10.12.08

Að kúka eða ekki kúka.......

..ég man eftir að hafa lesið á einhverjum barna síðum að eitt af því sem breytist, sem maður hélt að myndi aldrei breytast væri það að maður færi allt í einu að tala um kúk og gleðjast yfir því...!!?!?!

Ég taldi slíkt vera ómögulegt.... þangað til í gærkvöldi.   EN málið er nú ekki alveg svo einfallt, auðvitað gleðst maður ekki yfir kúk, heldur því að að hlutirnir séu farnir að virka eðlilega.   Ástæðan fyrir óværu sem heldur vöku fyrir þreyttum foreldrum er að sjálfsögðu meltingin, og þegar hún byrjar að virka eðlilega, hvað gerist þá, jú þá kemur kúkur.  Þetta hljómar allt
afskaplega einfallt, en þessi litlu grey eiga í erfiðleikum með þetta stundum, og þá lenda foreldrarnir í andvökum og veseni, sem er ekki gaman!   Því urðu fagnaðar fundir í nótt um kl 4 þegar það kom í ljós að sú littla hafði loksins sýnt fram á það að hún er að byrja að melta.  En hvað það tekur langan tíma að komast í regluástand er svo kannski annað mál.

Í gær var svo farið í bíltúr með tengdó um Berlín, það er náttúrulega búið að skreyta allt hérna núna og jólamarkaðir eru greinilega málið, það er alveg svakalega mikið lagt í þetta og það verður gaman að kíkja á einn svona á næstu dögum.   Sú litla var með í för og var alveg pollróleg allan tímann, þangað til að 5 mínútur voru í heimkomu, þá fór hún að verða svöng, en þetta gekk furðulega vel.

Nú á morgun er svo fyrsta læknisheimsóknin, og við erum búin að finna barnalækna ekki langt frá þar sem við búum.  Einnig þarf ég að fara með á morgun Geburtsanzeige á hin víðfræga Burgeramt hérna í Schöneberg.   Vandamálið sem við Soffía stöndum fyrir í dag og fyrir hádegi á morgun er að ákveða endanlegt nafn.  Við erum komin með eitt aðalnafn sem er alveg harðákveðið, og nú stendur valið á milli þess að hafa eitt ákveðið millinafn eða annað fornafn, með aðalnafninu sem millinafn.  Þetta þurfum við að hafa alveg ákveðið á pappírunum hérna, því þjóðskrá skráir nafnið eins og það er gefið út hérna.  Við þurfum að borga fyrir að láta breyta þessu heima síðar ef því er að skipta, veit reyndar ekki hversu mikið, en það kostar eitthvað.

Hér er bara stuð og ég læt eina mynd fylgja með í lokin fyrir þá sem hafa áhuga á því.

9.12.08

Dagarnir líða og mennirnir með

Þá er lokið áheyrnarprufu fyrir ZBF hérna í Berlín, þau voru voða hrifin.  Og vilja fá mig í sérstaka audition 27.janúar fyrir eitthvað project sem er að fara í gang 26.febrúar að ég held.  Það er gott, en það er auðvitað soldið langt í þetta alltsaman og maður veit svosem ekkert hvernig project þetta er.

Fyrir þá sem ekki vita hvað ZBF er þá er það atvinnumiðlun listamanna hérna í Berlín, rekin af þýska ríkinu.  Þetta er á sama stað og almenn atvinnumiðlun.  Þetta er því gott tækifæri að syngja fyrir þau, þar sem það kostar ekkert og maður er ekki að keppa við neinn.  Ég er allavega að fara undirbúa Don José úr Carmen.  Hversu mikið veit ég ekki, en allavega eru þau búin að óska eftir blóma aríunni víðfrægu, ég er því að fara hafast handa við að fullkomna hana.  Er sem betur fer búinn að eyða miklu púðri í að læra hana og nú þarf ég að nýta það, sem er gott.

Tengdó eru komin, færandi hendi að sjálfsögðu, veit ekki hvernig þau komust með allt þetta dót með sér.  Þar á meðal er skata sem ég ætla mér að borða á Þoddlák.   Hér taka nú við aðeins afslappaðri dagar held ég, þar sem ég er ekki að syngja meira í desember.

Littla ungfrúin er að versna og versna af magaverkjum og er ég á leið í apótekið að ath hvort ekki séu til einhver góð hómópatalyf gegn þessu, veit að þau eru til, en spurning hvort það sé til í apótekum hér.  Hún hefur semsagt verið að versna talsvert undanfarna daga og líður greinilega ekki nógu vel.  Það er auðvitað erfitt og um leið mjög frústrerandi að horfa upp á hana kveljast svona og get ekkert gert, því er ég farinn á stúfana.  Því allt skal gert til að létta henni verkina.

Meira var það nú ekki í bili..... verið þið sæl.

8.12.08

Það er gott að hlæja á þessum síðustu og verstu

Þetta er of fyndið.  Reyndar er fyrra myndbandið ekkert svo fyndið, svosem fer eftir því hvað maður er illa innrættur, en það seinna er algerlega ruglað, sérstaklega fyrir aðdáendur Family Guy.

Fyrst að horfa á þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=KyJWtWDXnOA&feature=related

Að degi hinar rísandi sólar

Í gær hentist ég í áheyrnarprufu í StaatOper, ég tel að það hafi gengið bara bærilega.  Þó veit ég að þetta var ekki alveg eins fullkomið og ég hefði viljað.

Þetta hófst semsagt á því að ég var boðaður í áheyrnarprufu á bilinu 18-20!, en ég á átti að mæta og skrá mig kl 16:30.   Auk þess fékk ég að heyra að þau væru um 30 mín á eftir áætlun.  Þetta þýddi það að ég þurfti í raun ekkert að mæta þarna fyrr en um 18:30.  Ég fór því bara í Dussmann(stóra plötu og bókabúð), og eyddi drjúgum tíma þar, hentist svo á kaffihús og leit lauslega yfir nóturnar mínar.  Svo þegar ég kom til baka fékk ég nokkrar mínútur með píanóleikaranum, sem var bara fínn.  Nú svo kom að prufunni 10 mínútur í 20.  Ég gekk inn og þau voru 3 sem voru að horfa.   Ég byrjaði á að syngja "se di lauri" úr Mitridate eftir Mozart, það hefði hugsanlega getað gengið betur, en það gekk stórslysalaust.  Svo eyddu þau smá tíma í að ákveða hvað ég ætti nú að syngja næst, og þau völdu alls ekki það sem ég átti von á, heldur völdu þau "La donna e mobile"!!  Sem var bara fínt, því gjörsamlega negldi það eins vel og ég hef nokkrusinni gert.  Ég geng því furðusáttur útúr þessari áheyrnarprufu.   Ég fæ svo að vita í dag ef ég komst áfram til að syngja á stórasviðinu næsta laugardag.  Ég hendi því hérna inn um leið og ég frétti eitthvað, ef ekki..... nú þá komst ég ekki áfram :)

Í gærkvöldi komu hér góðir gestir, og sú litla var nokkuð góð framanaf, en svo upphófst gráturinn mikli.   Við erum að fara kaupa snuð handa henni í dag, og vonandi dregur það eitthvað úr óróleika við það.   Nú góðu gestirnir komu færandi hendi.  Það vildi svo skemmtilega til að konan hans Gunnars, Erla, átti einmitt afmæli sama dag og sú litla fæddist.  Hún var því búinn að baka og útbúa dýrindis marens köku með súkkulaðu.....slurp, eins komu þau með brauðrétt.  Einar kom með og svo kom Patricía líka.  Þetta var skemmtilegt kvöld að vanda.  Og ekki skemmdi nú fyrir fáránlegur dugnaður hennar Erlu en hún tók það að sér að vaska upp eftir herlegheitin.   Bestu þakkir fyrir það Erla :)

Tengdó lenda svo í kvöld og erum við búinn að taka bílaleigubíl og mun ég sækja þau útá völl. Svo koma mínir foreldrar á föstudaginn, með sömu vél og tengdó fara til baka.   Við þurfum að fá fæðingarskírteini hérna í þessari viku og fara með barnið í U2 skoðun í vikunni, þannig að það er nóg að gera næstu daga. 

****Fékk póst um að ég hefði ekki komist áfram í Staats, jæja lífið heldur áfram****

7.12.08

Nýjar myndir,

Ég set svo inn link á myndir hérna vinstramegin á síðuna svo það sé sem styst að fara.

6.12.08

Fyrsti dagurinn búinn

Fyrst langar mig nú að þakka öllum sem sendu okkur hamingjuóskir í kommentakerfinu, slíkt er alveg stórkostlegt og reyndar alveg ótrúlegt að sjá  hvað margir eru búnir að vera fylgjast með þessu!!

Hér er nú ekkert upplausnarástand, og við öll frekar róleg, sem er gott.  En það er einhver óværð í litlu, vegna þess að hún er bara nýbyrjuð að borða, það tekur smá tíma fyrir meltingarkerfið að taka við sér almennilega.  En það ætti að líða hjá á morgun skilst okkur.   Svo eru nú einhverjir þurrkublettir á höndum og fótum sem valda því að lítil sár hafa myndast, en við erum nú að bera á þetta hina hrikalega góðu calendula olíu, sem svínvirkar.  Þegar ég var að læra til nuddara, var þetta töfraolían sem var notuð á fólk með slæma húð osfrv, an allavega hún er allavega súperdugleg að borða og vera róleg, þar með er helstu áhyggjum dagsins lokið.

Við erum búin að opna nýja myndasíðu sem verður sérstaklega notuð til þess að halda utan um myndir af ungfrúnni, svo að þeir sem ekki komast í heimsókn, geti allavega verið aðeins með okkur í þessu :)

Nú svo var ég að misreikna aðeins áheyrnarprufuna hjá Staats oper :)  Hún er víst á morgun, en ekki í dag.... sem er eiginlega bara fínt, þar sem ég er ekki alveg tilbúinn í dag :)

NÝJA MYNDASÍÐAN er á slóðinni: 
http://picasaweb.google.com/egilsdaughter

5.12.08

Eflaust eru einhverjir búnir að bíða eftir þessu bloggi :)

En loksins er það búið, loksins er það byrjað.

Í nótt kl 2:24 kom í heiminn lítil stúlka, 3595 gr að þyngd eða rétt rúmar 14Merkur(fyrir þá sem verða endilega að hafa það í gömlu gullvigtinni sem er bara notuð á Íslandi) 51.cm á lengd er stúlkan, og hin rólegasta miðað við allt.  Hjartsláttur barnsins í lok fæðingar hélst í stöðugum 130 slögum, sem er bara nokkuð gott, og virðist þetta jafnaðargeð bara fylgja henni...... allavega enn sem komið er :)

Soffía stóð sig eins og hetja og kláraði dæmið á rétt rúmum 4 tímum, sem er nú bara nokkuð gott held ég, maður var farinn að búa sig undir miklu meiri tíma.   Hún er allavega hress og kát, en nokkuð þreytt eins og gefur að skilja.   Fæðinging fór fram í vatni, sem var nú ekki alveg eitthvað sem við vorum beint búin að ákveða, en mér skilst að það hafi munað mjög miklu fyrir Soffíu.   Þó vatnið dragi ekki úr verkjum, þá hjálpar það mikið til við slökun milli verkja og er þægilegri fyrir barnið..... það segja allavega ljósmæður :) 

Flestir eru nú líklegast búnir að frétta þetta á einn eða annan hátt, en hér kemur semsagt "opinbera" yfirlýsingin, ásamt mynd af ungfrúnni sem erfa mun auðæfin.
Stoltur faðir er sá sem bloggar núna.