25.11.08

Hér ríkir einkennilegt ástand...

staðan er ss 40+5 þegar þetta er skrifað..... og nákvæmlega ekkert að gerast!

Við bíðum hin rólegustu en ekki laust við að maður sé orðin svolítið pirraður á þessu öllu saman.  Þetta skilar sér að sjálfsögðu út í geðslagið og maður hefur ekki verið allt of kátur síðustu daga, en það gætu svosem átt sér aðrar skýringar líka, svosem eins og kvíða fyrir auditionum og því sem framundan er.

Á laugardaginn eru tónleikar með nemendum Janet Williams, þar hafa verið einhver forföll og því spurði hún mig hvort ég myndi vilja koma og prófa audition prógramið mitt á fólkinu, sem ég þáði auðvitað.  Ég er því að fara hendast á generalprufu á morgun og svo auðvitað verða tónleikar kl 17 á laugardaginn.  Þetta eru bara 2 aríur, en 2 svínerfiðar  sem ég er að vona að ég nái að gera góð skil á, því ef ég get það, þá ætti í raun að vera fátt sem stoppar mig :)  

Nú svo rétt í þessu var ég að fá boð frá Staatsoper um að mæta í áheyrnarprufu 7.des, sem er frábært, það er svona 2ára prógram sem er verið að bjóða upp á þar, á launum og allt, og það væru nú aldeilis gaman að komast í það, en sjáum hvað setur.

Jæja, meira síðar, vonandi við talsvert breyttar aðstæður.

23.11.08

40 + 3

Erfinginn lætur ekki á sér kræla, og það er hreint ekki útlit fyrir að það muni gerast á næstu dögum, þó vonir manns standi nú um annað.  Ég hef allavega fengið þá ósk mína uppfyllta að barnið verði Bogamaður :) ... sem er þó eitthvað.

Hér hefur snjóað síðustu tvo daga og í gærkvöldi var nú bara ansi jólalegt.  Ég tók nokkrar myndir hérna útúm gluggan hjá okkur yfir gatnamótin frægu hér við húsið.  Það er líka búið að vera ansi kalt, eiginlega alveg nístandi kalt. 

Á síðastliðin föstudag  var haldið flott afmælispartý til heiðurs David Jones og er ég búinn að henda inn myndum af því hérna.  Svo setti ég inn svona samtýning af myndum frá þessum mánuði, maður hefur nú ekki alveg verið nógu duglegur síðustu daga að taka myndir.  EN þegar það vantar tilefni og jafnvel veður til að munda EOSinn, þá verður það bara svona.

Það eru MJÖG virkir dagar framundan.
-Barnsfæðing (nóv??)
-Áheyrnarprufa - BBC (28.nóv)
-Áheyrnarprufa - ZBF (4.des)
-Áheyrnarprufa - Staatsoper (6.des)

Allt mikilvægt fyrir mig að öllu leiti, áheyrarprufurnar verða þær fyrstu sem ég tek þátt í hérna í Berlín og viðbúið að ekki allt gangi upp, enda segja þeir sem til þekkja að það að fá eitthvað að gera út úr einni af hverjum 10 má teljast nokkuð gott!!  Ekki glæsilegar líkur mér í hag, en svona er þetta bara :)  Ég hlakka allavega mikið til að prufa þetta, þó stressið geti nú hæglega farið með mann.  

Mín beið svo í gær, þegar ég kom heim, risastórt súkkulaði dagatal frá Lindt!   Soffía ákvað að koma mér á óvart... sem er bara frábært.   Hlakka til að opna gluggana á hverjum degi og fá mér einn Lindt glaðning :)

Óléttuhornið:
Ekkert er að gerast!  Allt er tilbúið hjá okkur. Og fyrir þá sem telja að nauðsynlegt sé að gefa okkur eða barninu eitthvað þá er kannski rétt að upplýsa það sem við eigum núþegar.

-"Heimferðarföt"
-Rúm
-Vagn
-Bílstól
-Kerru
-Burðarrúm
-Burðarpoka

20.11.08

40 vikur

Þetta er dagurinn sem allir eru búnir að vera bíða eftir :)   EN ekkert er að gerast, og lítur ekki út fyrir að vera gerast í bráð.  Við erum þó á leið til læknis eftir nokkrar mínútur.  Laugardagur eða síðar til lukku, þar sem þá fæðist bogamaður :)

Ég sendi í rælni fyrirspurn í dag til Staatsoper varðandi Young Artists Program sem þeir byrjuðu á í fyrra.  Komst svo að því að umsóknarfrestur rann út 30.september sl!   jæja hvað með það, ég fékk allavega svar frá þeim og mér var boðið að sækja um þrátt fyrir það.... sem er bara frábært. Forhlustun hjá þeim er 5-6 des og svo aftur 13.des, en þá er allt ákveðið held ég.  Verður allavega gaman að sjá hvað kemur útúr því öllu saman.

