Við vorum búin að fá veður af "leynileið" inn í Reichstag bygginguna og nýttum okkur það, og viti menn, í stað þess að standa í biðröð í 2 tíma komumst við inn á 5 mínútum eða svo......!!!! það munar sko um minna. Maður á tvo kosti, annarsvegar að þykjast vera fatlaður.....eða að vera með barnavagn, og við prufðum auðvitað fyrri kostinn :) En án gríns, þá virðist vera nóg að maður sé yfir fimmtugt til að komast þarna inn án athugasemda, það er frekar sorglegt að sjá fullfrískt fólk valsa þarna inn án sjáanlegrar ástæðu. En það minnir mig á annað sem ég sá í dag í fréttum, en það er ákvörðun sem forstöðukona fjölskylduhjálparinnar tók, og ég styð hana 100% í einu og öllu, þar sem ég tel að hagsmunir barnafólks og eldra fólks eigi mun hærri rétt en réttur fólks sem flytur milli landa og ætlast til að fá sömu réttindi og þeir sem eru búnir að búa og starfa í landinu frá fæðingu. Þetta er það sem er að verða til vandræða í flestum vestrænum ríkjum, sérstaklega Evrópu, að fólk úr allt öðrum menningarheimi kemur og veit að okkar "kristnu gildi" munu gera þeim kleyft að krefjast hvers sem er í krafti þeirra, og þvímiður er það svo að nú eru þessir menningarheimar að taka yfir í mörgum löndum með óeðlilegar kröfur um menntun og efni á þeirra tungumáli. Það er erfitt a segja nokkuð um þetta án þess að útlendingaelskandi einstaklingar fari offari í að segja hvað ég sé óumburðarlyndur og mikill kynþáttahatari, en það er bara umræða til annars tíma. Þeim sem finnst ég vera óumburðarlyndur geta bara étið skít og reynt að skilja hvað er að gerast í heiminum, ekki bara í sínu einangraða litla umhverfi!!
Allavega þá var dagurinn frábær og búið er að henda inn fullt af myndum í tilefni hans. Ég er að hendast til Görlitz til æfinga á mánudag og kem vissulega aftur hingað til Berlínar um páskana og hver veit nema lítill frændi kíki í heimsók ásamt öllu stærri skyldmennum :) Það verður auðvitað bara gaman!
Komnar eru FULLT af nýjum myndum í albúm!!!!
Nýjar myndir frá því í dag
Aðrar nýjar myndir frá því í MARS
Nýjar myndir frá því í dag
Aðrar nýjar myndir frá því í MARS
Ég er að hugsa um að vera ekki ósammála þér varðandi þessa matarúthlutun - félagsráðgjafinn sjálfur ;) Hún bara kom þessu ekki nógu vel frá sér blessuð konan, en málið er að margt af þessu útlenda fólki er bara vant því að sækja sér mat með þessum hætti, burtséð frá því hvort það hefur efni á að kaupa hann úti í búð eða ekki! Rétt eins og það hirðir allt mögulegt úr gámunum og drífur það með sér heim... Kv. Kristín Ósk
SvaraEyðaJamm, þetta er líka það sem ég var að segja :) Að koma til annars lands og halda að það geti bara fengið gefins mat þó það hafi efni á honum er sorglega heimskulegt og vanvirðing við landið sem viðk er að flytja í. En ég veit að auðvitað er fólk sem þarf á þessu að halda og það á ekki að neita þeim.
SvaraEyða