20.12.11

Er það farið að síast inn?

Ekki er átt við jólin heldur flutninginn frá Þýskalandi.  Erum við í alvörunni að fara flytja aftur heim til Íslands? Já það lítur út fyrir það. Þó flytjum við nú ekki alveg að fullu fyrr en samningurinn minn við húsið hérna rennur út í Júlí. Núna er bara heilinn á fullu alla daga að reyna að finna út hvað skal gera þegar heim er komið.  Það sem í boði er:
  1. Fara aftur í skóla, Söngskólann, og klára Bachelor í kennslu
  2. Fara á vinnumarkaðinn og sjá fyrir fjölskyldunni
  3. Reyna áfram fyrir mér hérna í Þýskalandi, einn.
  4. Fara í skóla á norðurlöndunum að læra eitthvað allt annað.
Ég þarf ekki að hafa áhuggjur af því að finna mér ekkert að gera en mig langar ekki að gera eitthvað sem ég á hugsanlega eftir að sjá eftir. En það sem þarf að ráða för er fjölskyldan, og líklega eru bestu kostirnir að flytja aftur heim og hætta þessum draumum um að starfa við söng í útlöndum.  Það er að auki ekki eins gaman eins og ég hélt, og því svolítið asnalegt að vera halda fjölskyldunni hérna fyrir eitthvað sem enga ánægju veitir.

Hér stefnir í rauð ljól, núna er bara heiðskýrt og sól, með 3 gráðu hita.  Svosem ágætt, þá er maður ekki að frjósa innandyra :) Hér er búið að versla alltsaman.  Hamborgarhryggurinn að þessu sinni var keyptur beint af kjötkaupmanninum á horninu, og það var svosem ekki gefins. Líklega dýrara en á Íslandi eða um 26 Evrur fyrir 2,2 kíló.  Íslenska appelsínið og þýska maltið bíða kæld inni í vetrargarði ásamt öllum pökkunum sem okkur hafa borist. Jólatréð var skreytt í gær og átti dagurinn að fara í jólaundirbúninginn að mestu. En uppúr klukkan 11 var hringt í mig frá óperunni og ég beðinn að syngja tvenna jólatónleika vegna veikinda hins tenórsins hér í húsinu, sem ég og gerði. En það þýddi vinna frá 14-22, sem er frekar truflandi svona þessa síðustu daga.  Aðrir tvennir tónleikar eru svo í dag, en ég þarf ekki að vinna á morgun nema eitthvað mikið komi uppá.  Þannig að nú er bara að vona.

Ég finn jólaskapið seytla hægt og rólega inn, þrátt fyrir snjóleysið.  Það hjálpar til að ég keypti í fyrsta skipti Hyasintu sem nú er byrjuð að blómstra með tilheyrandi jólalykt :)  Þetta er í fyrsta skipti sem hún er keypt hérna, því talið var að Soffía væri með ofnæmi fyrir þeim.  En annað hefur komið á daginn :)

Ég neyti nú lyfja að staðaldri og tel að þeirra vegna sé ég bara nokkuð slakur og mér líður bara nokkuð vel :)  Allavega er ég ekki stressaður eins og ég ætti að vera miðað við hvað er að fara gerast og það er bara nokkuð fínt.

Af þeim litlu er það að frétta að Emilía er orðin afar vakandi og sperrt, brosir mjög mikið og talar heil ósköp, sem Júlía gerði afar lítið af.  Svefninn er hægt og rólega að komast í gott horf og hún stækkar og þroskast eðlilega.  Júlía er aftur farin að fara í leikskólan og það er bara alltaf jafn gaman, þó var gamanið stutt í þetta skiptið því síðasti dagurinn  var einmitt í dag/gær :)

Á heimleið úr leikskólanum

Allir að skreyta smákökur fyrir jólin.


1 ummæli:

  1. Gleðileg jóll alltaf gama, að frétta af ykkur.
    Jóla og nýárskveðjur.Ásta

    SvaraEyða