17.11.08

Ég trúi bara ekki að....

...það sé tæp vika síðan ég bloggaði síðast!  Svo hratt líður tíminn núna að maður veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið.   Hér er ss nóg að gerast.  Ég fór 2x í bíó í síðustu viku, auk þess að syngja í svona opnum tíma hjá "advanced" nemendum Janet, svo var farið til Wolfgang, síðan á masterklass sama dag og svo í brunch og einkatíma á sunnudeginum, það má sannarlega segja að mikið hafi gerst á stuttum tíma :)  Sem er gott.

David heyrði auðveldlega framfarirnar í röddinni, og er alveg sammála þessari nýju stefnu, hann gat sýnt mér og sagt mér hvernig ég væri að gera og ætti að gera það sem ég er að gera núna og hvernig er best að þróa það. EN hann stoppar mig ekki af þegar ég er að beita of miklum þrýstingi á raddböndin, en það gerir hinsvega Wolfgang og  því er mjög gott að vera hjá honum þessa dagana.  Mér bauðst annar tími hjá David í gær, þar sem einn hætti við, og ég allranáðarsamlegast afþakkaði..... sem ég hélt ég myndi aldrei gera með tíma hjá David!!  EN málið er bara þannig núna að hver tími kostar hjá honum 17.þús ISK, og það munar sannarlega um 37þús kall.  Wolfgang lækkaði tímaverðið hjá sér á laugardaginn úr 60 í 50 þar sem við erum farnir að þekkjast betur.  Þetta munar ansi miklu!!  Sérstaklega þar sem hann er vel þess virði.
Ég var búinn að segja frá því að núna finnst mér ég fyrst eiga einhvern séns í þennan bransa og hlakka til að takast á við þetta.

Tilhlökkun vegna komu frelsarans er í lágmarki, þó manni hlakki alveg til, en maður er bara svo mikið búinn að bíða, að þetta er bara svona eitthvað sem maður fer ekkert að hugsa um fyrr en allt fer af stað, sem er líka ágætt, ekkert að vera alltaf að hugsa um þetta heldur geðinu í lagi.

Óléttuhornið:
Nú í fjarveru minni hefur kjarnakonan hún Soffía ráðist í það að þrífa íbúðina hátt og lágt, og þá á ég við nánast hvern krók og kima sem hægt er að finna í búðinni.   Þetta er soldið til marks um það hvað henni líður í raun vel, þar sem það truflaði hana ekkert að vera ólétt :)  Eða allavega ekki mikið.  Nú eru bara um 3 dagar í settan dag, og ég er sem fyrr að vona að barnið láti sjá sig í fyrsta lagi á næsta sunnudag eða 23 nóv, nú eða eitthvað aðeins seinna en það, því eins og ég held ég hafi áður minnst á þá eiga sambönd á milli Vatnsbera foreldris og Sporðdreka barns að vera mjög erfið EN hinsvegar Bogamanns barn..... það er allt annað!   Það er gaman að taka það fram að David Jones á einmitt afmæli þann 23 :)  Hann er búinn að stinga upp á sínu nafni fyrir barnið þegar það fæðist, eins og svo margir aðrir :)  Hann heitir nefnilega David Lynn Jones, og ef þetta er strákur þá á hann að heita David Lynn, en ef stelpa, þá Lynn David.   Greinilega mikið búið að hugsa þetta....... EN ég held ekki :)

Gaman væri að sjá uppástungur fólks um nöfn á erfingjann, hvort sem það er stelpa eða strákur. Og ég held að fólk geti svosem sleppt því að stinga upp á Jón Páll, þar sem sá brandari er orðinn frekar þreyttur :)  (NB við erum búin að finna nöfn hvort sem það er stelpa eða strákur)
 

