Mig langar að fara nokkrum orðum um reykingar, en það er eina fyrirbærið í heiminum sem ég get með fullri sannfæringu og ekta hatri sagt að ég þoli minna en allt annað í heiminum. Þetta kemur upp vegna þess að tvívegis á stuttri ferð minni varð ég fyrir "aðkasti" reykingafólks. Fyrra skiptið var ég á leið úr áheyrnarprufunni og leitaði mér skjóls frá rigningunni í biðskýli við lestarstöðina, þar kom þá hópur ungs fólks sem leitaði sér líka skjóls eins og eðlilegt er, nema hvað þeim fannst fátt eðlilegra en að rífa upp sígaretturnar sínar og byrja að reykja sem varð auðvitað til þess að ég hrökklaðist út í rigninguna í rúmar 15 mínútur þangað til að lestin kom. Seinna skiptið var svo þegar ég þurfti að bregða mér á klósettið í lestinni og þar hafði augljóslega einhver fíkillinn ekki ráðið við sig og þurft að kveikja sér í á klósettinu, maður angaði eins og öskubakki eftir 2 mínútna heimsókn á klósettið!!!!. Að þetta fólk kunni ekki og vilji ekki skammast sín fyrir eigin heimsku er svo fjarri mínum skilningi að stundum held ég að ég sé ekki frá sömu plánetu og þetta lið. Ég tek undir með Sænsku fyrirtæki sem setti í ráðningarauglýsingu hjá sér að reykingamenn gætu sleppt því að sækja um. Fyrirtækið var að sjáfsögðu kært af einhverjum fíklinum, en vann málið á þeim forsendum að fólk sem vísvitandi kýs að hundsa hundruði rannsókna og viðvaranir lækna og heilbrigðis yfirvalda hafi einfaldlega ekki það gáfnafar sem þeir krefjast :) Mér finnst þetta snilld og mættu fleirri leika eftir.
Annars var það ekki fleira í bili...........
vááá hvað ég er sammála með þetta helvítis reykingafólk og biðstöðvar utandyra. Veit ekki hversu oft ég hef einmitt hrökklast út úr biðskýlinu í rigningu, rok og kulda fyrir það eitt að það stendur eitthvað fífl inni í skýlinu reykjandi og reykurinn fýkur þannig á mig...helvítis fíflin..
SvaraEyðaÞað hlýtur að vera eitthvað öðruvísi stress í áheyrnarprufum en þegar þú kemur fram. Greinilegt að þú getur vel sungið flott og ekkert við það að athuga en það er kannski spurning um að þú æfir upp andlega þáttinn fyrir áheyrnarprufurnar. Það getur ekki verið annað en við hann að athuga. Þú ættir kannski að lesa eina bók sem heitir Power Performance. Hún fjallar soldið um hvernig best er að tækla svona stress. Gangi þér vel! Btw það væri gaman að fá að hitta á ykkur á meðan þið eruð á Íslandi ef það er ekki brjálað að gera hjá ykkur að heimsækja alla ættingjana :)
SvaraEyðaKv. Hulda Sif