Þetta er semsagt nafnið á persónunni sem ég leik í uppsetningu óperuhússins í Görlitz á verkinu "Der Besuch der alten Dame", sem er ópera eftir Gottfried von Einem byggð á frægri sögu Freidrich von Dürrenmatt.
Hérna eru nokkrar myndir af gerfinu mínu sem er ansi skemmtilegt :)
Það liggur nú við að það hafi tekið sig upp gamalt glott.
SvaraEyðaGervið er nú fínt og flott
og fer þér bara nokkuð vel.
Það tók sig upp gamalt glott
sem gjarnan fel í perluskel.
Já sæll, ég hélt fyrst að ég væri að horfa á vaxmynd af einhverjum miðaldar óperugutta í óperuhúsinu. Tók smá tíma að fatta þetta :)
SvaraEyðaFlottur.
SvaraEyðaMá ekki líka brosa í þessu gerfi - eða getur þá allt rifnað upp? :)