Hér hefur snjóað síðustu tvo daga og í gærkvöldi var nú bara ansi jólalegt. Ég tók nokkrar myndir hérna útúm gluggan hjá okkur yfir gatnamótin frægu hér við húsið. Það er líka búið að vera ansi kalt, eiginlega alveg nístandi kalt.
Á síðastliðin föstudag var haldið flott afmælispartý til heiðurs David Jones og er ég búinn að henda inn myndum af því hérna. Svo setti ég inn svona samtýning af myndum frá þessum mánuði, maður hefur nú ekki alveg verið nógu duglegur síðustu daga að taka myndir. EN þegar það vantar tilefni og jafnvel veður til að munda EOSinn, þá verður það bara svona.
Það eru MJÖG virkir dagar framundan.
Allt mikilvægt fyrir mig að öllu leiti, áheyrarprufurnar verða þær fyrstu sem ég tek þátt í hérna í Berlín og viðbúið að ekki allt gangi upp, enda segja þeir sem til þekkja að það að fá eitthvað að gera út úr einni af hverjum 10 má teljast nokkuð gott!! Ekki glæsilegar líkur mér í hag, en svona er þetta bara :) Ég hlakka allavega mikið til að prufa þetta, þó stressið geti nú hæglega farið með mann.
-Barnsfæðing (nóv??)
-Áheyrnarprufa - BBC (28.nóv)
-Áheyrnarprufa - ZBF (4.des)
-Áheyrnarprufa - Staatsoper (6.des)
Mín beið svo í gær, þegar ég kom heim, risastórt súkkulaði dagatal frá Lindt! Soffía ákvað að koma mér á óvart... sem er bara frábært. Hlakka til að opna gluggana á hverjum degi og fá mér einn Lindt glaðning :)
Óléttuhornið:
Ekkert er að gerast! Allt er tilbúið hjá okkur. Og fyrir þá sem telja að nauðsynlegt sé að gefa okkur eða barninu eitthvað þá er kannski rétt að upplýsa það sem við eigum núþegar.
Ekkert er að gerast! Allt er tilbúið hjá okkur. Og fyrir þá sem telja að nauðsynlegt sé að gefa okkur eða barninu eitthvað þá er kannski rétt að upplýsa það sem við eigum núþegar.
-"Heimferðarföt"
-Rúm
-Vagn
-Bílstól
-Kerru
-Burðarrúm
-Burðarpoka
Engin ummæli:
Skrifa ummæli