4.9.10

Er ég alkóhólisti, Dr.Blind?

Spurning sem ég hef spurt mig æði oft þegar ég tel að ég sé farinn að drekka of mikið. Ég hef reyndar komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki, þrátt fyrir talsverða neyslu undanfarna mánuði. Ég hef staðið mig að því að drekka um 2-4 bjóra á hverjum degi, síðustu mánuði. Það sem þetta færir mér ef litið er á þetta jákvætt er að ég á mjög auðvelt með að sofna og ég er ekki ein tauga hrúga á kvöldin. Í stað þess næ ég að slaka algerlega á og hugsanlega að vera örlítið betri manneskja :) Því stress og slíkt gerir mig alveg snarbilaðann í skapinu og ég á erfitt með mig stundum þegar mikið álag er. Ástæða þess að ég spyr mig reglulega að þessu er einfaldlega til að kanna hvort ég sé hugsanlega í einhverri raunveruleikafyrringu þegar ég tel mér trú um að þetta sé allt eðlilegt. Ég veit reyndar að þetta er ekki fullkomlega eðlilegt en, álagið er heldur ekki eðlilegt og það er því spurning hvort hægt megi með þeim rökum að svara ofangreindri spurning neikvætt.

Undanfarnar tvær vikur hef ég engra áfengra drykkja neytt, og það er skemmst frá að segja að að mörguleiti líður mér betur, en í staðinn sofna ég mjög seint eins og alltaf, áður en ég kynntist áfenginu, ég finn meira fyrir orkuleysi og einbeitingarleysi en áður, en ég er ekki eins neikvæður, sem ég veit að er algengur fylgikvilli áfengisdrykkju. Svarið við ofangreindri spurningu er því nei ég er ekki alkóhólist, þar sem ég er ekki að hafa eyðileggjandi áhrif á fjölskyldu og vini og sjálfan mig. En réttlætir það að ég haldi þessu áfram? Nei aldeilis ekki! Heilsufarslega er þetta ekki gott og það veit ég nú, en andlega er þetta það besta sem til er. Hver þekkir ekki tilfinninguna að fá sér í glas eftir að einhverju stórverkefni er lokið? Það er algerlega óviðjafnanlegt. Því það er ekki svo auðvelt að losna við þannig spennu með hugleiðslu eða rólegheitum, það er bara ekki hægt! Og það er einmitt ástæðan fyrir því að mjög margir söngvarar verða háðir áfengi til spennulosunar.

Jæja , öðruvísi pistill héðan í þetta skiptið. Í dag var aðalæfing fyrir frumsýningu á Die Fledermaus sem verður á morgun. Ég hugsa að ég láti það nú heftir mér að hendast út í búð og fá mér 1-2 bjóra svona til að slaka á ;)

Ég er sem fyrr í skemmtilegu gerfi og hérna má sjá myndir af því :)
Þangað til næst...


1 ummæli: