Af söngmálum er allt gott mér er að fara fram sem aldrei fyrr og er ég að verða ögn bjartsýnni á þetta en ég hef verið, þó ég hafi alltaf talið að ég gæti þetta á endanum. Það er bara svo satisfying þegar blóð sviti og tár skila sér. Ekki má það heldur seinna vera þar sem ég er skráður í eina af stærstu söngkeppnum Evrópu eftir rétt rúmar 2 vikur, vona bara að erfinginn láti sjá sig fyrir þann tíma, ekki væri á pressuna bætandi :)
Á morgun er svo stefnan tekin á "Quantum of Solace", að loknum tíma hjá Janet, það verður fróðlegt að sjá hvað hún segir um framfarirnar þar sem ég hef ekki verið í tíma hjá henni í næstumþví 3 vikur. En Wolfgang títtnefndur hefur verið að taka upp slakann í millitíðinni, með þessum fína árángri sem ég er að upplifa. EN þetta er háð því að ég einbeiti mér virkilega og læri heima, sem ég geri núna í mun meira mæli, þar sem ég sé loksins að þetta sé að skila einhverju.
Óléttuhornið:
Allt er tilbúið hér sem fyrri daginn. Þó á að taka meira blóð úr S, bara til að vera viss. Ég er búinn að hringja í barnalæknastöð hérna ekki langt frá, og þau eru tilbúin að taka barnið í svokallaða U2 skoðun. U1 er framkvæmt þegar barnið fæðist, og svo U2 annarsstaðar. Óléttutaskan er tilbúin, með "heimferðarfötunum" og fleira dóti. Ísskápurinn fullur af Powerade sem á að notast til orkugjafar í fæðingu. Hér er semsagt bara allt tilbúið. Fullt tungl þann 13 nóv ýmislegt gerist á fullu tungli..... spennan eykst.