11.11.08

Giftur í Berlín

Farið var í morgun á Borgara skrifstofuna til að afhenda pappíra um að við Soffía værum gift, þetta var að sjálfsögðu gert til að réttarstaða kkkar og okkar barns sé sem tryggust.  Ég hef áður sagt frá verkfalli Burgeramt starfsmanna hérna í Tempelhof, og vegna þess er í raun búið að vera ómögulegt fyrir okkur að klára þessa skráningu.  Við fengum reyndar þær upplýsingar þar að við gætum farið á Burgaramtinn í Schöneberg, sem er svona nágranna hverfið.  Þar opnar kl 11 á þriðjudögum og við hentumst því þangað í morgun og vorum komun á slaginu 11 og viti menn, þarna voru líka mættir alla vega vel yfir 100 manns, sem voru á undan okkur.   Við fengum því að bíða á skrifstofunni í rúma 2 tíma þangað til röðin kom loks að okkur, við afhentum pappírinn frá Þjóðskrá og ég átti von á að þessum pappír yrði hafnað á einhverjum forsendum, en nei nei, afgreiðslan tók varla 2 mínútur og þá vorum við farin út.  Ég spurðist fyrir um skráningu á barninu þegar það kæmi í heiminn, og þá var okkur sagt að það gerðist sjálfkrafa, sem væri alveg frábært, ef við værum að eignast það á spítala :)   En af því að við erum á fæðingarheimili, þá verðum við að fara með þetta sjálf og láta skrá.... jibbí get varla beðið eftir að fara aftur!  Dugnaður óléttu konunnar sem á rétt rúma viku í settan dag er mikill, þar sem hún lét sig hafa það að fara í jólagjafa innkaup í gærkvöldi, og svo á burgeramtinn í morgun.   Við þorðum ekki annað en að fara bæði tvö og með alla pappíra sem okkur datt í hug að fara með.

Af söngmálum er allt gott mér er að fara fram sem aldrei fyrr og er ég að verða ögn bjartsýnni á þetta en ég hef verið, þó ég hafi alltaf talið að ég gæti þetta á endanum.  Það er bara svo satisfying þegar blóð sviti og tár skila sér.   Ekki má það heldur seinna vera þar sem ég er skráður í eina af stærstu söngkeppnum Evrópu eftir rétt rúmar 2 vikur, vona bara að erfinginn láti sjá sig fyrir þann tíma, ekki væri á pressuna bætandi :)

Á morgun er svo stefnan tekin á "Quantum of Solace", að loknum tíma hjá Janet, það verður fróðlegt að sjá hvað hún segir um framfarirnar þar sem ég hef ekki verið í tíma hjá henni í næstumþví 3 vikur.    En Wolfgang títtnefndur hefur verið að taka upp slakann í millitíðinni, með þessum fína árángri sem ég er að upplifa.  EN þetta er háð því að ég einbeiti mér virkilega og læri heima, sem ég geri núna í mun meira mæli, þar sem ég sé loksins að þetta sé að skila einhverju.

Óléttuhornið:
Allt er tilbúið hér sem fyrri daginn.  Þó á að taka meira blóð úr S, bara til að vera viss.  Ég er búinn að hringja í barnalæknastöð hérna ekki langt frá, og þau eru tilbúin að taka barnið í svokallaða U2 skoðun.  U1 er framkvæmt þegar barnið fæðist, og svo U2 annarsstaðar.   Óléttutaskan er tilbúin, með "heimferðarfötunum" og fleira dóti.  Ísskápurinn fullur af Powerade sem á að notast til orkugjafar í fæðingu.  Hér er semsagt bara allt tilbúið.  Fullt tungl þann 13 nóv ýmislegt gerist á fullu tungli..... spennan eykst.

7.11.08

Ef þú trúir öllu sem þú lest, þá skaltu ekki lesa

Helgin komin enn eina ferðina og tími hjá Wolla á morgun.  Þessi vika er nú búinn að vera allfljót að líða og þá kom sér sérstaklega vel að ég hélt lengi vel að það væri annar dagur en raun bar vitni, sem þýddi það að þegar ég lærði sannleikann um málið þá var ég búinn að græða einn dag, sem er alltaf gaman.

Skyr er talið voðalega íslenskt fyrirbrigði, en það er líklegast bara nafnið, þar sem ég er búinn að uppgötva sama product hérna í þýskalandi, en það heitir Quark þetta var skemmtileg uppgötvun, þar sem ég nota þetta iðulega í "boost" núna.  Ég er búinn að vera fara í ræktina undanfarna daga, og þá gagngert til að læra texta, það er ótrúlegt hvað maður er snöggur að læra á skíðatækinu.  Það er eins og hreyfingin trufli heilann nógu mikið til að hann hætti að hugsa og læri bara.   Allavega virkar þetta eins og er og ekki er verra að fá hreyfingu útúr þessu líka :)

