vikum.  Núna er þetta að mestu bundið við kvöldin milli 20 og 1 á nóttu.    Við erum því nokkuð ánægð með þetta þar sem sú litla er að mestu núna ansi lífsglöð.  

Risastór veisla var haldin að Neðri-Ási, og sú litla fékk margar góðar og fallegar gjafir, héðan fara að sjálfsögðu margar þakkir til allra sem þangað mættu og glöddust með okkur.

Allavega við erum nú mætt í Holtið og þar verðum við fram á föstudag, en þá er ferðinni heitir til RVK þar sem þarf að útrétta ýmislegt :)  M.a á að reyna að sína Íslensku Óperunni að ég get sungið og fara út að borða með frúnni á meðan guðfeðgin passa og sjá til þess að Júlía víki ekki af hinum gullna vegi trúarinnar.

Hérna fyrir neðan má svo sjá skírnarmynd af þeirri litlu og eina þar sem sú litla sýnir stollt plásturinn sem hún fékk eftir blóðrufuna sem hún fór í hjá lækninum :)