29.3.10

Görlitz ó Görlitz!!

Þá er fyrsta æfingadeginum lokið hjá mér hérna í Görlitz, ég er í fínni lítilli íbúð og hef allt til alls. Hér var ágætis veður fyrsta daginn (í gær) og þá leit þetta nokkuð vel út, en þegar fer að rigna er þetta ekki mjög spennandi. Ég er búinn að rölta eilítið hérna um og skoða, og "so far" er þetta þetta svipað rólegt og laugarás, þó er þetta talsvert stærra :) Upp á það að gera held ég að þetta verði voðalega gott fyrir mann, að taka mann aðeins útur stórborgarmenningunni, sem, þrátt fyrir allan sinn sjarma, getur líka verið yfirþyrmandi. Ég neita því þó ekki að takmörkun á aðgengi að því sem manni langar verður erfiðust, en það kemur þá annað í staðinn sem vonandi bætir lífið eitthvað.

I dag var svokölluð Konzeptions probe, en þar er farið yfir söguþráðinn og sviðsmynd og búningar kynntir til sögunnar. Ég verð í ansi merkilegum búning, og það verða eflaust settar inn myndir hérna þegar það er allt komið á kopp :) Eftir það var svo músík rennsli og það gekk allt vel. Þarna er mjög flottur bartón sem er að byrja næsta season ásamt mér. Það verður vonandi gaman að kynnast þessu liði öllu saman betur.

Ég hlakka til að fá hérna gott veður, því þá á maður vissulega eftir að njóta þess aðeins betur.

Nú nálgast páskahelgin óðfluga og litla Middelfart familíjan ætlar að kíkja á okkur Berlínar "high fashion liðið" :) Það verður ótrúlega gaman að fá að sjá þau og sérstaklega þó littla Gabba frænda sem ég hef ekki séð LIVE. Ég er búinn að óska eftir að fá að fara fyrr til Berlínar á fimmtudag þar sem Middelfartliðið verður mætt á svæðið á miðvikudag og maður hefur gott að því að reyna að hitta fólkið sitt aðeins meira :)

Hér eru alla jafna æfingar milli 10-14 og svo aftur 18-21, þannig að maður á alltaf smá tíma á daginn til að gera eitthvað með familíunni sinni, ég vona að það gangi bara alltsaman upp og allir verði happy. Reyndar var ég að uppgötva afar leiðinlegan hlut við Görlitz, en það eru göturnar eru allar svona "cobblestone" sem þýðir að það er nánast ómögulegt að hjóla hérna, enda sér maður afar fáa á hjólum, en maður þarf að láta reyna á það, ekki satt!??

Næst hendi ég kannski inn einhverjum myndum hérna ef ég nenni :) Þangað til þá, verið þið sæl.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli