17.9.10

Er gleðin virkilega við völd?

Jah! þegar stórt er spurt!!

Hún dettur hérna inn af og til, væri þó til í að sjá hana oftar. Eitt svona gleðitilvik á sér stað á næsta mánudag, en þá fæ ég aftur stelpur mínar heim. Þetta er búinn að vera langur aðskilnaður, en sem betur fer hefur verið það mikið að gera að maður hefur ekki tíma til að sakna of mikið eða hugsa of mikið. Nú er heldur farið að hægjast um og mér nánast farið að leiðast :) Ég á reyndar eftir að þrífa hér allt hátt og lágt fyrir endurkomuna, en það ætti nú ekki að taka meira en einn eftirmiðdag.

Í kvöld er svo þriðja sýning af Leðurblökunni, og á sunnudag er þriðja sýning á
My Fair Lady. Svo dettur Carmen inn í næsta mánuði. Ég er kominn með þetta allt utanbókar og það léttir allverulega á. Ég hef samt þá ónotatilfinningu að þetta sé líkast til ekki það sem ég vil gera í lífinu, syngja jú, en að sjá fram á að eiga engan fastan samastað, nema binda sig við eitthvað hús til æfiloka. Og það er bara alls ekki sjálfgefið að maður geti það eða vilji það. Þetta rótleysi er mjög erfitt og ég verð nánast þunglyndir á að hugsa til þess hvað við verðum að gera eftir ákkúrat 2 ár.

Nóg af þessu, hér gengur annars allt sinn vana gang þó veðrið mætti nú vera betra. Hér hafa komið örfáir sólardagar síðustu daga en það endist nú ekki lengi. Maður hendist á æfingu í 10 stiga hita, sem er mjög kallt, vetlingar og húfa takk fyrir. Og ekki er útlit fyrir að það sé eitthvað að hlýna á næstunni.

Fékk í gærkvöldi skemmtilegt myndband sent, ég læt það fylgja hérna með :)

1 ummæli:

  1. haha þú ert svo ógeðslega fyndinn í þessu gervi! :) Verður nú gott að fá skvísurnar heim aftur..

    SvaraEyða