Eins og svo oft áður þá átti ég afmæli :) Ég bauð í létt matarboð og átti ég von á 8-10 gestum, þar af voru svo 4 sem afboðuðu á síðustu stundu þannig að ég sit nú uppi með ógrinni matar, sem er reyndar afar góður þó ég segi nú sjálfur frá :) Allt á matseðlinum fyrir utan brauðréttin týpíska hef ég aldrei gert áður og það stendur einhversstaðar í "veisluhöld 101" að maður eigi ekki að bjóða upp á mat sem maður hefur aldrei gert áður :) En þetta gekk allt upp og gestirnir virtust ánægðir með þetta. Ég tók nokkrar myndir og birti þær hérna í stað þess að segja meira.
Kökubaka með basil steinselju og fetaosti

Grísk spínatbaka

Smjördeigssnúðar með papriku, sólþurrkuðum tómötum og steinselju

Tómat og mozzarella baka

Gestirnir


Vá dugnaðurinn í þér ! Munnvatnsframleiðslan eykst til muna við að skoða þessar myndir...
SvaraEyða