17.9.08

Mitridate var vondur kall

Já þá eru blessuð tryggingakortin okkar loksins komin í hús og við farin að hugsa um næsta vandamál, sem verður að finna barnalækni, fara heim til Íslands með barnið og svo framvegis.

Ég er alls ekki búinn að vera duglegur að æfa mig þessa vikuna og veldur það mér áhyggjum! Skil ekki alveg vilja- og framtaksleysið, sérstaklega þar sem ég er að fara syngja þann 4.okt. Svo var ég að fá símtal á talhólfið mitt um að taka þátt í sýningu á vegum Hanns Eislers, en ég hugsa að ég geri það ekki, þar sem þetta er leikstjórnarverkefni eins og síðast, að auki fær maður ekki að syngja eitt hlutverk, heldur aðeins hluta af því og enn að auki, ég hef sungið það hlutverk áður. Þetta er semsagt "Nótt í f Feneyjum", sem var sett upp í Íslensku Óperunni 2006. Þannig að hlutirnir eru svo sem að rúlla áfram sinn hæga og rólega veg.

Ég er búinn að vera kynna mér á netinu hvernig á að beita EOSnum og maður lærir alltaf eitthvað á því. Núna er maður orðinn soldið spenntur fyrir flash myndatökum, en ég hugsa að ég gangi nú ekki svo langt, nema finna eitthvað flass á viðráðanlegu verði :) Það er ekki rúm fyrir slíkt í budgettinu, þrátt fyrir að mínir elskulegu foreldar og tengaforeldrar vilji gefa barninu hina dýru hlutina sem við þurfum að kaupa. Sem er auðvitað alveg stórkostlegt og hjálpar okkur mjög mikið að þurfa ekki að bæta því ofan á núverandi skyndilega hækkun evrunnar sem hefur rýrt launin mín um c.a 9.þús krónur!!! Hvort sem þið trúið því eða ekki. Það virðist haldast í hendur, gífurleg hækkun Evrunnar og þegar ég þarf að millifæra af ISK yfir í EUR, það er alveg magnað, en svosem ekkert sem kemur sérstaklega á óvart :)

Jæja látum þessu lokið í dag á einnum flottasta söng, tæknilega, sem ég hef orðið vitni að. Þetta er mjög óþekkt aría úr Mitridate eftir Mozart og það er Bruce nokkur Ford sem syngur. Nb, hann er ekki svona góður í öðru sem ég hef séð hann gera á Youtube. Þessi aría virðist henta vel þeim röddum sem kallast Leggero tenór.... sem er nb ekki mín raddtýpa :)

14.9.08

Haustið að koma í í sinni ljótu mynd

Haustið er að síga inn á okkur hægt og rólega hérna Berlín. Hér er orðið mjög kalt og hálf sólarlaust, ekki það að það sé svosem neitt annað en lýsandi fyrir sumarið sem við fengum hérna. Þeir dagar sem voru góðir voru vissulega góðir og ber auðvitað að þakka fyrir þá :)

Um helgina fórum við S í leiðangur niður á Kurfürstendamm verslunargötuna, þar sem ætlunin var..... hjá henni að versala einhver Schwangerschafts föt, það tóks nú að einhverju leiti. Við fórum líka í eina af örfáum búðum hérna sem selur barnahúsgögn og aðra vörur tengdar því öllu saman. Þar var verið að skoða vagna, burðardót, barnarúm og ýmislegt annað það sem þarf að versla inn fyrir komu frelsarans. Þetta er dýrt!! Verð nú að segja það. ÞÓ er ég búinn að finna þetta allt á amazon og ebay fyrir mikið minni pening, og er nú líklegt að við tökum þetta þaðan. Þetta er vagninn sem við erum að melta með okkur núna, kemur með burðarrúmi, burðar/bílstól og ég veit ekki hvað. Svo er það þessi græja sem er sko hrikalega flott, og verður hún keypt sama hvað hver segir :) Jahérna er maður kominn á kaf í ruglið eða hvað. Allavega, þetta eru hlutir sem maður þarf að fara hugsa um sem fyrst, og reyna soldið að dreyfa innkaupakostnaðinum, maður þarf að vera soldið útsjónarsamur, versla é ebay og amazon.de, eins mikið og hægt er. Soffía telur að mikilvægt sé að fara og prufa alla vagna og kerrur, en ég tel það ekki vera nauðsynlegt, þetta virkar allt eins :).... nokkurnvegin. Ss langur laugardagur að baki og í dag tekur við langur rólegur sunnudagur, þar sem við ætlum að gera ekkert nema að slaka á, ég með nokkur rauðvínsglös að dundar mér í tölvunni, og svefnlausa frúin uppi í rúmi að lesa góða bók. Þetta verður bara fínn dagur. Svo verður elduð steik í kvöld með steiktum kartöflum salati og sósu, svona klassískt og gott. Vona bara að rauðvínið klárist ekki yfir tölvuleiknum.

LOKSINS GLEÐIFRÉTTIR varðandi tryggingamál. Ég hringdi í tryggingafélagið á fimmtudaginn og þá var mér sagt að við værum ekki til í kerfinu hjá þeim. Ég fór því til þeirra AFTUR með pappírana (og það er sko ekki stutt ferð), og konan sem ég lenti á var mjög skilningsrík og baðst innilegrar afsökunar á þessu og hún ætlaði sko að sjá til þess að þetta færi í gegn hratt og örugglega núna. Og hérna er það annað hvort í ökla eða eyra, því á laugardagsmorgun var komið bréf í póstkassann hjá okkur þar sem sagt var að við værum nú tryggð hjá Techniker Krankenkasse frá og með 1.1.08, og við mættum eiga von á skýrteinunum okkar í pósti á næstu dögum. Þessu ber að sjálfsögðu að fagna og ég mun fá mér rauðvín í tilefni þess. Veit ekki alveg hvað Soffía fær sér, en það verður eflust eitthvað :)

Hérna fyrir neðan má svo sjá nokkrar myndir sem EOSinn varð að smella af í bæjarferðinni.

10.9.08

Biblían hét einusinni "Chuck Norris og vinir"

Fátt hefur nú á dagana drifið hjá okkur hérna á krónprinsagötunni, það helsta er kannski að við erum ekki enn búin að fá skírteinið frá tryggingafélaginu hérna úti, sem átti, skv þeim að berast eftir um 15 daga, (það var 13.ágúst). Enn eitt helvítið sem maður nennir ekki að takast á við hérna í þýskalandi. Ekki er þetta til að bæta geðheilsuna. Á morgun er ég svo að hendast í undirleikstíma og svo á föstudag er ég að fara í tíma hjá Janet, þar sem við ætlum svo að kíkja saman í mat og hún ætlar að hjálpa mér aðeins með CV-ið mitt svo það sé nú sem eðlilegast. Ég er að skrá mig í eina keppni og eina audition á næstu mánuðum, þannig að það horfir ágætlega hvað það varðar. Raddlega hef ég verið betri, en með hjálp góðra manna er þetta ekkert sem erfitt er af yfirstíga.

Þangaðtil síðar.

7.9.08

Að ferðast um heiminn

Frúin átti góðan afmælisdag, og margir gerðu sér ferð á bloggið hennar til að senda afmæliskveðju. Sem er gott.

Nú um helgina tókum við bílaleigubíl til að skjótast til Dresden, þar sem frændi hennar Soffíu býr. Þetta var svona dagsferð, og að sjálfsögðu var EOSinn með í för. Þetta er mjög falleg borg, og við fengum svona "túrista rúnt" um svæðið, sem var mjög gaman. Við fórum svo að borða á einum af mínum uppáhalds stöðum að borða á..... Maredo. En þvímiður var þetta ekki góður staður, þar sem við þurftum að bíða í rúman klukkutíma eftir matnum. Og ekki nóg með það, þjónustu "stúlkan" (var rúmlega 5tug), var bara með leiðindi.... sem er svosem ekkert nýtt hérna í þýskalandi, hér er ekkert til sem heitir þjónustulund. Leiðindin voru allavega þannig að hún þrætti fyrir það að við værum búin að bíða svona lengi eftir matnum, og sagði að við þyrftum bara að gjörasvovel að vera þolinmóð, þar sem það var fullt að gera á staðnum!!!? Sem er afsökun sem ég hef áður heyrt á þýskum veitingastöðum. Nú yfirþjónnin kom svo stuttu seinna og sagði okkur að það hefði orðið eitthvað klúður, og við þyrftum að bíða aðeins meira, og sagði að við mættum fá salat eða eitthvað að drekka á kostnað hússins í staðin, sem var svosem eðlilegt í ljósi þess hvað við vorum búin að bíða lengi. Þegar kom svo að því að borga, þá var sú 5tuga sko alls ekki á því að gefa okkur eitt eða neitt fyrir biðina, og það þurfti að kalla aftur til yfirþjóninn, sem leiðrétti málið, en það tók um 5-10 mín að fá kellinguna til að skilja það og koma með réttan reikning. Þetta endaði svo á því að hún sagði, "takk fyrir komuna" (á þýsku auðvitað :)). Ekki datt henni í huga að biðjast afsökunar eða eitthvað í þá áttina! Maður skilur bara ekki svona dónaskap á stöðum sem þessum, en svona er það bara í þýskalandi. En bara með því að segja í lokin, "ég bið ykkur að afsaka hvernig þetta er búið að vera og ég vona að þið eigið ánægulegt kvöld", eða eitthvað svipað, hefði hugsanlega dugað til að ég færi þaðan sáttur, en nei svo var nú aldeilis ekki. Ég mun þó áfram venja komur mínar á Maredo hér í Berlín, þar sem þar hefur aldrei neitt klikkað, maturinn alltaf góður og starfsfólkið svona sæmilegt og kurteisara en í Dresden.

Nú svo eftir að hafa skoðað borgarljósin, var haldið heim á leið á bensanum. Dresden er í um 2 klst fjarlægð frá Berlín, og því var þetta frekar þægilegur skottúr. Sunnudagurinn fer svo bara í ekki neitt, og ætlunin er að drekka 2-3 rauðvínsglös og kannski spila smá tölvuleik "ef maður sé í stuði".

Óléttuhornið:
Mæðraskoðun var á föstudag, þar sem við hittum nýja ljósmóður, sem talar enga ensku, það gekk nú vel þrátt fyrir það, og allt lítur vel út og eins eðlilegt og hægt er að vonast til. Það er þó alltaf truflandi þegar er verið að fara með manni yfir skilmálana, maður fær alltaf á tilfinninguna að það eigi eitthvað eftir að koma fyrir mann af því sem er verið að lesa upp. Því það er alveg slatti af allskyns klausum þarna sem geta orðið til þess að barnið þurfið að fæðast á spítala, en ekki fæðingarheimili. EN ég hef þá trú að þetta eigi nú bara all eftir að ganga. Ég er búinn að dreyma fyrir kyni barnsins í 3-4 gang og alltaf er það strákur. Hvort þarna sé um óskhyggju að ræða eða sannleika veit maður auðvitað ekki, en mín reynsla er sú að ég dreymi oft öfugt við það sem er að fara gerast :) Þetta er því bara eins og sumum finnst að það eigi að vera.........óljóst :)

Myndir hérna

5.9.08

já, hún á afmæli í dag

Það eru ekki margir sem koma til greina, og hér er hún sjálf.
Til hamingju með afmælið :)

3.9.08

Af álfum og skrímslum.

ATH, ég hef ákveðið að fjarlægja blogg af listanum hjá mér sem ekki hafa verið uppfærð í 2 mánuði :)
Ekki er það nú merkilegt bloggið í dag, ekki náði ég að hitta Botha í dag, en við erum búnir að mæla okkur mót á morgun í staðin. Ástæðan í dag var sú að ekki fékst aðstaða í Staatsoper til að hittast, en á morgun fáum við hugsanlega aðstöðu í tónlistarháskólanum Hans Eisler. Eins á Eddy píanóleikari afmæli á morgun er hann búinn að bjóða mér að mæta, hann er eitthvað að nálgast 70 kallinn gæti ég haldið, og ég mun að sjálfsögðu mæta.

Nú hér ringdi svo eldi og brennisteini í gærkvöldi og að sjáflsögðu var EOSinn á staðnum til að fanga regnið:

Eins og sjá má á þessari mynd fór allt á flot á svölunum hjá okkur, þar sem niðurfallið stíflaðist eða er reyndar búið að vera stíflað síðan við fluttum hingað.

Svo verð ég bara hreinlega verð að deila með ykkur uppskrift af brauði sem ég henti saman í dag. Eflaust þekkir fólk nú til svona brauðs. Ég hinsvegar smakkaði eitthvað í líkingu við þetta þegar ég var í Salzbug fyrir ekki löngu síðan og hefur blundað í mér að reyna að henda í eitt slíkt, sem ég hef núna gert.

Ég mana fólk til að prufa þetta, en þetta kallast bara "sætt brauð".

Full uppskrift (um 15-20 bollur, ég gerði helmingi minni uppskrift):
(Hjá mér var einn bolli c.a 2,5 dl)
6-7 bollar hveiti
1/2 bolli sykur (ég gerði 50/50 hunang og sykur)
2 tsk salt
2 pakkar þurrger
1 bolli vatn
1 bolli mjólk
1/bolli smjör
1 egg (í 50% minni uppskrift notaði ég samt 1 egg)

Aðferð:
Blanda saman og hita mjólk vatn og smjör að 45-50°C (eða bara þannig að það sé ekki of heitt til að stinga puttanum í :), eins er bara fínt að setja hunangið saman við það ef maður er að nota slíkt.

Blanda saman þurrefnum vel og vandlega. Setja egg útí og byrja að hræra, hella svo mjólkurblöndunni saman við hægt og rólega, þá endum við með eitthvað sem lítur út eins og þykk súpa, gott að nota bara hefðbundin písk. Þvínæst hellum við afgangum af hveitinu saman við í smá skömmtum og hrærum vel. Þegar þetta fer að þykkna talsvert fer að verða erfitt að "píska", þá er ráð að nota bara aðra hendina í þetta og setja afganginn af hveitinu samanvið, þetta á að límast við þig :) Svo er skálin höfð á hlýjum stað, t.d í volgu vatnsbaði með rakri tusku eða einshverju slíku ofan á svo það þorni ekki. Látið hefast í klukkustund, svo er rétt kýlt í það til að það falli aðeins, og svo er það látið hefast í halftíma í viðbót. Svo er bara komið að því að forma úr þessu bollur. Setja á plötu og baka við 180 í c.a 30-40 mín, yfir og undir hita.

Svo er voða töff að skera svona kross ofan á brauðið, eða bara hvaða munstur sem þér dettur í hug og mála yfir þau með hrærðu eggi til að fá glansandi áferð.


Þessi brauð eru svo eiginlega bara best ein og sér, þó vissulega megi klína einhverju á þau, en það er bara eins og að blanda saman góðu rauðvíni og sódavatni eða kók.

Og já, svo var Prison Break að byrja aftur......jibbí!

31.8.08

Sól, tónleikar, söngur, flottheit og EOSinn... sem er eiginlega líka flottheit

Þá er enn einni helginni lokið hér í borg nasismans. Það eru vissulega margir samverkandi þættir sem valda því að maður fær stundum nóg af því að vera hérna, en þegar maður nýtur dagana eins og maður hefur gert nú um helgina, er hvergi betra að vera.... ekki einusinni á Íslandi. Helgin hófst á því að Davíð og Gunnar kíktu í heimsókn og við horfðum á videó, Hellboy 2 varð fyrir valinu, en ég held ég hafi ekki verið í ástandi til að gefa stjörnur :) Allavega var þetta ekki besta mynd sem ég hef séð. Á Laugardag fórumvið Soffía í langan og góðan hjólatúr um miðæ Berlínar, í besta veðrinu hérna í rúman mánuð, loksins! Þetta var svaka fínn dagur, og ég sá mér til mikillar ánægju að það var verið að frumsýna Fidelio í Staatsoper og það var sýnt frá því á risaskjá fyrir utan óperuna sama kvöld. Við mættum að sjálfsögðu og horfðum á, hrikalega flottur flutningur og í raun ekki margt viðurstyggilega ómerkilegt eins og maður hefur margoft séð hérna í Berlín. Þetta var bara nokkuð smekklegt og ótrúlega vel sungið. Með aðal tenórhlutverkið fór Johan Botha hann er bara nokkuð flottur og skilaðu sínu ótrúlegum krafti og fegurð, sem ég hef persónulega ekki áður heyrt hjá dramatískum tenór live. Við strákarnir hentumst svo á Maredo að lokinni sýningu og fengum okkur einn drykk. Ekki leið á löngu þar til sjálfur Johan Botha gekk inn á staðinn og settist niður til að borða. Ég stóð upp og gekk að honum, og óskaði til hamingju, ákvað svo að taka sénsin að spyrja hvort hann tæki að sér nemendur í Berlín og svarið var nei! EN hann sagði samt að hann gæti hlustað á mig ef ég vildi og gaf mér númerið sitt, hann er nefnilega með fólk hérna í Berlín sem hann sagðist myndi benda mér á ef ég er "good", því var það úr að ég fékk númerið hans og hringi í hann á næsta miðvikudag..... hrikalega spennandi.

Nú í dag fórum við S. í sundlaugargarð hérna ekki langt frá okkur því fínt veður einkenndi daginn, við fundum þetta auðveldlega og lögðum af stað hjólandi. Það kostaði okkur 4 EUR á mann að fara inn, þetta er í raun bara tvær sundlaugar og svo smá útivistarsvæði. ekki neitt merkilegt. En þetta var voða fínt, ekki það að maður hafi farið mikið í sund þar sem hitastigið var 20°C, ss ekki spennandi þar sem úti hitastigið var svosem ekki hátt. En það var sól og maður svitnaði aðeins. Eftir það hentist ég niður í bæ, aftur að Staatsoper þar sem var verið að sýna 9.symfóníu Beethovens fyrir utan Staats og aftur var það Daniel Barenboim sem var að stjórna, nokkuð flott, og af þessu öllu má að sjálfsögðu sjá myndir á myndasíðunni minni.

Helgin er búin a vera góð og veðrið er búið að vera gott. Ég fór í tíma hjá Goldbergnum á föstudag, og svo í tíma hjá pínaóleikaranum mínum á laugardag, og það gekk allt hrikalega vel, ég held sveimér þá að skap mitt hangi í samspili við verðurfar, því mér hefur ekki gengið vel meðan það er skýjað og þungt yfir, núna er það allt annað og mér líður súper vel og allt gengur eins og það á að gera.....! Þetta er ótrúlega óþolandi að vissu leiti, kannski ekki skrítið að bestu tenórar heims komi frá hitabeltissvæðum :) Ætli maður verði ekki að fara til Ítalíu næst.

Allavega góð helgi að baki og margt gott hefur gerst sem vekur von og gleði :) Vona að það haldi áfram næstu viku.

Óléttuhornið:
Maður er farinn að vona að þetta fari bara að gerast, þar sem maður hefur bara ekki þolinmæði til að bíða í rúma 2 mánuði í viðbót.... þetta er bara rugl. Augljósar hreifingar hafa fundist síðustu 3-4 vikur og maður heldur auðvitað í fáfræði sinni að barnið sé að bregðast við einhverju sem maðu segir, og gerir :) En vitandi það að svo er ekki er líka soldið merkilegt, þessar hreifingar eru í raun bara "hikstar" eins og það er kallað. Barnið er að "anda" að sér legvökva og hreyfingarnar eiga sér einhver stað í því að mér skilst. Það er gaman að upplifa þetta, en það er greinilegt að eitthvað "yfirnáttúrulegt" er að undirbúa mann fyrir komuna, því ég hef ekki verið að sofa vel undanfarið, og það tengist svosem svefnleysi konunnar að einhverju leiti. Þetta verður auðvitað gaman og það er ekki til millimeter af mér sem hvíðir þessu, vona og veit að þetta mun setja ákv hluti í samhengi, sem verður bara gaman og áhugavert.

MYNDIR HÉR