1.8.10

Skattar og síðustu dagar

Lítið hefur svosem verið að gerast síðustu daga annað en það að við erum að koma okkur fyrir og aðlagast hér umhverfi. Erum þegar búin að hendast upp á fjallið okkar, Landeskrone, og niður að vatninu okkar, Berzdorfer see. Við erum búin að hjóla hér um allt og það hefur bara gengið vel.

Fyrsta ruglið hérna er það að ekki er vitað nákvæmlega hver á hvaða ruslatunnu, ég er búinn að hringja hérna í félagið sem rekur húsið og þar er mér sagt að við eigum tunnu númer 2, en svo kemur upp úr kafinu að hún til heyrir nágranna okkar og hún segir okkur að við eigum tunnu númer 3. En þegar við fluttum inn fylltum við tunnu númer 1, sem er í raun rökréttast þar sem við erum fyrsta íbúð á fyrstu hæð. En þetta er svosem ekkert áhyggjuefni.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að svipta okkur barnabótum og leggja á mig að greiða fáránlea upphæð. Þetta er ekki áætlun, heldur bara skatta bjánarnir í hnotskurn. Ástæða þess að við fáum ekki barnabætur er að við erum búsett erlendis! En við erum heldur ekki að fá barnabætur hérna í þýskalandi og við höfum ekki sótt um það því það stóð ekki til að vera hérna um ókomna framtíð, ég er að greiða skatta og gjöld á Íslandi, auk þess sem ég greiði útvarpsgjald og gjald í framkvæmdarsjóð aldraðra, það er greinilega í lagi að rukka mig um það þó ég sé "búsettur erlendis" eins og skattinum finnst svo gaman að segja. Ég er búinn að vera á þeytingi hér útum allt að reyna að að redda vottorðum um það að ég sé ekki búinn að vera þiggja laun í þýskalandi og að við höfum ekki verið að fá barnabætur. Auk þess þarf ég að sýna fram á að ég hafi verið í námi árið 2009, þó það sjáist fullvel á námslánunum mínum. Það er eins og fólkið sem ákvarðar svona lagað sé tómt í hausnum!!! Í ofanálag hef ég svo ákveðið að taka út lífeyrissparnaðinn minn til að brúa það litla bil sem er eftir þangað til ég fer að fá föst laun. Hámarks upphæð sem má taka út á mánuði er 111.þús, eftir skatt ætti maður því að fá um 69. þús, sem verður svo að um 400 Evrum hingað komið. Mér var svo sagt að ég gæti nýtt mér persónuafsláttinn minn til að lækka skattagreiðsluna, en þá kemur það í ljós að afþví að ég er "búsettur erlendis" þá má ég ekki nýta persónuafsláttinn!! Það er eitthvað meira en lítið að svona þjóðfélagi eins og er á Íslandi. Ég er afskaplega ósáttur við að maður eigi svona lítin rétt eins og raun ber vitni. Og að skattayfirvöld séu að pínast á fólki sem alltaf greitt sína skatta og gjöld er með ólíkindum. Ég fagna því að geta flutt lögheimilið mitt frá Íslandi á næstu mánuðum, ég hélt ég ætti aldrei eftir að segja það.

Endum þetta á jákvæðari nótunum, við fórum í dag niður að Berzdorfer see, þar voru teknar nokkrar myndir, henti þeim hér inn. Ásamt einni þar sem þeirri litlu tókst að slasa sig aðeins :)

PS: það er kannski rétt að ítreka að þetta blogg er skrifað sem dagbók fyrir okkur, en ekki sem einhver ævintýrasaga fyrir almenning, því er allt neikvæðnistal sem hér birtist ekki ætlað til þess að leita vorkunnar, heldur einungis til að minna okkur á hvað var að gerast á þessum tíma.




1 ummæli:

  1. Úff, ég lenti í því í vetur að ég gat allt í einu ekki fengið evrópska sjúkratryggingakortið mitt endurnýjað - kom í ljós að þjóðskrá hafði hent mér út, og það þrjú ár aftur í tímann! - og útfrá því var auðvitað alls konar skattarugl og vesen. Ótrúleg vitleysa...

    Annars ætlaði ég nú að vera löngu búin að óska þér til hamingju elsku Egill, þá aðallega með stórtónleikana þína en svo einnig með alveg frábæra dóma. Þeir komu sko ekkert á óvart :)

    Ertu annars búinn að lesa þennan pistil hér:
    http://karifrid.blog.is/blog/karifrid/entry/1082147/ ? Þú þarft endilega að troða þér í þessa samkeppni í háskólabíói ha. Svo er hressandi að hlusta með lestrinum:
    http://www.youtube.com/watch?v=NMiV3tYHZWQ :D

    Hjartans kveðjur til Görlitz!

    SvaraEyða