Ég er búinn að láta Janet vita að ég ætli að vera aðrahverja viku hjá henni og hina vikuna hjá Wolfgang, ég verð að gera það þannig til að vera ekki að eyða allt of miklum peningum í hverri viku, það gengur ekki alveg upp, hún skildi það vel að ég verð að gera það sem hentar mér best og ég á að nýta mér allt það sem getur hjálpað, sem ég geri.    Næsta vika verður bissý, þar sem ég er í tíma hjá Janet, svo eru duglegri einstaklingarnir í hópi nemenda hennar að taka sig saman, það er þeir sem eru actively að auditiona, og ætla að hittast 1-2 í mánuði og syngja fyrir hvert annað svona eins og um audition væri að ræða, þetta er auðvitað stórsniðugt til að hjálpa manni að venjast því að syngja ný lög undir pressu, það er ekki til betri þjálfun en það.  Nú svo er 200asta sneak preview sýningin hjá Cinestar á fimmtudaginn og við ætlum að reyna að fá miða á það.  EN ég er auðvitað í þeirri aðstöðu að það er ekki alveg víst hversu mikið maður getur verið að heiman :)  En svo lengi sem ekkert fer af stað, þá er þetta nokkuð seif.   Fyrir utan það að þetta tekur nú ekki stuttan tíma, þannig að ég get auðveldlega verið kominn heim á um hálftíma ef því er að skipta.  Hef ekki áhyggjur af því.

Óléttuhornið:
Kúlan stækkar og óþægindi aukast sem er ekki óeðlilegt.  En almenn líðan er góð.  Þó hafa mælst einhverjir þættir í blóði sem geta verið vísbending um lífshættulegan meðgöngusjúkdóm.  EN,  síðasta blóðprufa sýndi að þetta virðist ekki vera málið, sem betur fer.   Soffía fór svo í aðra blóðprufu í dag, og þá ætti þetta að vera komið nokkuð á hreint, hvort um er að ræða eitthvað til að hafa áhyggjur af.  Fyrir áhugamenn þá nefnist það sem um er rætt "thrombocytopaenia", eða blóðflögufæð, sem veldur því að blóð getur ekki storknað.

3.11.08

Mánuðurinn mikli!

Ekki það að tilkoma barns sé það eina sem gerir þennan mánuð mikinn(kannski verður það ekki í þessum mánuði :))  En í þessum mánuði gerist það að David Jones kemur til Berlínar á ný, það verður gaman að hitta hann aftur kallinn, spennandi að sjá hvað hann segir um allt það sem ég hef verið að gera.  Nú svo 28.nóv er fyrirhuguð áheyrnarprufa fyrir "Cardiff Singer of the World", ég geri mér nú ekki miklar vonir þar, en það verður áhugavert að taka þátt.  Þetta er reyndar í síðasta skipti sem ég má taka þátt vegna aldurs.  Svona renna tækifærin úr greipum manns eitt af einu, eftir því sem árin færast yfir :)

Hér er farið að dimma allsvakalega uppúr kl 16:30 og í sambland við kulda er það svosem ekkert skemmtilegt, en sem beturfer hefur maður vinnuna til að halda sér uppteknum.  Í kjölfar svona kulda koma hin ýmsu veikind inn á heimilið og Soffía er nú þegar búin að ná sér í kvef og frunsu, sérlega skemmtilegt.  En ykkar einlægur fær ekki vott af neinu svona frekar en fyrri daginn, sem er gott, þar sem ég nenni ekki slíku.  

Mitt í fjármálakreppunni miklu 2008 lætur maður sig dreyma um ýmis tæki og tól sem gaman væri að fjárfesta í, þar sem maður er með peninga inni á bók til að leyfa sér það........ EN... vandamál síðasta mánaðar hafa kennt mér það að nú verður ekki spanderað í neinn óþarfa, ekki það að fíni síminn sem mig langar í sé óþarfur, en hann er kannski ekki tímabær.  Sem betur fer tel ég að ég sé skynsamur þegar kemur að peningum og kaupi mér ekki lengur neitt sem ég á ekki peninga fyrir.  Að vissu leiti má nú bara segja að kreppa sé góð að því leiti, sérstaklega þar sem við skuldum ekki neitt.    Ég er nú samt sem áður búinn að sækja um námslán fyrir næsta vetur þar sem maður veit aldrei hvað er að fara gerast. Ég vil ná að sinna náminu betur en ég hef verið að gera, og ég held að peningar séu málið.

Jólin nálgast óðfluga og hér er að byrja að detta inn skraut á stöku stað, alls ekki eins sturlað og geðveikt eins og á landi ísa forðum daga.  Það styttist í að úti jólamarkaðir opni og þá verður stefnan tekin þangað til að skoða og jafnvel kaupa eilítið jóladót ef það er ekki þeim mun dýrara.

Óléttuhornið:
Búið er að setja upp barnarúm, barnavagn er kominn, búið að þvö öll barnaföt sem til eru á heimilinu, búið að kaupa bók um fyrstu ár barnsins, svo hægt sé að fara skrásetja þetta.  Líklega eyðileggur það jólagjafahugmynd fyrir einhverjum, en við vorum svosem ekkert að hugsa um það þegar þetta var keypt.   Það er semsagt búið að gera margt eða flest sem hægt er að gera og nú er það bara að bíða.

Þangað til síðar....