3.11.08

Mánuðurinn mikli!

Ekki það að tilkoma barns sé það eina sem gerir þennan mánuð mikinn(kannski verður það ekki í þessum mánuði :))  En í þessum mánuði gerist það að David Jones kemur til Berlínar á ný, það verður gaman að hitta hann aftur kallinn, spennandi að sjá hvað hann segir um allt það sem ég hef verið að gera.  Nú svo 28.nóv er fyrirhuguð áheyrnarprufa fyrir "Cardiff Singer of the World", ég geri mér nú ekki miklar vonir þar, en það verður áhugavert að taka þátt.  Þetta er reyndar í síðasta skipti sem ég má taka þátt vegna aldurs.  Svona renna tækifærin úr greipum manns eitt af einu, eftir því sem árin færast yfir :)

Hér er farið að dimma allsvakalega uppúr kl 16:30 og í sambland við kulda er það svosem ekkert skemmtilegt, en sem beturfer hefur maður vinnuna til að halda sér uppteknum.  Í kjölfar svona kulda koma hin ýmsu veikind inn á heimilið og Soffía er nú þegar búin að ná sér í kvef og frunsu, sérlega skemmtilegt.  En ykkar einlægur fær ekki vott af neinu svona frekar en fyrri daginn, sem er gott, þar sem ég nenni ekki slíku.  

Mitt í fjármálakreppunni miklu 2008 lætur maður sig dreyma um ýmis tæki og tól sem gaman væri að fjárfesta í, þar sem maður er með peninga inni á bók til að leyfa sér það........ EN... vandamál síðasta mánaðar hafa kennt mér það að nú verður ekki spanderað í neinn óþarfa, ekki það að fíni síminn sem mig langar í sé óþarfur, en hann er kannski ekki tímabær.  Sem betur fer tel ég að ég sé skynsamur þegar kemur að peningum og kaupi mér ekki lengur neitt sem ég á ekki peninga fyrir.  Að vissu leiti má nú bara segja að kreppa sé góð að því leiti, sérstaklega þar sem við skuldum ekki neitt.    Ég er nú samt sem áður búinn að sækja um námslán fyrir næsta vetur þar sem maður veit aldrei hvað er að fara gerast. Ég vil ná að sinna náminu betur en ég hef verið að gera, og ég held að peningar séu málið.

Jólin nálgast óðfluga og hér er að byrja að detta inn skraut á stöku stað, alls ekki eins sturlað og geðveikt eins og á landi ísa forðum daga.  Það styttist í að úti jólamarkaðir opni og þá verður stefnan tekin þangað til að skoða og jafnvel kaupa eilítið jóladót ef það er ekki þeim mun dýrara.

Óléttuhornið:
Búið er að setja upp barnarúm, barnavagn er kominn, búið að þvö öll barnaföt sem til eru á heimilinu, búið að kaupa bók um fyrstu ár barnsins, svo hægt sé að fara skrásetja þetta.  Líklega eyðileggur það jólagjafahugmynd fyrir einhverjum, en við vorum svosem ekkert að hugsa um það þegar þetta var keypt.   Það er semsagt búið að gera margt eða flest sem hægt er að gera og nú er það bara að bíða.

Þangað til síðar....

2 ummæli:

  1. En spennandi, alltaf gaman ad lesa bloggid hja ykkur :) Her i køben ser madur hvergi jola neitt, ekki enntha allavega. Mætti svosem alveg fara ad koma til ad lysa upp skammdegid :)

    Kv. Gudny frænka

    SvaraEyða
  2. Iss hér í Reykjavík best í heimi er maður meira að segja farinn að sjá risavaxin plast jólaseríujólatré á stöku stað:) Bið að heilsa þeirri óléttu!

    Kv. Birkir Völu ;)

    SvaraEyða