23.5.09

Lítið bloggað en mikið ringt

Hér hefur nú fátt markvert gerst annað en það að við erum byrjuð á stífu svefnprógrammi fyrir dömuna og ekki annað hægt að segja en að það hafi fljótt skilað góðum árangri.

Ég fer með hana inn í rúm klukkan 22:00 og þar held ég í hendurnar á henni þangað til hún sofnar (yfirleitt á 10-15 mín), en þangað til er grenjað stíft.  Svo hefur hún bara sofið yfir 4 tíma í einu allar síðustu nætu, sem verður að teljast met fyrir hana.  Eina nóttina svaf hún til að verða hálf 6 um morguninn!  Það er nánast að maður trúi þessu ekki, en loksins eitthvað farið að gerast.  Ég á svo von á því að þegar þetta er allt orðið fast og fínt, þá fara tennurnar að koma og allt raskast upp á nýtt.  Sumir myndu kalla þetta svartsýni, en ég kalla þetta "lögmál Murphys", margreynt og viðurkennt lögmál.

Ég er að hefja undirbúning á fyrstu Einsöngstónleikum mínum hérna í Berlín, og þar verður m.a dusta rykið af ljóðaflokk eftir R.Strauss og jafnvel æfður upp einn Vaughan Williams, en það þarf að bíða og sjá með hversu auðvelt er að læra það :)  Svo bara eitthvað klassískt óperu rep.  Þetta er allavega á hugmyndastiginu núna og fær að vera þannig eitthvað áfram.

Hér er búið að vera leiðinda veður síðustu vikuna, vindur og frekar kallt (flíspeysuveður), af og til svakaleg rigning.  Það sem hófst sem stórkostlegt sumar er líklega lokið :) (aftur lögmál Murphys)

Annars gengur allt sinn vana gang hér, raddlega er ég í besta formi sem ég hef verið, og Wolfgang skilar sínu allduglega í hverri viku, það er ekki hægt að kvarta yfir því!

Þangað til næst, Guð blessi Ísland

2 ummæli:

  1. Ég hélt að næst á dagskrá væri Wagnerópera. Eitthvað þarna sem maður á að vera búinn að heyra um?

    Er ekki bara sungið Bí, bí og blaka, eða Sofðu unga ástin mín, þessa dagana?

    SvaraEyða
  2. Næst á dagskrá er vissulega Wagner, en maður þarf að plana aðeins lengra fram í tímann.

    Að syngja vögguvísur fyrir Júlíu væri eins og að reyna að slökkva skógarelda með leikfangavatnsbyssu.

    SvaraEyða