..ég man eftir að hafa lesið á einhverjum barna síðum að eitt af því sem breytist, sem maður hélt að myndi aldrei breytast væri það að maður færi allt í einu að tala um kúk og gleðjast yfir því...!!?!?!
Ég taldi slíkt vera ómögulegt.... þangað til í gærkvöldi. EN málið er nú ekki alveg svo einfallt, auðvitað gleðst maður ekki yfir kúk, heldur því að að hlutirnir séu farnir að virka eðlilega. Ástæðan fyrir óværu sem heldur vöku fyrir þreyttum foreldrum er að sjálfsögðu meltingin, og þegar hún byrjar að virka eðlilega, hvað gerist þá, jú þá kemur kúkur. Þetta hljómar allt
afskaplega einfallt, en þessi litlu grey eiga í erfiðleikum með þetta stundum, og þá lenda foreldrarnir í andvökum og veseni, sem er ekki gaman! Því urðu fagnaðar fundir í nótt um kl 4 þegar það kom í ljós að sú littla hafði loksins sýnt fram á það að hún er að byrja að melta. En hvað það tekur langan tíma að komast í regluástand er svo kannski annað mál.
Í gær var svo farið í bíltúr með tengdó um Berlín, það er náttúrulega búið að skreyta allt hérna núna og jólamarkaðir eru greinilega málið, það er alveg svakalega mikið lagt í þetta og það verður gaman að kíkja á einn svona á næstu dögum. Sú litla var með í för og var alveg pollróleg allan tímann, þangað til að 5 mínútur voru í heimkomu, þá fór hún að verða svöng, en þetta gekk furðulega vel.
Nú á morgun er svo fyrsta læknisheimsóknin, og við erum búin að finna barnalækna ekki langt frá þar sem við búum. Einnig þarf ég að fara með á morgun Geburtsanzeige á hin víðfræga Burgeramt hérna í Schöneberg. Vandamálið sem við Soffía stöndum fyrir í dag og fyrir hádegi á morgun er að ákveða endanlegt nafn. Við erum komin með eitt aðalnafn sem er alveg harðákveðið, og nú stendur valið á milli þess að hafa eitt ákveðið millinafn eða annað fornafn, með aðalnafninu sem millinafn. Þetta þurfum við að hafa alveg ákveðið á pappírunum hérna, því þjóðskrá skráir nafnið eins og það er gefið út hérna. Við þurfum að borga fyrir að láta breyta þessu heima síðar ef því er að skipta, veit reyndar ekki hversu mikið, en það kostar eitthvað.
Hér er bara stuð og ég læt eina mynd fylgja með í lokin fyrir þá sem hafa áhuga á því.
